Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006
Fréttir DV
Lúxusjeppi Jeppanum
| var lagt i stæði fatlaðra I
bllakjallara Fjarðarins I
Hafnarfírði en eigandinn
er Þórarinn Ragnarsson.
Simml Idol Var
greinilega að
drlfa sig og lagði
þvl I stæöi fatl-
aðra.Samtsem
dðurólöglegtog
—
refsivert.
Lögreglan Lagði I
bllastæði ætlað
fötluðum fyrirutan
, varahlutaverslun I
Reykjavlk. Send-
andinn fullyrti að
ekkert neyðará-
I stand hefði verið í
I qangi. ___________
Mörg þúsund
sumarbústaðir
Auömaðurinn Þórarinn Ragnarsson í Staldrinu, Idol-kynnirinn Sigmar Vilhjálms-
son og lögreglan sjálf eru meðal nýjustu dæmanna um þá sem ekki virða sérmerkt
bílastæði fatlaðra. Ragnar Gunnar Þórhallsson. formaður Sjálfsbjargar, segir öku-
menn ekki taka mark á reglum.
Sumarbústöðum í Borg-
arfirði Qölgar stöðugt og
mun ekkert landssvæði
státa af jafnmörgum bú-
stöðum. Á Vesturlandi öllu
eru nú skráðir 2.683 sumar-
bústaðir og hefur þeim
fjölgað um 7 prósent á einu
ári en það þýðir að byggðir
hafi verið 189 bústaðir.
Keppt um
besta nafnið
Samkeppni er hafin um
nafn á sameinað sveitarfélag
Húsavíkurbæjar,
Kelduneshrepps,
Öxarfjarðarhrepps
og Raufarhafnar-
hrepps. Valin verða
fimm nöfn og þau
send Ömefnanefnd
til umsagnar. Síðan
kjósa íbúamir um
nafn. Nafiiið má ekki vísa til
núverandi heita sveitarfélag-
anna. „Verði margir með til-
lögur að sama nafni verður
nafii verðlaunahafans dregið
úr hópnum," segir á raufar-
hofrt.is.
Horfir jjú á
ólympiuleikana ?
Hilmar Björnsson,
framkvæmdastjóri Skautahallar
Reykjavlkur.
Já, ég geri það. Reyni samt að
varast að sökkva ofdjúpt. En
ég hefrosalega gaman af
sklðagöngu, hokkli og fleiru.
Svo ersklðadrottningin okkar
að standa sig vel. Það er hið
besta mál. Annars er ótrúlegt
að þegar maöur byrjar að setj-
astyfír ólympluleikana þá
verður krullan jafnvel
skemmtileg. Enda er þetta
grein í miklum uppvexti. Bæði
á Akureyri og hjá okkur."
Hann segir / Hún segir
Já, svona aðeins. Þegar ég sit
fyrir framan sjónvarpið á
kvöldin. Hefséö ýmislegt, ís-
hokkí og fleira. Svo finnst mér
skautarnir mjög skemmtilegir.
Hef aðallega verið að fylgjast
með þeim. Þau eru svo góð á
skautunum að ég horfí aðdá-
unaraugum á skjáinn. Ég gæti
aldrei gert þetta. Hefekki þess-
armjúku hreyfingar. *
Anna Bryndfs Blöndal,
fyrirliði Stjörnunnar I handbolta.
Idol-kyimir, aufimaður ug
löggan í stæfium fatlafira
I kjölfar birtingar Ijósmynda af bíl Hannesar Smárasonar, for-
stjóra FL Group, sem lagt var í stæði fyrir fatlaða fór af stað um-
ræða um þá ótal alheilbrigðu einstaklinga sem leggja í stæðin.
DV stendur nú fyrir átaki gegn þessum óprúttnu einstaklingum
og hvetur lesendur sína til að taka myndir af bflum sem lagt er
ólöglega í stæðin. Þeir sem hafa leyfi til að leggja í þessi sér-
merktu stæði eru með merki í framrúðum bfla sinna.
„Ég hef sjálfur fengið sekt,“ segir
Ragnar Gunnar Þórhallsson, for-
maður Sjálfsbjargar, um bflastæði
ætluð fötluðum. Hann hafði þá sjálf-
ur gleymt að setja merki, sem sýnir
að hann hafi leyfi til að nota stæðin,
í framrúðuna á bfl sínum.
öllum þeim bflum sem ekki hafa
slíkt merki er lagt ólöglega í stæðin
og ætti, samkvæmt lögum, að sekta
eigendur þeirra.
Gerist aftur og aftur
„Það eru til óteljandi atvik þar
sem fatlaðir einstaklingar hafa hætt
við að fara á einhvern stað vegna
þess að þeir fengu ekki stæði," segir
Ragnar Gunnar.
„Það er alltaf að koma fyrir og þá
sérstaklega í miðbænum. Þegar
stæðið er mjög langt frá þeim stað
þar sem viðkomandi á erindi treyst-
ir hann sér ekki til þess að fara og
svo framvegis. Svo þetta er sífellt að
koma upp,“ segir Ragnar Gunnar.
Idol-kynnir og löggan
í kjölfar átaksins sem hófst
síðastliðinn mánudag hafa DV bor-
ist þrjár ljósmyndir af bflum sem
lagt var í stæði merkt fötluðum án
þess að hafa merkingar í framrúð-
unni.
