Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2006, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2006
Sport DV
NBA KORFUBOLTINN
Eftir langa mæðu kom loksins að því að einhver þorði að taka við villingnum Ron Artest
hjá Indiana, sem í síðustu viku var skipt til Sacramento Kings fyrir Peja Stojakovic
Hornets
áfram í
Oklahoma
Nú er útlit fyrir að lið
New Orleans/Oklahoma
City Hornets verði áfram í
Oklahoma út næsta tímabil
ef marka má fréttir úr stað-
arblöðum um helgina. New
Orleans-borg varð eins og
flestir vita illilega fyrir barð-
inu á fellibylnum Katrínu á
sínum tíma og enn er mjög
langt í að uppbygging á
svæðinu verði viðunandi
svo rekstur NBA-liðs standi
undir sér. Þá hefur Okla-
homa City reynst liði
Hornets sannkölluð ljóna-
gryfja í vetur og hefur gengi
liðsins farið langt fram úr
væntingum. Það verður þó
líklega í höndum David
Stern að ákveða hvað verð-
ur í framtíðinni, en hann
hefur sagt að liðið muni á
endanum snúa aftur til New
Orleans.
Thomas í
vandræðum
Isiah Thomas, fram-
kvæmdastjóri New York
Knicks á ekki sjö dagana
sæla þessa dagana, því
kona nokkur sem starfaði
hjá liðinu hefur kært hann
fyrir kynferðislega áreitni.
Thomas brást hinn versti
við þegar málið var höfðað
á hendur honum og hélt
fram sakleysi sínu. Ekki var
það þó allt, því við meðferð
málsins hafa komið upp á
borðið ásakanir á hendur
honum fyrir að reyna að
lokka leikmenn andstæð-
inga New York á súlustaði í
borginni þar sem áfengið
ku flæða og stúlkurnar
brosa breitt. Thomas'hefur
því í mörg horn að líta
þessa dagana, því eins og
menn vita hefur gengi New
York Knicks verið skelfdegt í
vetur.
Fuglamaður-
inn í ruglinu
Chris Andersen, leik-
maður New Orleans
Hornets, var fyrir helgina
dæmdur í
tveggja ára
keppnisbann
eftir að hann
var fundinn
sekur um að
hafa neytt eit-
urlyfja sem
eru á svörtum
lista hjá
deildinni.
Andersen,
sem uppnefndur hefur ver-
ið „Fuglamaðurinn" fyrir
loftfimleika sína og þát-
ttöku í troðslukeppninni
um stjörnuhelgina, má
sækja um leyfi til að fá að
spila aftur að tveimur árum
liðnum, en hann er fyrsti
maðurinn síðan árið 1999
sem er rekinn úr deildinni
fyrir eiturlyfjaneyslu.
Gömlu samherjarnir hjá Boston Celtics eru orðnir örvæntingarfullir
Nauðsynlegar breytingar hjá Minnesota og Boston
i (liigi
hnÉ * “
Þótt ótrúlegt megi virðast vom
margir eigendur í NBA-deildinni á
höttunum eftir Ron Artest, sem var
búinn að vera á sölulistanum hjá Indi-
ana í nokkrar vikur eftir að hafa gefið
það út að liðið væri betur komið af án
hans. Sú var svo sannarlega raunin eft-
ir að Artest sló á útrétta hjálparhönd
Larry Bird og félaga sem höfðu staðið
við bakið á honum síðan hann átti
upptökin af verstu uppákomu í sögu
hópíþrótta í Bandaríkjunum. Það varð
þó Artest til happs að alltaf er hægt að
slá því föstu að einhvers staðar í deild-
inni séu örvæntingarfullir eigendur og
framkvæmdastjórar sem em tilbúnir
að taka áhættu til að hrista upp í liðum
sínum. í þetta skipti vom það Maloof-
bræður í Sacramento.
Bæði skorari og varnarmaður
Málið er nefnilega það, að þegar
Ron Artest er „í lagi“ er hann einn allra
besti leikmaður deildarinnar. öll lið
eiga sína skorara og nokkur lið hafa á
að skipa sterkum vamarmönnum, en
Artest er einn mjög fárra leikmanna í
deildinni sem uppfyllir bæði skilyrðin.
Hann er fjölhæfúr framherji sem getur
Velkominn Larry Bird
býöur Peja Stojakovic
velkominn til Indiana.
skorað fyrir utan og inni í teig og
veldur hvaða vamarmanni sem
er miklum vandræðum með
blöndu af hraða og gríðarlegum
krafti, ekki síst eftir að hann bætti
á sig hátt í tíu kflóum af
vöðvamassa í sumar. Fáir stand-
ast honum snúning í vöminni,
enda hefur hann nafnbótina vam-
armaður ársins í NBA.
Breyting til góðs?
Stojakovic var fyrir tveimur til
þremur ámm almennt álitin besta '
skyttan í NBA-deildinni og þó
hann megi muna fífil sinn fegurri
vegna meiðsla í vetur, er aldrei að vita
nema tilbreytingin verði til að koma
honum í gang á ný. Stojakovic er að
mörgu leyti algjör andstæða við Artest
inni á vellinum, því hann hefúr nú
aldrei verið beint þekktur fyrir góðan
vamarleik. Forráðamenn Indiana
hugsa sér þó gott til glóðarinnar að
vera búnir að landa skyttu til að stilla
upp með góðum leik Jermaine O’Neal
undir körfunni. Það hafði sitt að segja
þegar forráðamenn Sacramento
ákváðu að leyfa Serbanum að fara frá
liðinu, að samningur
hans rennur út í sumar.
