Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Blaðsíða 21
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 21
Skatturinn
kominn í mál
Mutu
Rlkisskattstjórinn í Rúm-
eníu er farinn aö rannsaka
kaup ítalska liðsins Inter-
nazionale á rúmenska fram-
herjanum Adrian Mutu ffá
Dinamo Búkarest árið 1999.
Mutu sem spilar
nú með Juventus
en var áður í her-
búðum Chelsea
var keyptur á sex
milljónir evra en
rúmenska félagið
gaf aðeins upp
kaupverð upp á
2,1 milljón evra.
Skatturirm hefur sóst eftir
gögnum frá rúmenska knatt-
spymusambandinu sem
hefur einnig hafið sína eigin
rannsókn.
Landsbanka-
deildin hefst
14. maí
KSÍ gaf í gær út frá sér
drög að leikjaniðurröðun
fyrir Landsbankadeild karla
næsta sumar og
þar kemur í ljós að
deildin byrjar með
fjórum leikjum
sunnudaginn 14.
maí. Leikir ÍBV og
Keflavíkur í Eyjum,
Víkings og Fylkis á
Víkingsvelli og
Grindavíkur og ÍA
suður með sjó hefjast allir
klukkan 14.00 þann dag en
klukkan 20.00 leika KR og
FH á KR-velli. Umferðin
klárast síðan daginn eftir
þegar Breiðablik og Valur
mætast á Kópavogsvelli
klukkan 20.00.
Clipperssæk’
irsérreynslu-
bolta
Los Angeles Clippers
hefur samið við framhexj-
ann Vin Baker sem hefúr
verið án liðs síðan hann
yfirgaf Houston Rockets
eftir 2004-2005 tímabilið.
Baker er 34 ára og hefur
skorað 15,1 stigogtekið
7,5 fráköst 1783 NBA-
leikjum. Hann var með-
limir í ólympíuliði Banda-
ríkjanna sem vann gull í
Sydney 2000. Mike Dun-
leavy, sem nú þjálfar
Clippers, var einmitt
þjálfari Milwaukee Bucks
sem valdi Baker í nýliða-
valinu 1993 og ætlar sér
greinilega að ná sér í
meiri reynslu í liðið.
Víkingurvann
upphitunar-
leikinn
Víkingar unnu 1-0 sigur á
Fram í fyrsta leik liðanna í
deildabikamum um helgina
en þessi lið spila einmitt úr-
slitaleikinn um Reykjavíkur-
meistaratitilinn 2. mars næst-
komandi. SigurmarkVfldnga
kom strax á fjórðu mínútu
leiksins og það skoraði hinn
18 ára bráðefnilegi Þorvaldur
Sveinn Sveinsson
með stórglæsilegu
skoti yfir utan teig.
Vfldngar em tap-
lausir undir stjóm
Magnúsar Gyífason-
ar og hafa ekki feng-
ið á sig mark í 293
mínútur.
Greinilegt er að Skagamenn ætla að koma afar sterkir til leiks í vor þegar
keppni í Landsbankadeild karla hefst á nýjan leik. í gær var gengið frá því að
Bjarni Guðjónsson gengi til liðs við félagið og spilaði með þvi næstu fjögur árin.
Bjami Guðjónsson hefur ákveðið að ganga til liðs við Lands-
bankadeildarlið ÍA og hafa báðir aðilar samþykkt íjögurra ára
samning. Bjami segir í samtah við DV Sport að þegar öll
formsatriði hafi verið frágengin hafi aldrei neitt annað komið
til greina en að spila með Skaganum, þar sem hann er uppal-
inn. Hann segir þetta skref, að snúa heim úr atvinnumennsk-
unni 27 ára, rétta skrefið fyrir sína framtíð.
„Jú, þetta er skref í rétta átt fyrir
mig," sagði Bjarni við DV Sport í
gær. „Það vita allir að það er erfið-
ara að vera atvinnumaður í fótbolta
á Englandi en að spila á íslandi en
þetta er rétt skref fyrir mína fram-
tíð," bætti hann við. Eins og fram
kom í viðtali við Bjarna 16. febrúar
síðastliðinn þótti honum sá kostur
mest spennandi að halda heim á
leið með fjölskyldu sinni og leggja
stund á háskólanám meðfram
knattspymuiðkun. Eitthvað mjög
spennandi þyrfti að koma upp á
borðið til að fá hann í heim at-
vinnumennskunnar á ný.
Sterkar taugar
„Fyrst ég get komið heim og
byrjað að mennta mig lít ég mjög
jákvæðum augum á þetta. Þessi
ákvörðun var tekin að mjög vel at-
huguðu máli innan fjölskyldunnar
og ég er þar að auki mjög þakklátur
því að geta spilað með ÍA á nýjan
leik. Ég hef miklar og sterkar taugar
til félagsins og eftir að ljóst varð að
hægt var að ganga frá samningum
kom ekki annað til greina en að
spila með Skaganum," sagði Bjami.