Fyrsta myndin sem barst DV er af
engum öðrum en Sigmari Vilhjálms-
syni, betur þekktum sem Simma í
Idol, á bfl sínum. Hann virðist hafa
verið á hraðferð og lagði því í stæði
fyrir fatlaða. Myndin er tekin af hon-
um þegar hann bakkar úr stæðinu.
Myndin er tekin fyrir utan vinnustað
Sigmars í Skaftahlíð.
önnur myndin sem barst DV er
af lögreglubfl en sá sem sendi hana
fullyrti að lögreglan hefði ekki verið
að sinna neyðarútkalli en lögreglan
hefur einmitt leyfi til þess að leggja
hvar sem er í neyðartilvikum. Mynd-
in er tekin af lögreglubflnum fyrir
utan varahlutaverslun í Reykjavík.
Lúxusjeppi
Þriðja myndin sem barst DV er af
forstjórajeppa af gerðinni Porche
Cayenne en honum er lagt í stæði
merkt fötíuðum. Sá sem sendi hana
sá engar merkingar í framrúðu
lúxusjeppans sem gátu gefið til
kynna að eigandi hans væri fatíaður.
ökumaðurinn, Þórarinn Ragn-
arsson athafhamaður kenndur við
Staldrið, staðfesti það í samtali við
DV að hann væri ekki fatlaður og að
honum hefðu yfirsést merkingamar.
„Ég hef nú bara ekki tekið eftir
merkingu, því miður. Mér þykir
þetta mjög miður, ég verð að kanna
þetta. Ég legg oft héma í kjallaran-
um. Ég er með skrifstofu í húsinu og
legg iðulega þarna niðri. Mig gmnar
að skiltíð sé nýtt," sagði Þórarinn
Ragnarsson.
„Maður gerir þetta aldrei.
Ég er búinn að vera með
> urbiáu
stæðunum
Hvernig erbestad
senda myndina?
Best er að senda myndina á staf-
rænu formi og notast við tólvupöst.
Netfangið er ritstjorn@dv.is en
einnig er haegt að senda Ijosmyndir
i posti. Heimilisfangið er Skaftahlíð
24, 105 Reykjavik.
skrifstofu í húsinu í átta ár og þetta
er bara slys," sagði Þórarinn enn
fremur'.
Myndin var tekin í bflakjallara
verslunarmiðstöðvarinnar
Fjarðarins í Hafnarfirði
um hádegi í gær.
DV ætíar að halda
áfram átakinu gegn
ökumönnum sem
leggja ólöglega í
stæði fatíaðra og
hvetur lesendur sína
til að senda myndir af
bflunum og við munum
síðan birta þær.
Þórarinn
Ragnarsson
Segist ekki hafa
tekið eftir merk-
ingunum og
þykirþetta mjög
miður.
Fékk 12 mánuði fyrir stórfellda líkamsárás og tilraun til vopnaðs ráns
Sagði fórnarlambið með sífelld leiðindi
Jörundur Ármann Ásgrímssson,
26 ára Vestmannaeyingur, var í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í
12 mánaða fangelsi, meðal annars
fyrir lífsógnandi líkamsárás og til-
raun til vopnaðs ráns. Brotin, sem
Jörundur játaði öll, vom framin
seinni part ársins 2004.
Líkamsárásin sem Jörundur
í vetur
Ný tæki - Betra verð!
SLENDKRTONE jm ■■ kr.
MAK 17.900.-
SLKNDERTONE * jm .
Hfx 12.900.-
..allLiynLkfoppinn
HREYSTI
framdi var sérlega ógnvekjandi. Eftir
útistöður við mann á skemmtistaðn-
um Comero í Vestmannaeyjum dró
hann upp keðjuhlekk sem breytt
hafði verið í hnúajám. Hnúajáminu
smeygði Jömndur á hönd sína og
greiddi svo fómarlambi sínu heljar-
innar högg á vangann. Við þetta
kjálkabrotnaði maðurinn auk þess
sem nokkrar tennur losnuðu í hon-
um. Flytja þurfti manninn til aðgerð-
ar í Reykjavflc vegna áverkanna. Að-
spurður í héraðsdómi um tilefni
árásarinnar svarði Jömndur að mað-
urinn sem hann réðst á hefði verið
með honum til sjós og sífellt verið
með „leiðindi", eins og Jörundur
komst að orði.
Jömndur var einnig dæmdur fyrir
tilraun til að ræna söluturninn
Lukkustjömuna við Langholtsveg í
október 2004. Við tilraunina hafði
Jömndur með sér eldhúshníf sem
hann otaði að afgreiðslustúlku í sama
Jórundur Ármann
Asgrímssson Huldi
andlit sitt I héraðs-
dómi. Jörundur
kjálkabraut mann
með hnúajárni.
mund og hann tjáði henni að um rán
var að ræða. Afgreiðslustúlkan hélt ró
sinni og bað viðskiptavini sem vom í
sjoppunni að hringja í lögreglu. Við
það fór Jömndur á taugum og hljóp
út. Skömmu síðar gaf hann sig fram
við lögreglu.
Jömndur hefur áður gerst sekur
um bæði stórfellda líkamsárás og
þjófnað og því um brot á skilorði að
ræða. Því þóttí Sfrnoni Sigvaldasyni
dómara rétt að dæma Jömnd til 12
mánaða óskilorðsbundinnar fangels-
isvistar. Kolbrún Sævarsdóttir flutti
málið fyrir ákæmvaldið en Guð-
mundur Ágústsson var verjandi Jör-
undar Ármanns Ásgrímssonar.
andri@dv.is