Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 Flass DV Nýja Zelda- leiknum seinkar Það er greinilegt að söguhetjan Hlekkur, eða Link mun ekki þurfa að setja á sig grænu kollhúfuna nærri því strax. Leikurinn átti að koma út t vor en nú hefur verið ákveðið að hann komi í haust á tölvuna Gamecube. Margir héldu að leikur- inn kæmi út á Nintendo Revolution, sem er væntanleg tölva frá Nintendo mönnum, en þessu neita forstjórar Nintendo og lofa því að leikurinn verði fyrst um sinn aðeins fáanlegur á Gamecube. Ævintýraleikirnir um Zeldu eru þeir vinsælustu frá upp- hafi og hafa þótt skara fram úr á sviði ævintýraleikja allt frá tímum upprunalegu Nintendoleikjanna. Lost Planet á leiðinni fyrir 360 Framtíðarskotleikurinn Lost Planet kemur út innan árs. Beðið hef- ur verið eftir leiknum með mikilli eftir- væntingu, að- allega vegna þess að fyrir- tækið Capcom sem gefur leik- ina út á eftir að gefa úttölvu- leik fyrir nýja kynslóð leikjatölva. Þegar hafa þeir tilkynnt að leikirnir Dead Rising, Street Fighter 2 Hyper Fighting og Resident Evil séu á leið- inni, en þeir koma ekki út nærri því strax. Leikurinn Lost Planet gerist í geimnum, þar sem bandarískir her- menn rekast á heldur leiðinlega Öflugri tölvu- leikjaumfjöllun Hér eftir verða DV-tölvuleikir viku- legur liður í blaðinu. Tölvuleikir eru nú orðnir ein vinsælasta afþrey- ingin og því um að gera að fjalla meira um þá. I þessum vikulega lið verður fjallað um væntanlega tólvuleiki og birt gagnrýni um þá auk frétta úr tölvuleikjaiðnaðinum. Allir þeir sem hafa einhverjar skemmtilegar ábendingar um tölvuleiki eða annað þeim tengt geta haft samband annaðhvort á ristjorn@dv.is, eða dori@dv.is. Tölvuleikurinn The Godfather, The Game er væntanlegur. Leikurinn er gerður eft- ir kvikmyndunum og fara spilarar í hlutverk manns sem þarf að vinna sig upp inn- an Corleone-glæpafjölskyldunnar. Tölvuleikir hafa sjaldan litið jafn vel út. Tölvuleikurinn, The Godfather The Game er væntanlegur fyrir Playstation 2, Xbox, Pc og PSP í byrj- un marsmánaðar. Beðið er eftir leiknum með mikilli eftirvæntingu, enda segja fróðir menn að þama sé leikur ársins á ferð. Leikurinn er framleiddur af Electronic Arts, sem hafa áður framleitt vinsæla íþrótta- leiki á borð Fifa, Fight Night og NBA Live. Leikurinn kemur til íslands þann 23.mars ef ekkert kemur upp á. Velkominn í Corleone fjöl- skylduna Aðalpersóna sögunnar hefur stundað glæpi í mörg ár og hefur nú loks verið hleypt inn í alræmdustu glæpasamtök Bandaríkjanna, Cor- leone-fjölskylduna. Persónan þarf að hlýða skipunum og öðlast virð- ingu, en aðeins þannig er hægt að klífa metorðastigann í glæpaheim- inum. Að lokum, ef allt gengur að óskum verður maður sjálfur Don, eða foringi fjölskyldunnar. Leik- urinn er að mestu leyti byggður á bókinni, Guðfaðirinn eftir Mario Puzo en auðvitað hefur fleiru verið bætt inn. Höfundurinn Mark Winegardner, sem skrifaði bókina The Godfather Returns, var sá sem bætti við söguþráðinn, svo það er við miklu að búast. Ofbeldi, glæpir og skipulag Leikurinn býður upp á ótal val- möguleika. Leikmenn þurfa því ekki alltaf að fylgja ákveðinni leið til þess að leysa verkefni, heldur bjóð- ast margir valmöguleikar. Sumir kjósa að leysa sín vandamál með ofbeldi, en aðrir nota kannski nota skipulagni og útsjónarsemi eða jafnvel blöndu af hvoru tveggja. Verkefnin eru jafn mismunandi