Hann hittir fyrir bróður sinn
Þórð, sem einnig sneri heim úr at-
vinnumennskunni í vetur. Þá hefur
Arnar Gunnlaugsson, hinn gamli
félagi þeirra, einnig komið aftur á
heimaslóðir og því útlit fyrir að
Ólafur Þórðarson, þjálfari liðsins,
geti stillt upp mjög öflugu liði á ís-
landsmótinu í sumar. Bjarna lánað-
ist þó aldrei að spila með þeim
Þórði og Arnari í Skagabúningnum
en það stendur þó vitanlega til bóta.
Komu fagmannlega fram
Bjami hafði rætt við önnur lið á
undanfömum dögum og vikum en
alls vom sjö lið á höttunum eftir
honum. „Flest þeirra stóðu mjög
vel að sínum málum.
Komu mjög fagmann-
lega fram og eiga heiður
skilinn fyrir það," sagði
Bjarni. Aðspurður seg-
ist hann þó eiga erfitt
með að leggja dóm á
hversu mikið eða lítið
íslenska knattspyman
hefur breyst í átta ára
flarvem hans. „Ég
spilaði aðeins eitt
heilt tímabil - árið
1996 og svo nokkra
leiki sumarið áður og
eftir það. Þá fékk ég
aðeins mína bónusa
og áttu sér aldrei
neinar samningaviðræður stað. Ég
á því erfitt með að dæma um hvem-
ig bæði fótboltinn og landslagið allt
hefur breyst. En ég hlakka þó mikið
til enda gekk vel hjá ÍA síðast þegar
ég var þar og er ekki spurning um
að setja stefnuna á fleiri titla á
næstu árum."
Bjami flytur heim strax á föstu-
daginn og segist ætía að nota dag-
inn í dag og á morgun til að ganga
frá búslóðinni en
hann og fjölskylda
hans býr í
Plymouth í suður-
hluta Englands.
„Við höfum flutt að
meðaltali á átján
mánaða fresti síð-
ustu átta ár og því
komin með smá
reynslu í þessu,"
sagði hann og hló.
eirikurst@dv.is
DV 76. febrúar
Marki fagnað fyrir tæpum
tfu árum Bjarni Guðjónsson
sést hérfagna einu af ISmörk-
um sínum fyrirÍA 125 leikjum
hans í úrvalsdeildinni á ístandi.
DV-mynd BrynjarGauti
<►»
¥
m:
-«v
. 4
Ég hefmiklar og
sterkar taugar til
félagsins og eftir
að Ijóst varð að
hægt var að ganga
frá samningum
kom ekki annað til
greina en að spila
með Skaganum
Bjarni eltir Þórð bróður sinn í þriðja skiptið á ferlinum
Hann getur ekki án mín verið
„Ég er auðvitað í skýjunum vegna
þessa," sagði Þórður Guðjónsson,
bróðir Bjarna, sem í gær ákvað snúa
aftur á heimaslóðir og spila með ÍA
kLI-' " A Kl k‘:
Þórður Guðjónsson
Hæstdnægður með
Bjarna bróður sinn.
-M-
næstu fjögur árin. Þórður sneri sjálf-
ur heim úr atvinnumennskunni fyrr
í vetur og munu þeir bræður því
spila saman í Skagabúningnum í
fýrsta senn á sínum ferlum. „Ég
reyndi að tala hann eins mikið til og
ég mögulega gat,“ sagði Þórður í
léttum dúr um hans áhrif á ákvörð-
un Bjarna.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem
Bjarni gengur til liðs við félag sem
Þórður er þegar á mála hjá en slíkt
var tilfellið bæði hjá Genk í Belgíu og
Bochum í Þýskalandi. „Hann fylgir
mér hvert sem ég fer - getur greini-
lega ekki án mín verið," sagði Þórður
og hló. Þar að auki hafa þeir bræður
spilað 1 íslenska landsliðinu ásamt
þriðja bróðurnum, Jóhannesi Karli,
sem er nú einn þeirra þriggja bræðra
eftir í ensku 1. deildinni. Hann söðl-
ar þó um í sumar og gengur tfl liðs
við hollenska úrvalsdeildariðið AZ
Alkmaar.
Þórður segir mjög bjarta tíma
fram undan á Skaganum. „Við vor-
um mjög bjartsýnir fyrir og koma
Bjama ýtir enn undir þá trú okkar,"
sagði Þórður.
Ólafur Þórðarson, þjálfari liðsins,
tók í svipaðan streng. „Bjarni kemur
til með að styrkja hópinn mikið og
ég á ekki von á öðm en að við ættum
að geta gert mjög góða hluti í sumar.
Það má þó ekki gleyma því að við
höfum misst tíu leikmenn á síðast-
liðnum tveimur vetmm og liðið hef-
ur borið keim af því. Það tekur
auðvitað ákveðinn tíma að smyrja
saman nýtt lið en það er þó gott að
Bjarni til dæmis hefur æft með okk-
ur stundum á sumrin og þekkir
þessa stráka. Og allir þrír - Bjarni,
Þórður og Arnar - hafa unnið bikara
með Skaganum og vita hvað þarf til.
Það er mikilvægt og koma þeirra
mikið fagnaðar-
efni fyrir
stuðnings-
menn ÍA,“
sagði Ólafur.
eirikurst@dv.is