Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2006, Síða 24
24 MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2006
Lífið sjálft DV
Svartir fá frekar krabba vegna reykinga
Samkvæmt umfangsmikilli nýrri rannsókn eru svartir lfklegri til að fá krabbamein
vegna reykinga en hvítir. í rannsókninni kom fram að svartir og innfæddir Hawaii-búar
væru 55% lfldegri en hvítir til að fá lungnakrabbamein ef þeir reykja. Japanir og
Bandarflqamenn af spænskum uppruna eru enn ólfldegri og eru í 50% minni hættu en
hvítir. Aðrar rannsóknir hafa bent til að krabbamein tengt reykingum legðist mismunandi
á kynþættina en engin hefur sýnt jafn afgerandi niðurstöður og þessi n$ega rannsókn.
Stoppaðu
blóð-
nasirnar
/ ,fc/
Lilja Kjalarsdóttir hefur alltaf hugsað vel um heilsuna. Hún æfir fótbolta
með Stjörnunni auk þess að vera ein af glæsilegustu fitnessdrottningum
landsins. Lilja segist ekki hafa mikla trú á megrunarkúrum sem nú tröll-
ríða íslensku samfélagi þar sem þeir séu einfaldlega skyndilausnir. Horfa
verði til lengri tíma og gera líkamsrækt og hollan mat að lífsstíl.
Hallaðu höfðinu fram.
Klemmdu nasirnar saman.
Haltu í 15 mínúturog and-
aðu í gegnum munninn.
Bleyttu klút í köldu vatni og
settu yfir nefið á meðan.
Passaðu að höfuðið sé í
hærri stöðu en hjartað
næsta sólarhringinn.
Bíddu með að snýta þér í
sólarhring.
Ekki lyfta neinu þungu eða
mæta í ræktina fyrr en 24
tímum eftir að blóðnasirnar
hætta.
J
.
„Ég hef alltaf verið í iþróttum
og var ofvirk sem krakki," segir
Lilja Kjalarsdóttir knattspyrnu- og
lflcamsræktarkona. Lesendur
þekkja Lilju ef til vill úr auglýsing-
um Gym 80 í sjónvarpinu enda
svakalegar myndirnar af henni
þar. Lilja segist hafa æft fótbolta,
sund og handbolta um tíma en
hún hafi fljótlega gert sér grein
fyrir að hún yrði að velja á milli.
Arið 2001 hóf hún að æfa fyrir fit-
ness og lenti í öðru sæti í sinni
fyrstu keppni. „Það höfðu margir
reynt að ýta mér út í þetta því fólki
fannst ég ekta manneskja í þetta
sport,“ segir Lilja og bætir við að
hún hafi strax fengið bakteríuna
og byrjað að æfa stíft auk þess að'
spila fótbolta með Stjörnunni.
Mikill sælkeri
Það er því nóg að gera hjá Lilju.
Auk íþróttanna er hún að klára líf-
efnafræði í Háskóla íslands og
stefnir á doktorsnám í Bandarflcj-
unum að prófinu loknu. „Ég get
eiginlega ekki hugsað mér lífið án
hreyfingar en passa samt að láta
þetta ekki fara út í öfgar og held til
dæmis alltaf nammidögunum
inni enda mikill sælkeri," segir
Vatíð fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
MinnistöfUir
FOSFOSER
MEMORY
- og söluaðili
sími: 551 9239
.birkiaska.is
Birkiaska
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
BETUSAN
hún. Þegar Lilja er beðin að út-
skýra týpískan dag fyrir keppni
segir hún daginn byrja um klukk-
an sex með klukkustundar til
tveggja tíma brennslu áður en
hún mætir í skólann. „Vanalega
fæ ég mér að borða klukkutíma
eftir æfingu og reyni að borða á
tveggja tíma fresti og held mér við
1300-1500 kaloríur á dag nema á
laugardögum. Þá fæ ég mér það
sem ég vil. Á kvöldin lyfti ég svo í
klukkutíma."
Giftir sig í sumar
Þrátt fyrir velgengni í fitness-
keppnum hefur Lilju aldrei tekist
að næla í fyrsta sætið. Keppnin í
ár er því síðasti séns þar sem hún
er á leiðinni út. Fótboltinn hefur
hingað til verið í fyrsta sætinu og
Lilja er ekki ákveðin hvort hún
ætli að taka þátt í Galaxý-fitness-
keppninni í vor. „Ég hef verið að
gæla við hugmyndina en ég veit
ekki hvort ég get púslað þessu
öllu saman," segir hún en Lilja er
ákveðin í að halda áfram að æfa
bæði fótbolta og fitness í Banda-
rflcjunum. Hún hafði ætlað sér að
taka eitthvað af grunnnáminu úti
og reyna þá að fá skólastyrk í
I
gegnum fótboltann. „Þegar ég
byrjaði að æfa kynntist ég hins
vegar kærastanum mínum og
breytti því áætlununum og sé alls
ekki eftir því í dag." Sá heppni
heitir Svavar og er einkaþjálfari
en þau Lilja ætla að gifta sig í
sumar.
