Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2006, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2006, Page 29
DV Fréttir MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2006 29 Lesendur Ghandi ráðinn afdögum Mohandas Karamchand Gand- hi var myrtur þennan dag árið 1948 í Nýju Delhí af róttækum hindúa. Hann var bæði pólitískur og andlegur leiðtogi sjálfstæðis- hreyfingar Indverja. Hann var fæddur 1869, sonur opinbers embættismanns og trúaðrar móður sem ól hann upp í anda jainisma, trúarlegrar siðfræði- stefnu sem mælti fyrir baráttu án ofbeldis. Gandhi bauðst tækifæri til að nema lög við háskóla á Englandi en sneri aftur til Ind- lands 1891. Tveimur árum síðar hafði honum ekki tekist að finna vinnu innan lagastéttarinnar svo hann tók að sér verktakaverkefni í Suður-Afríku. Þar varð hann fyrir miklu kynþáttahatri sem átti eftir að breyta honum til frambúðar. Gandhi sneri aftur til Indlands árið 1914. Eftir fyrri heimsstyrj- öldina tóku Bretar að leggja her- skyldu á Indverja sem Ghandi mótmælti harðlega. Hundruð þúsunda Indverja studdu mót- mæli Ghandis og sex árum síðar varð hann leiðtogi sjálfstæðis- hreyfingarinnar. Hann hvatti fólk í dag var Listasafn íslands opnað árið 1988 i nýjum húsakynnum við Fríkirkjuveg. Safnið var stofnað 1884. til að sneiða hjá breskri vöru og þjónustu og var fangelsaður í kjöl- farið. Hann náði að knýja fram sjálfstæði Indlands frá Bretum árið 1945 og náði að marka sín spor í mannkynssöguna með ein- stökum hætti sem ekki verður ----------------rakinn frekar að þessu sinni. Úr bloggheimum Opið bréf til Atla Bollasonar „íguöana bænum, þó einnhver sé á lista Röskvu er hann enginn plslavottur. Há- skólapólitik er leiðinlegt dót og snýst um engar hugsjónir - þið eruð sammála um nánast allt nema orðalag. Vinstri, hægri þetta skiptir engu máli. Mér er alveg sama hvort klukkurnar séu I nafni lýðræðissinn- aðra stúdenta eða félags- hyggjufólks - eða hvað þið teng- ið ykkur við. Eftirþetta eillfa Röskvu þrugl, neyðist ég bara til að skila auðu - eða já kjósa Vöku. Þvl að Vökumen virðast að minnsta kosti hafa verið iðnir og fram- kvæmdar glaðir seinustu ár... óllkt Röskvu (fyrir utan dugleg rifrildi um orðalagsbreyt- ingar) Ég verð bara að lifa við það að klukkur I byggingum háskólans, voru (verða) keyptar afhægri mönnum en ekki góðum vinstri mönnum." Jón Örn Arnarson Loömfjörð - wviw.blog.central.is/fíog Óli Geirertöff „En það voru formenn þessarar fegurðar- samkeppni sem ákváðu það - að leifa þjóðinni að velja sér fulltrúa og ég stóref- ast um að þjóðinn hafi valið Úla Geirútafekki neinu, mér finnst nú bara I fínasta lagi að drengurinn djammiog hafi gaman að lífinu, og þessi blessaði þáttur byrjaði áður en hann fór Iþessa keppni og afhverju ætti hann að hætta með hann, bara því hann er Herra lsland...neeei ég held ekki!!!“ Ellen Erla Egilsdóttir - www.blog.central.is/virgins Alliralveg eins „Ég er alveg orðinn rosalega þreyttur á að eyða öllum helgum IVinbúðinni að vinna. En mig vantarpeninga svo ég geti gefið plötuna mlna út einhver tíman. Kostnaður er mikill. Llka Jákvætt hvað maður lærir mikið á vin þarna, gaman að \ þekkja bakgrunn ýmissa \ Rauðvina ...Hverfisbar- •r'i ý inn er orðinn góður... samtdamn hvaðer fyndið hvað allireru eins klæddir allsstað- ar. Fáranlegt... kannski ástæða fyrir framhjá- haldi hjá mörgum.“ Guðjón Örn Ingólfsson - www.blog.central.is/herraskitsama Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar. Tryggja þér ehki það sem þú borger fyrir Fríörík skrifar. Ég fékk mér intemettengingu um daginn. Það er nú dálítið nýtt fyrir mig því ég hef ekki komið nálægt þessu tölvuapparati í þó nokkur ár. En þar sem það þykir æskilegt að vera nettengdur á þessum hröðu tímum þá fór ég og keypti mér nýja tölvu og þar á eftir fór ég og nældi mér í þráðlausa nettengingu sem virðist vera í tísku núna. Eg veit nú samt ekki af hverju ég fékk mér þessa þráðlausu nettengingu en hvað um það, hún er komin upp og Lesendur nú geta allir vinir mínir komið með tölvumar sínar heim til mín og við vafrað á netínu saman. Alla vega, það sem slær mig er að símafyrirtækin firra sig nánast allri ábyrgð þegar það kemur að því að tryggja hraða teng- ingarinnar sem notandinn borgaði fyrir og jafhframt bera þeir ekki ábyrgð á sambandsleysi við það. Hvemig get- ur það