Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2005, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
Fréttir DV
Keyrði á staur
og flúði
Átján ára ökumaður
lenti í hálku f brattri brekku
á Naustavegi á Akureyri á
sunnudagskvöld, með þeim
afleiðingum að hann ók á
ljósastaur við veginn. Betur
fór en á horfðist og endaði
staurinn við hlið bflsins.
ökumaðurinn hlaut ekki
teljandi meiðsli en bfllinn
skemmdist töluvert. Öku-
maðurinn flúði af vettvangi
og varð samvinna lögreglu-
embættanna á Akureyri og
Húsavík til þess að hann
var stöðvaður af Húsavík-
urlögreglunni við Tjörnes.
Hann gat litlar skýringar
gefið á athæfi sínu.
Kviknaði í út
frá rafmagni
Rannsókn Lögreglunnar
á Höfn í Homafirði og
tæknideildar Lögreglunnar í
Reykjavík, vegna bruna í
hænsnahúsi
bæjarins
Græna-
hrauns í
Nesjum 14.
desember
síðastliðinn,
er vel á veg
komin. í ljós hefur komið að
eldur myndaðist út frá því
að spennurofi gaf sig í raf-
magnstöflu og er málið í
frekari rannsókn. Hátt í fjög-
ur þúsund hænur drápust í
brunanum og skemmdist
hænsnahúsið mikið.
Vindhviða
velti sendibíl
Um klukkan átta á laug-
ardagsmorgun valt lítill
sendibfll á Grindavíkurvegi,
til móts við Bláa lónið. Að
sögn Lögreglunnar í Kefla-
vík missti ökumaður sendi-
bflsins stjórn á honum
vegna hálku og gríðarlegrar
vindhviðu sem lenti á bfln-
um, með þeim afleiðingum
að hann hringsnerist og
valt á hliðina. Ökumaður
og farþegi kenndu sér ekki
meins. Bifreiðin skemmdist
töluvert við veltuna en var
þó ökufær þegar henni var
komið á fjögur hjól aftur.
„Jonn eru eKKi Komm a ruiit
hjá mér enda er ég ósköp lltill
jólakarl, “ segir Gunnar Jóns-
son, bóndi á Egilsstöðum.
„Konan bakar og ég mæti. En
dýrin fá ekki steik á jólunum.
Reynd-
ar
hugsar
maður svolítið tilþess að dýrin
hafi það gott um jólin. Við
hjónin borðum rjúpu um jólin
sem ég veiddisjálfur."
Landsíminn
Harðvítugustu nágrannadeilur íslands eru senn á enda. Gunnar Tyrfingsson og
kona hans Unnur Herdís Ingólfsdóttir í Melasveit ætla að selja húsið sitt og flytja.
Þau segja deilur þeirra við Sverri Þór Einarsson, sem er einnig þekktur sem Sverr-
ir tattú, og Ingibjörgu Ólafínu Palmer hafa tekið sinn toll af þeim og skjólstæðing-
um þeirra en þau reka sambýli fyrir geðfatlaða.
ihætui vegna
Gunnarog Unnur Hafa
gefist upp á nágrannadeit-
unum og hyggjast selja
húsið og fiytja á brott.
awá3#,%.*g i
DV hefur fjallað um harðvítugar nágrannadeilur í Melasveit. Nú
er útlit fyrir að deilunum linni þar sem hjónin Gunnar Tyrfings-
son og Unnur Herdís Ingólfsdóttir hyggjast selja húsið sitt og
flytja starfsemi sína á brott en þau reka sambýli fyrir geðfatlaða.
Kærur, klögumál og líflátshótanir eru aðeins brot af því sem hef-
ur farið fram í Melasveit en hjónin segja erjurnar hafa tekið sinn
toll af bæði þeim og skjólstæðingum þeirra.
„Við erum búin að gefast upp,“
segir Gunnar Tyrfingsson, sem
staðið hefur ásamt konu sinni Unni
Herdísi Ingólfsdóttur í harðvítug-
um deilum við Ingibjörgu Ólafínu
Palmer og tengdason hennar Sverri
Þór Einarsson, sem er betur þekkt-
ur sem Sverrir tattú.
Tekið sinn toll
„Þetta hefur tekið sinn toll af
okkur og okkar skjólstæðingum,
það er óhætt að segja það," segir
Gunnar.
„Það er ekki hægt að reka þá
starfsemi sem við rekum í þessu
umhverfi hér og ekki við þessar að-
stæður. Við munum skoða ein-
hvern annan stað eða svæði sem
hentar fyrir þessa starfsemi og við
bindum vonir okkar við að finna
betra umhverfi. Ég vonast til þess
að yfirvöld taki betur á þessu og
„Það á ekkert eftir að
gerast á meðan Sverr-
ir tattú er hér á
sveimi."
vonandi að þeir sem kaupa húsið
fái frið fyrir þessum erjum," segir
Gunnar.
