Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.12.1977, Side 6

Símablaðið - 01.12.1977, Side 6
ÞORSTEINN OSKARSSON: 5TÖRFIN AÐ BAKI AÐALKJARASAMNINGS Sunnudaginn 13. nóvember voru birt úrslit í kosningum ríkisstarfsmannafélaga um aðalkjarasamning. Atkvæði greiddu Já sögðu Nei sögðu Auðir seðlar Ógildir seðlar 6095 eða 67,7% 4601 eða 75,5% 1155 eða 19,0% 330 eða 5,4% 9 eða 0,1% Þar með var aðalkjarasamningur endan- lega staðfestur. Áður hafði samninganefnd B.S.R.B. samþykkt að aflýsa verkfalli 25. október. Sunnudagurinn 13. nóvember voru liðn- ir tæplega sjö og hálfur mánuður frá því að kröfugerðin var afhent fjármálaráðherra en það var 31. mars. ANNÁLL Hér á eftir fer annáll helstu viðburða frá því kröfugerð var lögð fram og þar til hún var samþykkt: 22. apríl: Fyrsti viðræðufundur var hald- inn við samninganefnd ríkisins. 30. apríl: Lögð fram krafa um sérkjara- samning F.Í.S. 5. til 16. maí: Kynningarfundir á kröfugerð B.S.R.B. voru haldnir á yfir 30 stöðum á landinu. 31. mai: Sáttasemjari boðaði til sáttafund- ar. Fundi frestað um 2 daga sennilega vegna þess að gagntilboð lá ekki fyrir frá ríkinu. 2. júní: Samkomulag varð um frest á við- ræðum þar til um miðjan ágúst og að tíminn yrði notaður til upplýsingaöflun- ar um raunverulegar launatekjur í ýms- um starfsgreinum hjá ríkinu, bönkunum og á almennum vinnumarkaði. Einnig var samkomulag um að samningur gilti frá 1 júlí 1977. 32 21. ágúst: Samningaviðræður B.S.R.B. og ríkisins hófust á ný. 23. ágúst: Á sáttafundi kom fram gagntil- tilboð ríkisins er gerði ráð fyrir 7 Vi % launahækkun 1. júlí, 2 Vz % til sérkjara- samninga félaga og 4 sinnum 3% áfanga- hækkanir til 1. júlí 1979. 24. ágúst: Samninganefnd B.S.R.B. fundaði og taldi gagntilboð ríkisins ófullnægj- andi og gerði þá tillögu að nú þegar hæf- ust undir stjórn sáttanefndar viðræður um kröfugerð B.S.R.B. Eftir þetta hófst hálfsmánaðar viðræðulota í Lögbergi (lagadeild Háskólans). 5. sept.: Samþykkt einróma á sameigin- legum fundi stjórnar og samninganefnd- ar B.S.R.B. að boða til verkfalls frá og með 26. september (með fresti þýðir það 11. október). 9. sept.: Samkomulag undirritað hjá 5 sveitarfélögum á Reykjarnesi um aðra liði kröfugerðar en launastiga. 21. sept.: Sáttatillaga lögð fram af sátta- nefnd. SIMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.