Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 5

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 5
Ágúst Geirsson Röbun L launaftokka Nýlega hófust viðræður milli samninga- nefndar F.Í.S. og samninganefndar ríkis- ins um nýjan sérkjarasamning í framhaldi af samþykktum aðalkjarasamningi. Aðal- efni sérkjarasamninga er röðun í launa- flokka, bæði röðun starfsiheita og einstak- linga, enda eru flest önnur kjaraatriði kom- in undir aðalkjarasamninga. Nauðsynlega verður að gera talsverðar lagfæringar á flofekaröðun símamanna og þá sérstaklega hjá þeim, sem eru í lægri launaflokkunum, m.a. með tilliti til þeirra tilfærslna í lfl. 1—5, sem samið var um í aðalkj arasamningi. Nefna má í því sambandi talsímaverði, sem nú eru í 6. Ifl. og talsímaverði við utanlandsafgreiðslu í 7. lfl. en þar hafa orðið grundvallarbreytingar á afgreiðslu- máta að undanförnu, sem gera mjög aukn- ar kröfur um málakunnáttu. Einnig má nefna fjölmörg tilfelli úti á landi þar sem starfsmenn hafa tekið að sér mun fjölþætt- ari störf en éður. I því sambandi er ástæða til að vekja athygli á því að þegar póst- og símamálastjóri óskaði eftir stuðningi F.Í.S. við þá þróun taldi hann eðlilegt að því fylgdi hærri launaflokkun en ella og í kröfugerð fé-lagsins er þessu m.a. mætt með nýju starfsheiti. Þegar kemur að röðun einstaklinga er ekki síður nauðsyn á leiðréttingum. Kemur þar margt til, svo sem breytingar á störf- um manna og má í þvi sambandi nefna breytingar vegna hins nýja skiplags stofn- unarinnar, sem hefur haft í för með sér verulegar breytingar hjá fjölmörgum starfsmönnum. vanmat frá fyrri tíð og sam- anburð við aðrar ríkisstofnanir, en fjöl- mörg dæmi eru þess að störf hjá Pósti- og síma eru lægra flokkuð en samskonar störf annarsstaðar í ríkiskerfinu. Þá verður nauðsynlegt að staðfesta formlega röðun ýmissa starfsmanna, sem hafa haft svo- kallaðar milligreiðslur árum saman vegna verkstjórnarstarfa, en fastar stöður ekki verið til. Er alger óhæfa að halda starfs- mönnum í þeirri óvissu, sem slíkt ástand skapar, í áraraðir. Fyrstu viðbrögð ríkisins við kröfum fé- lagsins í þessum efnum lofa ekki góðu og þegar þetta er skrifað virðast allar líkur benda til þess að málið fari í Kjaranefnd en þangað liggur leiðin ef ekki um semst, því enginn verkfallsréttur fylgir. sérkjara- samningunum gagnstætt því sem nú er um aðalkjarasamning. Baráttan að þessu sinni verður því ójöfn og það hlítur að kalla á umræður meðal opinberra starfsmanna um hvernig skuli tryggja betur þennan þátt samninganna í framtíðinni, t.d. með því að afgreiða hann um leið og aðra þætti kjara- samninganna eða að festa hann á einhvern hátt betur í aðalkjarasamnin.gi. Ágúst Geirsson. SÍMABLAÐIO 31

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.