Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2006, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2006, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 Fréttir DV Ásgeir er skemmtilegur maður og þeirsem þekkja hann vita það. Hann er vel mælskur og segir skoðun sína umbúða- laust. Ásgeir getur staðið of fast á sinni skoðun og verið þröngsýnn. Margir telja það hans helsta galla. „Hann Ásgeir hefur marga kosti en náttúruiega galla líka. Hann er húmorískur og íhugull. Mjög traustur og alveg elegant maöur. Svo er hann Ásgeir líka afbragðs kokkur. Hans helsti galli er örlitill athyglisbrestur sem hrjáir hann. Hugurinn er oft á sveimi sem verður til þess að hlutir sem ættu ekki að fara fram hjá honum gera það. Annarserhann ekta finn maður." Gústaf Adolf Níelsson athafnamaður. „Ég var svo lánsamur að vera með honum I Versló á sínum tíma. Þar var hann ansi uppátækja- samur og skrautlegur í þeirri fjölbreyttu hjörð sem var í skólanum. Hann leyndi á sér og var stórgóður partihaldari. Hann leynir á sér og er mjög mælskur.Á það til að fá dramat- ískar hugmyndir. Hann er fyrst og fremst traustur og hlýr mað- ur. Hans helsti galli er að hann sýnir ekki alltafhversu skemmti- tegur hann er.‘‘ Hermann Gunnarsson sjónvarpsmaður. „Kostir Ásgeirs eru þeir að hanner drengur góður, heiðarlegur og áræðinn. Hann er traustur vinur og úrræðagóður. Maður sem þorir og er óhræddur við að segja sina skoðun. Ókostirnir eru þeir að þóhann eigi stystu ræðu á Alþingi, þá getur hann verið langmáll og kann ekki á farsíma. Það að hann standi á sinni skoðun getur jafnframt talist gatli." Ingi Björn Albertsson fasteignasali. Ásgeir Hannes Eiríksson fæddist í Reykjavík þann 19. maí árið 1947. Hann hefur setið á Alþingi, i stjórnum fjölmargra félagssam- taka og hefur samhliða starfað við ritstörf. Undanfarin ár hefur hann starfað sem vert á veitingastaðnum Blásteini í Árbæ. Hann komst í fréttir á dögunum vegna þess að smásaga eftir hann birtist á næstunni íyfir- litsritiyfír norrænar jólasögur. Þar er hans saga ásamt sögum eftir merka menn eins og H.C.Andersen. Vilja freista ferðamanna Ekkert gistirými er að fá í Þorlákashöfn nema á tjaldstæði bæjarins. Þetta kom fram á fundi bæjar- stjórnar Ölfuss sem vill bæta aðstöðuna á tjald- stæðinu í þeirri von að fá ferðamenn til að stoppa lengur í bænum. Meta á hvort finna eigi nýja og betri lóð fyrir tjaldstæði til framtíðar eða hvort ráðast eigi í endurbætur á gamla svæðinu fyrir næsta sumar. DV hefur undanfarið birt fréttir af athafnamanninum Engilberti Runólfssyni, í tengslum við „Dauðahúsin“ svokölluðu á Hverfisgötu. Fjórir fíkniefnaneytendur hafa látið lífið í húsum hans. Engilbert hefur sjálfur ítrekað komist í kast við lög- in og hlaut réttarstöðu grunaðs manns í mannhvarfsmáli Valgeirs Víðissonar, sem upp kom fyrir ellefu árum. Dæmdur fyrir dóp, íjársvik og vopnaburD Stórfelld brot fullorðins manns Þegar hann afplánaði dóminn frá árinu 1996 varð hann uppvís að því að búa til ólöglegar útgáfur af Microsoft Windows 95 og Office-pakkanum með því að fjöl- falda diska í klefa sínum á Lilta- Hrauni. Það kom fram í enskum, spænskum og þýskum ijölmiðlum á sínum