Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2006, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2006, Page 11
MÁNUDACUR 30. JANÚAR 2006 11 DV Fréttír Bubbi meo krullur Spurning hvort krullur séu málið fyrir Bubba. Langflottastur Sveppaklipping in er nú alltaf sígild. GRÆIA A SIG Konungur rokksins á íslandi, Bubbi Morthens, hefur verið þekktur fyrir flest annað en að sitja á strák sínum með skoðanir á hinum ýmsu málum. Það var engin breyt- ing þar á þegar fyrsta útsending íslenska Idolsins frá Smáralind fór fram á föstudaginn var. Lína langsokkur mætt Þegar Tinna Björk Guðjónsdóttir hafði lokið við flutning sinn lýsti Bubbi því yfir að hann myndi fara í hárígræðslu ef hún kæmist áfram. Tinna er aðeins sextán ára gömul og Bubbi ásamt hinum dómurunum gagnrýndu hana fýrir að velja ekki lag sem hentaði henni betur sökum ungs aldurs. Tinna svarði þeim fullum hálsi og sagði: „Viljiði að ég syngi Línu Langsokk?" Allir keppendur í Idolinu eru í fjölmiðlabanni og geta því ekkert tjáð sig op- inberlega á meðan keppni stendur. Verður minntur á loforðið „Hann sagði að hann ætlaði að láta græða á sig hár,“ segir Sigmar Vilhjámsson Idol- kynnir. „Hann talaði samt ekkert um hversu mörg hár en sagðist þó ætla að láta græða á sig." Sigmari finnst að Bubbi eigi að standa við stóru orðin fyrst Tinna Björk komst áffarn. „Auðvitað á hann að standa við þetta. Maður af hans kalíberi verður að gera það," segir Sigmar sem ætlar að halda Bubba við efnið, „Eg mun minna á hann á þetta með reglulegu millibili." Þegar blaðamaður DV náði tali af Bubbi vildi hann ekki tjá sig um málið en sagði: „Þú verður bara að hafa eftir mér það sem ég sagði í þættinum." Flestir dómaramir vom á sama máli og Bubbi um að Tinna myndi detta úr keppn- inni. Bubbi sagði: „Þetta er keppni en ekki meðvirknispítali. Ef þú kemst áffarn fer ég í hárígræðslu." Erfið og dýr aðgerð DV hringdi í þó nokkra lýtalækna til að spyrjast fyrir um hárígræðslur og þeir sögðu að slíkar aðgerðir séu ekki framkvæmdar hér á landi. Ekki vom þeir vissir um verðið en vom þó allir sammála um að þetta væri erfið og dýr aðgerð. Þetta er ekki fyrsta skiptí sem Bubbi kem- ur með kraftmiklar yfirlýsingar í þáttunum sí- vinsælu, enda ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum. Ekki alls fyrir löngu hótaði Bubbi að hætta sem dómari í þáttunum ef Guðrún Lára Alffeðsdóttír, eða Nana eins og hún er kölluð, kæmist ekki áfr am í þættinum. Nana komst í 12 manna lokahóp og reyndi því ekki á ummæli kappans. í þetta skipti er annað upp á teningnum og verður skemmtilegt að sjá hvort Bubbi standi við stóm orðin og látí græða á sig hár. Spennandi verður að sjá hvaða hárgreiðslu Bubbi velur. DV ákvað að gefa Bubba nokkur dæmi um góðar hárgreiðslur sem gætu hentað vel. asgeir@dv.is Bubbi flottur m«8 hár Þetta er kannski ekki svo galin hugmynd hjá Bubba. Vel slelktur Það myndu nú flestir rokkar- ar prísa sig sæla með þessa greiðslu. Bubbl hnakki Ætli það myndi fara Bubba vel að vera með hnakkagreiðslu?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.