staðist? í skilmálum Símans hvað intemetnotkun varðar segir orð- rétt að „Síminn tryggir ekki að tengi- hraði notanda sé sa' sami og áskrift hans segir til um. Hraði tengingar er ávalit háður gæðum línu þeirrar erliggur til notanda, fjarlægð not- anda frá símstöð, álags á línu auk annarra þátta. “ Við getum í raun og vem borið þetta saman við fullt af hlutum. Þú ferð á ham- borgarastað og kaupir þér ostborgara. Veit- ingastaðurinn getur samt ekki tryggt að þú fáir ostborgara eins og þú borgaðir fyr- ir og jafnframt geta þeir tekið af þér grænmetið ef álagið er það mikið að ekki tekst að búa hann til handa þér. Þetta er bara út í hött. Að' sama skapi tel ég OgVodafone fara yfir strikið þegar þeir segja orðrétt að „Og íjarskipti hf. ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að skapast vegna notkunar á teng- ingu við Internetið eða sam- bandsleysis við það. “ Hvemig er hægt að leyfa sér þetta? Af hveiju tryggja símafyrirtækin ekki að not- andinn fái þá þjónustu sem þeir borga fyrir? Siminn Tryggirþér ekki hraðann sem þú borgar fyrir að sögn lesandans. OgVodafone Tryggja þér ekki nettengingu þrátt fyriraðþú borgir fyrir hana. Hraðalaus? Lesandinn skilur ekki af hverju slmafyrirtækin \ geta ekki tryggt þá þjónustu sem greitt er fyrir. -S 5 Halldór Guð- mundsson Rithöfundur. Sætur sigur flokksgæðings Sveinbjöm hringdi: Það er nán- ast sjálfgefið að þeir sem yfir- menn flokka notast mest við og halla sér að, verða fyrir val- inu þegar þjóðin kýs. í prófkjöri Framsóknarflokks- ins tíl borgarstjórnarkosninganna Lesendur í Reykjavfk bar Björn Ingi Hrafns- son sætan sigur úr býtum. Huggu- legur, málefnalegur og skeleggur fer hann í hvert sjónvarpsviðtalið á fætur öðm, birtir greinar í Mogg- anum og er boðið í þorramats- smökkun hjá DV. Fjölmiðlarnir liggja flatir fyrir svona „sjarmör" enda gerir hann allt til að láta sig sjást. Ég efast hins vegar stórlega um að þeir sem kusu í prófkjörinu hafi vitað fyrir hvað hann stóð eða hlustað á stefnu hans. Hans stefna er nánast í engu frábmgðin stefnu hinna frambjóðendanna. Það er því merkilegt að sjá hvernig fólk kýs þann sem hefur verið mest sjáanlegur í fjölmiðlum, vitandi að Halldór forsætisráðherra hefur sett hann upp á stall. ■ ‘f / H ■- • Ví -■’M % Jkz, m :c»l\ Sérfræðingur í nafna sínum 2 i Maður dagsins „Þegar ég vár í menntaskóla ætl- aði ég að fára í kjarneðlisffæði þar sem stærðffæðin lá vel við mér,“ segir Halldór Guðmundsson rithöf- undur, sem hefur um áratugabil \ verið einn farsælasti bókaútgefandi landsins. Á föstudag hélt hann fyrir- lestur um samkynhneigða í verkum nafria síns, Laxness. „Ég hélt reyndar að fólk væri búið að fá nóg af umfjöllun minni um Halldór, en ég gat ekki neitað Þorvaldi vini mínum hjá Samtök- unum '78 þegar hann fór fram á þetta við mig. Svo kom á daginn að það varð húsfyflir.“= Það er óhætt að kalla Halldór sérfræðing í Halldóri. „Já, ævisagnaritari verður að vita um hvað hann skrifar og gera því skil á sem bestan hátt. Það er samt svolítíð tragískt að vera sérfræðing- ur í annars manns lífi,“ segir Hall dór og hlær við. „Það er ólíkt nafna mínum sem var sérfræðingur í ævi margra manna. Sem slíkur kynnti hann sér vel samkynhneigðar per- sónur og nýtti sér þá þekkingu til skrifta. Það þýddi ekkert fyrir hann að ganga um og afneita hinum margvíslegu tilbrigðum mannlífs- ins. Enda tókst honum stórkostlega vel upp með það." Halldór segir snilligáfu naftia síns hafa birst í hversu mikið erindi bækur hans áttu til annarra en ís- lendinga. „Halldór lagði í þann slag að skrifa á íslensku en varð líka mjög „Það er samt svolítið tragískt að vera sér- fræðingur í annars manns lífi." glaður þegar hann frétti af banda- rískum aðdáanda að það væm milljón eintök af Bjarti í Sumar- húsum í New York. Þannig skrifaði Kiljan um lítinn og þröngan heim en gat á sama tíma endurspeglað alheiminn og kotbóndann í stór- borginni." ^liídór Guðrmmdsson er fæddm í Reykjavik en uppalinn til 12 ára aldursí Bonn .' Þýskalandi. Hann er sonur hjón“"n.?1^“^T'frÍáinámTfrá tíf í 979 og og Örbrúnar Halldórsdóttur. Hann lauk bókmenntafræðinámi fra Hl 1979 g maq art gráðu frá Kaupmannahafnarháskola'84. Hann skrifaði ævisogu SóPs Laxness sem kom út árið 2004. Hann er nú sjálfstætt starfandi rit- höfundur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.