Sáttafundur
Gunnar segir að það þurfi stór-
kostlega breytingu á málunum í
Melasveit svo að þau hætti við að
flytja: „Það á ekkert eftir að gerast á
meðan Sverrir tattú er hér á sveimi.
Við héldum sáttafund nýlega og það
verður reynt að setja niður einhverja
samninga í framhaldinu en ég trúi
ekki að það verði til þess að við hætt-
um við að fara," segir Gunnar.
Nágrannadeilurnar hafa verið í
Skálda og Ijúga
„Þau finna alltaf upp á
einhverju nýju til þess að ríf-
ast við okkur. Þau hreinlega
skálda og ljúga eins og
þeim sýnist til þess að
halda þessu gangandi,"
segir Gunnar.
„Okkar vinna felst í því
að hjálpa öðru fólki en
það getum við ekki á
meðan við sitjum undir
stöðugum árásum frá ná-
grönnum okkar. Bflhræin
sem Sverrir skildi hér eftir
fyrir utan húsið okkar eru
hér enn og enginn hefur
gert neitt í því. Það sýnir
kannski aðgerðaleysi
þeirra
Sverrir Þór Einarsson Hefur
staðið i deilum við Gunnar og Unni
en þær eru senn á enda þarsem
hjónin segjast ekki geta meir.
gangi um nokkurra ára skeið en
Gunnar og Unnur keyptu húsið sitt í
Melasveit í byrjun árs 1996. Kærurn-
ar hafa gengið á víxl og enn eru kær-
ur í kerfinu sem fulltrúi sýslu-
mannsins í Borgarnesi og lögreglan
þar eiga eftir að ganga í.
sem ætti að hjálpa til við að finna
lausn á þessu leiðindamáli," segir
Gunnar og bætir við að húsið fari á
sölu á næstu dögum.
atli@dv.is
Jóhannes Jónsson kveikti í húsi eiginkonu sinnar og smíðar það nú upp á nýtt
„Verð í stofufangelsi næstu tvö árin"
„Við flytjum ekki inn fyrir jól. Það
er nóg eftir," segir Kópavogsbúinn
Jóhannes Jónsson. í febrúar á þessu
ári bar Jóhannes eld að húsi eigin-
konu sinnar við Kársnesbraut. Hann
játaði fyrir dómi að hann hefði verið
ölvaður þegar hann kveikti í og fékk
fyrir það hálfs árs skilorðsbundinn
fangelsisdóm. Þrátt fyrir það hefur
Jóhannes unnið baki brotnu að því
að endurreisa húsið sem var nær
ónýtt eftir brunann.
„Ég ætla að reyna að vera búinn
að endurreisa allt næsta sumar en
efa að það takist. Það er mikið verk
eftir og ég held að ég eigi eftir að
vera í stofufangelsi næstu tvö árin,"
segir hann og finnst sá dómur sem
hann fékk fyrir íkveikjuna léttvægari
en það verk sem hann vinnur að í
húsinu.
Jóhannes segist þó ekki vera
svekktur með hlutskipti sitt, hann
hafi borið ábyrgð á bruna húss eig-
inkonu sinnar og ætli að bæta fyrir
það. DV heimsótti Jóhannes í ágúst
á þessu ári og hafði hann þá áorkað
ýmsu í húsinu. Síðan heimsóknin
átti sér stað hefur hann meðal ann-
ars skipt um allt í lofti hússins og
málað veggi. Næst er að flísaleggja
og innrétta eldhúsið.
„Það er erfitt að vinna þegar
kuldinn og snjórinn koma aftur. Þá
kólnar í húsinu og erfitt að burðast
með hluti."
Eiginkona Jóhannesar, Sigríður
Einarsdóttir, fékk rúmlega þrjár
milljónir í bætur frá tryggingunum,
sem er helmingur brunabótamats
hússins. Jóhannes er ekki sáttur við
það en segir það eðlilegt, þar sem
þau séu gift. Ofar á lóðinni er inn-
réttaður bflskúr þar sem hjónin búa.
Þar munu þau vera um jólin en segj-
ast una því vel. Jóhannes fær stöku
Jóhannes Jóns-
son Smiðar húsið
sem hann kveiktii
upp á nýtt.
sinnum hjálp frá Sigríði en vinnur
annars allt einn. „Það þarf enginn að
hjálpa mér," segir hann og heldur
áfram að vinna.
gudmundur@dv.is
^IrgjMaílStau^MranMfaQqi