Símablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 43
Frá deild eftirlaunafólks
Stjórn deildarinnar vill vekja athygli
hlutaðeigandi á nauðsyn þess að kynna
sér vel niðurstöður nýafstaðinna launa-
samninga og áhrif þeirra á breytingar,
sem kunna að verða á röðun í launaflokka.
Kjarasamningar opinberra starfsmanna
við ríkisstjórnina standa nú yfir og ekki
séð fyrir enda þeirra þegar þessar línur eru
skrifaðar.
Vegna þeirra miklu breytinga, sem gerð-
ar hafa verið á skipulagi stofnunarinnar,
hefur orðið mikil röskun á starfsskiftingu
og gera má ráð fyrir, að deilur verði um
eftirlaunaákvörðun til margra einstaklinga.
En til þess er deild eftirlaunafólks fyrst og
fremst stofnuð að gæta í þessum efnum
hagsmuna og réttar deildarfélaganna.
Það sem þetta fólk þarf strax að kynna
sér er m.a.: Fær það greidd eftirlaun, sem
miðuð eru við launaflokk sama starfshóps
og áður var, eða laun þess starfsmanns,
sem skipar nú sess þeirra og eftirlaunin
hafa verið miðuð við.
Ef svo er ekki, er nauðsynlegt að gera
athugun á því, hvort starf eftirmanns hef-
ur breyst svo, að það réttlæti aðra við-
miðun lífeyrisþega til eftirlauna.
í þessum efnum er sjálfsagt að leita að-
stoðar deildarstjórnarinnar.
Á sama hátt er það hlutverk deildar-
stjórnarinnar að aðstoða eftirlifandi maka
dáinna félaga, þó þeir séu ekki beinir að-
ilar að félagssamtökunum. En einmitt sá
hópur á oft erfitt með að afla sér nauðsyn-
legra upplýsinga og fá þá aðstoð, sem hann
þarfnast.
Deildarstjómin beinir þeirri ósk til um-
boðsmanna F.I.S. utan Reykjavíkur, að
þeir afli sér og sendi henni sem fyrst, nöfn,
lieimilisföng og símanúmer þess fyrr-
verandi símafólks, sem nú nýtur lífeyris
og eftirlifandi maka dáinna félaga.
Deildarstjórnin mun gera ráðstafanir til
þess, að Símablaðið verði sent þessum að-
ilum. Ennfremur væri henni kærkomið, að
einhverjir úr þessum hópi sendu Síma-
blaðinu línur til birtingar á síðum „hinna
öldruðu“ þar sem málefni þeirra munu
verða rædd.
Stjórn deildarinnar skipa:
Sæmundur Símonarson, formaður, Dun-
haga 11, sími 16729, Andrés Þorrnar, vara-
formaður, Sóleyjargötu 33 Rvk., sími
14688, Þóra Timmermann, gjaldkeri, Ægis-
síðu 54 Rvk., sími 11189, Helga Finnboga-
dóttir, ritari, Birkimel 6 Rvk., sími 14056,
Brynjólfur Bjömsson, sími 31365.
BIMABLAÐIÐ
69