tíma. f dómsorðum Hæstaréttar í málinu sem hanp sat inni fyrir á þeim tíma segir: Ákærði, Engil- bert, erfullorðinn maðursem ekki hefur látið af afbrotum þrátt fyrir óskilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir sams konar afbrot. Brot ákærða eru því stór- felld að mati dóms- ins. .váHi&l* Engilbert Runólfsson, athafhamaður og dæmdur fíkniefna- smyglari og fjársvikari, á í gegnum félög sín og eiginkonu sinnar hátt í þrjátíu íbúðir, auk skrifstofu-, veitinga- og verslunarhús- næðis á reit við Vatnsstíg, Hverfisgötu, Frakkastíg og Laugaveg. staðið að innflutningi efnanna ásamt Engilberti. Síðar dró hann framburð sinn til baka og sagði Engilbert ekki hafa komið nálægt innflutningnum. Hæstiréttur dró þessar skýringar Gunnars í efa og taldi breyttan framburð hans marklausan. Dómurinn yfir Engil- berti var þyngdur í þrjú ár í Hæstarétti. í héraðsdómi hafði hann fengið tvö og hálft ár. Refsiþynging vegna síbrota Það sem varð Engilberti til refsiþyngingar á báðum dómstig- um í smyglmálinu sem kveðið var upp árið 1996 var að hann hefur hlotið fjölda refsidóma. Frá árinu 1982 hefur hann hlotið fjölda dóma vegna umferð- arlagabrota, fíkniefnasmygls, vopnaburðs, hylmingar þýfis, stórfellt skjalafals og fjár- svik. Engilbert Runólfsson er með langan sakaferil sem hófst árið 1982 þegar hann var rétt rúmlega tvítugur. Fíkniefna- og fjársvikamál skipa töluverðan sess ferils Engil- berts hjá dómstólum. Hann hlaut einnig réttarstöðu grunaðs manns í tengslum við hvarfið á Vaigeiri Víðissyni, sem hefur aldrei verið upplýst. Hjólin snúast í hvarfi Val- geirs Rannsókn lögreglu á hvarfi Valgeirs Víðissonar árið 1994 stóð yfir í langan tíma og margir voru yfirheyrðir. Enginn botn komst hins vegar í málið. Árið 2002 fóru hjólin að snúast í rannsókn lögreglu á hvarfi Val- geirs. Víðir Valgeirsson, faðir Val- geirs, vísaði lögreglu á tvö vitni sem sögðu Engilbert og starfsfé- laga hans, Ársæl Snorrason, hafa komið að mannshvarfinu. Skammbyssa Engilbert hafði eina slika, hlaðna, i fórum sínum árið 1992. Réttarstaða grunaðs ^ manns « Engilbert og Ársæll yB hlutu báðir réttarstöðu grunaðs manns. Árið 2002 \* voru þeir úrskurðaðir í gæslu- \ varðhald vegna málsins. Lög- reglu tókst ekki að afla hald- bærra sönnunargagna og var Engilberti og Ársæli því sleppt. Málið telst enn óupplýst. Þyngsti dómurinn Engilbert hefur hlotið fjölda dóma og hefur einnig gengist undir fjölda dómsátta. Engilbert var dæmdur í Hæstarétti árið 1996 í þriggja ára fangelsisvist fyrir smygl á rúmlega 300 grömmum af amfetamíni. Þrátt fyrir jjj neitun Engilberts þóttu brot hans sönnuð. Eng- JB in játning af hálfu Engilberts lá fyrir í JH málinu fyrir dómi. J| Vitni og aðrir ger- endur breyttu fram- S burði sínum í ;!S meðferð málsins. Framburði breytt Gunnar Valdi- marsson sem ásamt Engilberti var dæmdur fyrir ofangreint eitur- lyfjasmygl, játaði fyrir dómi að hafa að hafa Engilbert Runólfsson Hefur margítrekað komist í kast við lögin. Keypti upp stóran hluta í gamalia húsa við Hverfisgötu c Laugaveg. Þar hafa fjórir fíklar látið lífið vegna ofstórra I skammta og morðs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.