Stojakovic hafði talað um
að fara frá félaginu í
nokkum tíma, en þegar á
hólminn var komið, var
hann ekkert æstur í að
fara eftir allt saman.
Á mottunni?
Eigandi Indiana
þurfti á sama hátt að
sitja langan fund með
Ron Artest áður en
VwUWta i
Numer 93 Treyjan fyrirRon
Artest hjá Sacromento Kings var
klár fyrir komu vandræðageml-
ingsins.Á innfelldu myndinni
ræðir hann við fréttamenn fyrir
leik Sacramento og Boston.
hann féllst á að fara til Sacramento,
en hann hefði eflaust geta hugsað
sér að fara til annarrar borgar í Kali-
fomíu til að huga að rappferli sínum.
Það er vissulega ómögulegt að segja
til um það á þessari stundu hvort lið-
ið fer betur út úr þessum skiptum,
en forráðamenn beggja liða anda
léttar í bili. Það á svo eftir að koma í
ljós hvort draumur Sacramento um
að fá til sín mann til að hrista upp í
vamarleiknum og bæta við keppnis-
hörku breytist fljótlega í martröð.
Fari svo ólfldega að Artest hagi sér
eins og maður, hefur lið Sacramento
klárlega dottið í lukkupottinn, en
haldi hann uppteknum hætti eiga
stuðningsmenn Indiana eftir að
hlæja vel og lengi að þeim fyrir að
fallast á skiptin.
Mikið má vera ef lok sápuóper-
unnar um Ron Artest eiga ekki eftir
að hleypa lífi í leikmannamarkaðinn
í NBA á ný og fyrir helgina skiptu
Boston Celtics og Minnesota Tim-
berwolves á sjö leikmönnum með
það fyrir augum að hrista upp í lið-
um sínum sem hafa átt frekar döpm
gengi að fagna í vetur.
Þeir Danny Ainge hjá Boston og
Kevin McHale hjá Minnesota em
mennirnir sem sjá um verslun og
viðskipti hjá sínum liðum, en þeir
voru einmitt samherjar hjá sigur-
sælu liði Boston á sínum tíma.
Stærstu trompin í skiptunum voru
þau að Boston sendi Jþá Jfticky Davis
og Mark Blount til Minnesota í
skiptum fyrir þá Wally Szczerbiak og
Michael Olowokandi. Bæði lið gætu
í sjálfu sér grætt á þessum við-
skiptum, því oft þ^r|, hreinlega að
stokka upp til að taka næsta skref.
Ricky Davis á eflaust eftir að nýt-
ast Minnesota vel með fjölhæfni
sinni, því hann er mikill sprellikarl
sem getur skorað í kippum og er auk
þess ágætur varnarmaður. Wally
Szczerbiak er fyrst og fremst frábær
skytta, en mál manna í Boston er að
hann muni henta mun betur til að
spila með Paul Pierce en Ricky Davis
gerði nokkurn tímann. Eitt er víst,
bæði lið þurfa á öllu sínu til að laga
stöðu sína í töflunni, ekki síst
Minnesota, þar sem orðrómurinn
um rifrildi og ósætti þeirra Kevin
Garnett og Kevin McHale gerist æ
háværari með hverjum deginum.
Á bmlnu brmutlnnls
Detroit Pistons: Tlu sigurleikir i röð þegar þetta er skrifað.
Hvað er hægt að segja um þetta liö? Það slær aldrei
met Chicago Bulls yfir flesta sigra á timabili, en
er farinn að hlakka til að sjá þetta
lið I úrsHtakeppni.
Dallas Mavericks: Átta sigrar I röð
hérna, sem sýnir kannski hvað gerist
þegar þú tekur aumingja eins og Brick
Dampier og treður honum á varamannabekkinn þar sem
hann á heima. Þetta lið getur unnið hvaða lið sem er, nú
þegar allir virðast vera aðná heilsu.
J JsjzjJJzjrzjjJiJjjJi
CHARLOTTE
Charlotte Bobcats: Næsta frétt afþessu liði verður liklega
um það að þjálfarinn sé meiddur áhnéog þurfí I uppskurð.
Það er ekkert grln fyrir smálið eins og Charlotte að vera án
fímm lykilmanna, en þegar Brevin Knight meiddist
ofan á allt annað gat maður ekki annað en fundið til
með liði sem hefur nú tapað ellefu leikjum Iröð.
New Jersey: Þú veist aðþú spilar i lélegum riðli þegar lið-
ið þitt tapar fjórum leikjum Iröð og sjö afslðustu tlu, en er
samtl toppsætinu. Hjólabúnaðurinn á Kidd er orðinn lú-
inn og skorturinn á stórum manni erorðinn eins og
hungursneyð.
Indiana Pacers:Menn önduðu
léttar þegar Artest fór loksins I burtu,
en þá brotlenti Jermaine O'Neal og
verður frá I að minnsta kosti átta vikur -
sumir segja enn lengur. Stojakovic er hollara
að fara að finna skotið sitt I hvelli.
Denver Nuggets: Liðið hefur unniö átta af
síðustu tlu leikjum slnum og var án
Marcus Camby nær allan tímann. Það hefði
einhverntiman hljómað skringilega, en Camby var búinn að
vera bestimiðherjinn IVesturdeildinniáðuren hann meidd-
ist og Melo er farinn að skora eins og óður maður.
I Ricky Davis og Mark Blount
| Fara frá Boston til Minnesota I skipt-
Ium fyrir Wally Szczerbiak og Michael
I Olowokandi. Nordic Photos/Getty