Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 25

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 25
Talsendir aö ofan og viötœki aö neöan. \/aktavLn.nu.menn atkugib Stjórn F.Í.S. vill vekja at'hygli vakta- vinnumanna um land allt á því, að sam- kvæmt nýgerðum aðalkjarasamningi skulu þeir fá tvo samfellda frídaga í viku hverri. Samkvæmt sömu grein er heimilt að að- skilja frídagana og/eða flytja þá milli vikna með samkomulagi og í samráði við starfsmannafélögin. í grein 2.1.2. segir, að heimilt sé að haga vinnutíma með öðrum hætti en í kafla þessum greinir, þ.e. kafla 2 um vinnutíma, en eini fastsetti vinnutíminn, sem í þeirn kafla er ákveðinn er dagvinnutíminn á tímabilinu 08.00—17.00 frá mánudegi til föstudags. (Þannig má segja, að vakta- vinnumönnum er ekki þröngur stakkur skorinn með samninga um vaktir og vakta- fyrirkomulag). Það eru tilmæli stjórnar F.Í.S. að vakta- vinnumenn láti vilja sinn í ljós, sem fyrst, hvaða tilhögun óskað er eftir að verði á vöktum á hverjum vinnustað. 5 daga vinnuvika kallar að sjálfsögðu á nokkuð lengri vaktir dag hvern. Víða er vaktafyrirkomulag þannig að ekki er ástæða til breytinga, þ.e. tveir frí- dagar eru í viku hverri. Þegar starfsmenn ihafa komið sér saman um hvaða vaktatilhögun þeir æskja helst, ber þeim að leggja óskir sínar fyrir við- komandi yfirmann og samtímis senda skrifstofu F.Í.S. afrit af þeim óskum, hvort heldur þær eru lagðar fram sem tillögur um varðskrá eða aðeins óskir um breyt- ingar á vöktum. Vaktavinnumenn eru eindregið 'hvattir til að kynna sér rækilega vaktavinnu- ákvæði 'hins nýja kjarasamnings, sem birt- ist í heild í síðasta tölublaði Ásgarðs. J. L. S. SIMABLAÐIÐ 51

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.