og þau eru mörg, hvort sem það eru leigumorð, bankarán, skotárásir, fflcniefnasala eða fjárkúgun. Eftir að aðalhetjan hefur áunnið sér ótta- blandna virðingu, fara hlutirnir að ganga betur, því þá eru aðrar per- sónur samvinnuþýðari. Talsettur af upprunalegu leik- urunum í leiknum má finna flestar persón- umar úr kvikmyndunum. Sömu leik- arar og þar léku hlutverkin sjá um tal- TÖUIULEIKURINN BIHPIRINN UTUR VIRKILEGA VEL UT The Godfather Graf Ikin til fyrirmyndar. Fróðir menn segja að þarna sé á ferðinni tölvuleikur ársins. Guðfaðirinn Ein frægasta kvikmynd sem gerð hefur verið. setningu og náði meira að segja Mar- lon Brando að ljá Don Vito Corleone rödd sína skömmu fyrir andlát sitt. Að sama skapi er það James Caan sem talar fyrir hinn skapvonda Sonny Cor- leone og Robert Duvall sem er hinn ráðagóði Tom Hagen. í leiknum er einnig að finna verkefni sem tekin eru beint upp úr kvikmyndunum og eru allar upprunalegu glæpafjölskyldum- ar mættar. Persónusköpun í hámarki í leiknum þurfa leikmenn að búa til eigin persónu og fá að ráða útíiti hennar og persónuleika alveg. Leik- urinn hefur svo svakalega gervi- greind og geta því allar gjörðir leik- mannsins haft áfirif seinna. Til dæmis gæti maður þurft að fá upp- lýsingar hjá persónu, sem þráast við að láta mann fá þær vegna orð- sporsins sem leikmaðurinn hefur getið sér. Því skiptir hver einasta að- gerð leikmannsins máli, hvort sem það er að kýla saklausan vegfaranda eða lenda í árekstri á bíl. dori@dv.is Aladdin með geðklofa verður að drepa óvini til þess að fylla lífið jafitóðum. Með þessu verður erf- iðara og meira stressandi að leysa þrautir þar sem tíminn er naumur. önnur nýjung í leiknum em svokölluð „Speed Kills" en þau gefa þér tækifæri til að drepa óvinina á skömmum tíma án þess að missa mikið af lífi. Til þess að nota „Speed ldlls" þá verðurðu að laumast að óvin- inum og ýta á rétta takka á rétta augnablikinu. Tónlistin í leiknum er frábær og passar við spflun leiksins og umhverfi hans ásamt því sem að raddir Prinsins og annarra í leiknum em flottar. í heildina: Frábær leikur með góðri grafik sem býður upp á fjölbreytta spilun og skemmtilega bardaga. Atli Már Gylfason Prince of Persia: The Two Thrones er þriðji leikurinn og jafnframt síðasti leikurinn í Sands of Time þríleiknum en söguþráöur leiksins er beint fram- hald af leik númer tvö sem hét Warri- orWithin. Prinsinn snýr aftur til Babylon með kæmstu sinni og sér að konungsdæmi hans er í ljósum logum og hinn illi vesír hefúr snúið aftur. Leiknum svipar til God of War sem er minn uppáhaldsleikur í PS2. Þú leysir þrautir í umhverfi þínu, opnar og brýtur hurðir, slæst með hinum ýmsu vopnum ásamt því að geta klifrað og hlaupið upp veggi. Leikur- inn býður upp á mikla og fjölbreytta spilun sem enginn leikjaunnandi ætti að láta fram hjá sér fara. Eitt af því nýja í leiknum er geðklofi áfram í leiknum. prinsins. Öll geðveikin sem prinsinn hefur þurft að ganga í gegnum fer að segja til sín og áður en hann veit af þá breytist hann í Myrkraprinsinn sem er, eins og áður sagði, nýr fídus í leikn- um. Og auðvitað er munur á því að spila „góða" og „vonda" prinsinn en þegar þú ert hans dökka hlið þá minnkar líf þitt smátt og smátt en þú Prince ofPersia. The Two Thrortes PS2/Slagsmálaleikur og kærtska Ubisoft ★★★★ . Tölvuleikir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.