Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.12.1977, Side 22

Símablaðið - 01.12.1977, Side 22
að greiða iðgjöld 20 ára verður þannig við 65 ára aldur 75% af launum (60% -j- 1% í 15 ár) og þegar hann verður 75 ára 85% af launum (2% í 5 ár). Þeir starfsmenn, sem voru orðnir sjóð- félagar 11. maí 1955 geta valið á milli þessa og 95 ára reglunnar eins og áður segir. Með henni kaupa starfsmenn sér rétt til að láta af störfum með árlegum ellilíf- eyri úr sjóðnum innan við 65 ára aldur, eða þegar aldur þeirra og iðgjaldagreiðslu- tíma nemur 95 árum. Ég held að allir síma- menn, sem átt hafa þess kost, hafi fram að þessu valið 95 ára regluna og sýnir það algjört þekkingarleysi á lögunum. Það er hægt að telja þá starfsmenn okkar á fingr- um annarrar handar, sem hafa notfært sér réttinn, sem þeir hafa keypt, og hætt störfum á aldrinum 57 til 64 ára. Allir hin- ir hafa eytt fé algjörlega að þarflausu, misjafnlega miklu þó. Maður sem greiðir í 37% ár og má þá 'hætta með árlegum ellilífeyri 5714 árs gamall (3714+5714 = 95) greiðir fyrir það rúmar 50 þúsund kr. auk vaxta, miðað við 14 þúsund króna mánaðarlaun. Maður, sem greiðir í 33 ár og má þannig hætta 62 ára, greiðir fyrir það, af sömu launum, rúmar 20 þúsund krónur auk vaxta. Þetta er gott og blessað fyrir þá, sem hafa hætt störfum og þegið ellilífeyri allt eftir áunnum réttindum. Hinir, sem haldið hafa áfram störfum fram yfir 65 ára aldur og hafa greitt sam- kvæmt 95 ára reglunni, hafa tapað á því fé að þarflausu. Hversu margir s'kyldu þeir vera starfandi hjá stofnun okkar en:n í dag? Það er hins vegar ekki of seint fyrir 64 ára gamlan sjóðfélaga, sem greitt hefur iðgjöld lengur en í 30 ár að tilkynna líf- eyrissjóðnum að hann ætli ekki að greiðá samkvæmt 95 ára reglunni og að hann óski að fá endurgreidd iðgjöld, sem hann hefur greitt umfram í 30 ár. Þannig getur 60 ára gamall sjóðfélagi, sem hefir greitt iðgjöld í 35 ár, beðið enn í 3 til 4 ár með að taka ákvörðun um hvort hann ætli að gheiða eftir 95 ára reglunni eða ekki. Það er hugs- anlegt að einhverjir haldi að þeir ávinni sér hærri ellilífeyrir með 95 ára reglunni, en það er hreinn misskilningur, hann verð- ur hinn sami, hvora leiðina sem þeir velja. Tökum tvö dæmi til samanburðar: 1. Starfsmaður hefur gerzt sjóðfélagi 20 ára gamall. Almenna reglan: Eins og sýnt var hér að framan nemur ellilíf- eyrir hans 75% af launum, þegar hann verður 65 ára og 85% af launum, þegar hann verður 70 ára að aldri. 95 ára reglan: Hann greiðir í 3714 ár eða þar til aldur hans er 5714 ár (3714 -|- 5714 = 95). Þá hefur hann öðlazt rétt til að láta af störfum með 60% ellilífeyri. Eftir það bætist við 2% fyrir hvert starfsár og nemur ellilífeyririnn því 75% af launum, þegar hann verður 65 ára og 85% af launum, þegar hann verður 70 ára. 2. Starfsmaður hefur gerzt sjóðfélagi 30 ára gamall. Almenna reglan: Hann greiðir í 30 ár og hættir þá greiðslu, 60 ára gamall. Hann bætir við sig 1% á ári til 65 ára aldurs. Þá öðlast hann rétt til að láta af störfum og fá elli- lífeyri er nemur 65% af launum. Eftir það bætir hann við sig 2% á ári og nem- uh ellilífeyririnn þá 75% af launum, þegar hann verður 70 ára. 95 ára reglan: Hann greiðir í 3214 ár eða þar til aldur hans er 6214 ár (3214 + 6214 = 95). Þá hefur hann öðlazt rétt til að láta af störfum með 60% elli- lífeyri. Eftir það bætast 2% við fyrir hvert starfsár og nemur hann því 65.% af launum þegar hann verður 65 ára og 75% af launum, þegar hann verður 70 ára. Að lokum skal athygli vakin á því að upphæð ellilífeyris er hundraðshluti af þeim launum, sem á hverjum tíma fylgja starfi því, sem sjóðfélaginn gegndi síðast. SIMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.