Vigtin skemmir fyrir
Þegar Lilja er beðin um ráð
handa okkur hinum sem gefumst
alltaf upp í ræktinni segir hún
nauðsynlegt að fara ekki of geyst
af stað. „Þegar maður er að byrja
er nauðsynlegt að fá góð ráð og
prógramm sem er ekki of stíft svo
maður gefist ekki upp. Einnig má
ekki horfa á vigtina því það er
mjög algengt að þyngjast fyrst
um sinn þegar vöðvarnir eru að
taka við sér. Best er að æfa með
einhverjum og náttúrulega að
fjárfesta í einkaþjálfara til að læra
að beita líkamanum rétt," segir
hún.
Gott að sjokkera líkamann
Lilja segist reyna að borða holl-
an mat en þar sem hún æfi mjög
mikið verði hún að passa sig að
borða nóg. „Þegar maður æfir
mikið má ekki borða of lítið því þá
á maður á hættu að komast í
ofþjálfun og keyra lflcamann út. Ég
tek einnig kreatín og fæðubótar-
efni frá AST og fæ mér eitthvað
gott einu sinni íviku, eins og ham-
borgara, pizzu eða KFC því ef
maður keyrir alltaf á sama matar-
æðinu venst lflcaminn því og mað-
ur nær ekki jafn góðum árangri."
Lilja segir mataræði og lflcams-
rækt afar einstaklingsbundið en
að hennar reynsla sé að það sé
gott að sjokkera lflcamann annað
slagið, þá þá telji hann ekki að um
svelti sé að ræða og haldi því ekki
jafn fast í fituna.
Megrunarkúrar eru
skyndilausnir
Aðspurð segist Lilja ekki hafa
mikla trú á þessum megrunarkúr-
um sem nú virðast tröllríða ís-
lensku samfélagi. „Þessir kúrar
virðast virka fyrir suma og eru
góðir til að koma fólki af stað. Að
mínu mati eru þetta samt skyndi-
lausnir, fólk ætti að horfa til lengri
tíma og breyta um lífsstíl en þá er
nauðsynlegt að öll fjölskyldan taki
þátt til að styðja hvert annað."
indiana@dv.is
Sigrastu á andvökunni
Foröastu koffeinið
Eftir hádegi verður koffein að vera á
bannlista. Koffein finnst að sjálfsögðu (
kaffi en einnig (tei, súkkulaði og kóki.
Lestu innihaldslýsingamar.
Enga lltia lúra
Sama hversu þreytt/ur þú ert yfir daginn,
ekki leyfa þér að halla aftur augunum
þótt ekki sé nema f nokkrar mtnútur.
Farðu í heitt bað
Slakaðu á vöðvunum og róaðu þig niður f
heitu freyðibaði rétt fyrir svefninn.
Kveiktu á kertum og hlustaðu á róandi
tónlist
Lestu bók
Reyndu frekar að
lesabók en horfa
á sjónvarpið.
Sjónvarpið krefst
athygli og heldur
þér þvf vakandi.
Endurhannaðu svefnherbergið
Hvað geturðu gert til að gera svefnher-
bergið aðeins huggulegra? Er nógu
dimmt? Hvemig er hitastigið? Er her-
bergið kósf og hreint? Eru föt úti um allt?
Engar áhyggjur
Kvöldin eru sá tfmi sem allar áhyggjur
eru hreinlega á bannlista. Þú getur velt
þér upp úr hverju sem er á öllum öðrum
tfmum. Ekki eyða nóttinni f aö velta þér f
rúminu og
upp úr þvf
hversu
erfitt Iffið
er. Þegar
þú ertf
rúminu
ertu ein-
faldlega
ekkiá
vakt
Reyndu að
tengja rúmið við svefn.
Komdu upp rútínu
Gerðu alltaf sömu hlutina áður en þú
leggst upp f rúm. Farðu f bað, gakktu úr
skugga um að gluggar séu lokaðir. Tann-
burstaðu þig og lestu tvær blaðsfður
áður en þú ferð f rúmiö.
Teldu kindur
Með þvf að telja róarðu þig niður og dá-
leiðir þig jafnvel. Reyndu að fmynda þér
einfaldar verur sem þú verður leið/ur á
og sofnar út frá.