Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 42

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 42
steyptur maður. Félagi, sem ekki gleym- ist. Ég þakka þér fyrir allt og allt. Eftirlifandi kona Sigurðar er Júlíana Sigurjónsdóttir frá Hnífsdal. Þau eign- uðust tvö börn. Henni og börnunum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. A. G. Þormar. FRIÐRIK FRIÐRIKSSON Friðrik var fæddur 14. febrúar 1911 í Súðavík. Voru foreldrar hans Friðrik Guðjónsson, kennari þar um langt skeið og símstjóri til æfiloka og Daðína Hjaltadóttir eiginkona hans. Friðrik Friðriksson lauk ungur prófi úr Samvinnuskólanum, er þá var stað- settur í Reykjavík, undir stjórn Jónasar Jónassonar frá Hriflu. Að loknu prófi 1932 hélt hann heim til Súðavíkur og stundaði þar ýmis störf, var m.a. úti- bústjóri við útibú Kaupfélags ísfirðinga. Árið 1938 kvæntist hann Kristínu Samúelsdóttur og eignuðust þau 3 dæt- ur Daðínu, Heiðnínu og Selmu. Kristín og Friðrik bjuggu alla sína samverutíð í Símstöðvarhúsinu í Súða- vík og var það í þeirra eigu. Friðrik tók við stöðvarstjórastarfinu árið 1956 af móður sinni og vann Kristín ávallt með manni sínum við póst- og stímastörf o.fl. við hinar erfiðustu og mjög þreyt- andi aðstæður. Það má með sanni segja, að þar var unnið af dugnaði, samvisku- semi og mest hugsað um að gera skyldu sína. Þau hjón voru afar samhent og nutu almennra vinsælda þeirra, er við þau áttu skipti. S.l. vor gekkst Friðrik undir læknis- aðgerð á Landakotsspítala, og lá þar um hríð, á sama tíma lá Kristín kona hans sjúk á Landsspítalanum. Friðrik lézt 5. ágúst s.I. á sjúkrahús- inu á ísafirði, og var hann jarðsettur í Súðavík 13. ágúst, með honum er geng- inn hinn mætasti maður og farsælu æfi- starfi lokið. Kristínu, dætrunum þremur og öðr- um aðstandendum sendum við samúð- arkveðjur. Ragnhildur Guðmundsdóttir. WwWWrtWVW. 68 5IMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.