Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Blaðsíða 25
r Lífsstíll
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 2S
Helena Hólm
hárgreiðslumeistari
Líf-
laust
hár get-
ur staf-
að af
veik-
indum,
vöðva-
bólgu, slæmu mataræði
streitu og röngu vali á hár-
snyrtiefnum. Líflaust hár getur
jafitvel verið afleiðing veðráttu
eða vegna hormónatruflana í
líkamanum eða eftir barn-
eignir. Líflaust hár vantar oft
þykkt og gljáa en hægt er a ð
velja sjampó sem gefa fyllingu.
Einnig eru komin á markaðinn
ýmis góð hársnyrtiefni sem
þykkja hárið. Ég vil ráðleggja
þeim sem finna fyrir slíku að
taka inn vítamín fyrir hár og
neglur og þaratöflur eða B-
Býr yfír töframdBtti
Didda Jónsdóttir rithöfund-
urerfædd 29.11.1964
Llfstala er reiknuð út frá fæðing-
ardegi. Hún tekur til eiginleika
sem eiga öðru fremur að móta
lífviðkomandi.
Lífstalan Diddu er sex
Eiginleíkar sem tengjast þessari tölu
eru-.Ábyrgð, vernd, næring, samfélag,
jafnvægi og samúð - hættir tilsektar-
kenndar og ætti hún að huga betur að
því og virkja sjálfa sig þvf hún er töfra-
maður efsvo máað orði komast þvl
hún er fær um að skapa allan þann
auð sem hún þráir.
Árstalan er þristur
Árstaia Diddu erreiknuð út frá fæðing-
ardegi hennar og llðandi ári.Húnáað
gefa vlsbendingar um þau tækifæri og
hindranirsem árið færir okkur. Ríkj-
andi þættir I þristinum eru: Félagslegir
sigrar, sköpun og velgengni.
Br.iv?:- -Ajtz ' I Hfl
ÍiMÍl
Duglegur og
skipulagður
Izudin Daði Dervic er 43 ára í dag
22. febrúar.
„Þrátt fyrir miklar annir og oft á tlðum stress virð-
ist hann ná endum saman með skipulagi, krafti
og óbilandi dugnaði. Ufhans einkennist afhraða
sem er afhinu góða efhann gefur sér tlma fyrir
eigin þarfir. Hann er oft á tlðum viðkvæmur en
hugmyndarlkurþó þarsem rómantíkin rlkir.
Uppfínningasamur og ástrlðufullur gagnvart
þeim sem hann elskar“
Steinunn Ósk á Mojo „Það er
“* alltaf viss hópursem er tillað
prufa sig áfram en hin hefðbunda
Jlslenska kona þarf á ýtni að halda
tilað þora að gera eitth vað nýtt. “
mœmmmmmmmKimammmafflmsMmm
Stutt í hnakkann
en sítt að aftan
„Það er mikið um mjúka tóna
og rómantík en klippingin fer eftir
því hvort þú vilt vera með sítt eða
stutt," segir Steinunn Ósk
Brynjarsdóttir, hárgreiðsludama á
Mojo, er hún er spurð út í hártísku
hjá ungum konum. „Það sem
kemur mikið inn núna kallast
„bob“ en þá eru konur með stutt í
hnakkann en síðara að framan.
Eins eru krullumar mikið inni og
þá em klippingarnar látnar ýkja
kruUumar enn meira. Þetta slétta
er samt ekki alveg horfið en nú er
hárið frekar slétt en með fyllingu,“
segir Steinunn og bætir við að
toppamir séu að þyngjast. „í haust
var mikið rokk og nagað. Topp-
arnir vom svona nagaðir niður, í
dag em hins vegar flestir að safna
þeim aftur." í litunum segir Stein-
unn karmelluna heita. „Allt sem
heitir karmella, hlýtt, gyllt og
mjúkt er í gangi en hins vegar er
lítið af skörpum línum. Allt á að
vera svolítið náttúrulegt. Þegar
nær dregur sumrinu blandast svo
ljósar strípur enda em allir sól-
kysstir á sumrin."
Steinunn segir tískuna afar
skemmtilega f dag. „Áður varstu
annaðhvort með sítt eða stutt en
nú máttu leika þetta af fingrum
fram eftir þinni hárgerð. Það er
alltaf viss hópur sem er til í að
prófa sig áfram en hin hefðbunda
íslenska kona þarf á ýtni að halda
til að þora að gera eitthvað nýtt.“
Hrúturinn (2t.mrs-t9.Q
Sigurmerki einkennir hér
stjörnu hrútsins en hér kalla aðstæður
á varkárni (á við óhóf jafnvel). Fram-
haldið fer fram úr björtustu vonum ef
þú heldur fast (jafnvægi þitt.
NaUtið (20. aprll-20. maí)
Persónulegar stundarþarfir
þínar knýja oft á hérna af slíkum hraða
og krafti að þú gleymir öllum sem í
kring um þig eru. Óþolinmæði þín birt-
ist hér þegar stjarna þín er skoðuð sem
segir að hugsanlega fleytir þú þér of
hratt í gegnum lífið þessa dagana.
Hægðu á þér.
Tvíburamirei. mai-21.júní)
Stundum birtist þú viljalaus
eða óákveðin/n en hér kemurfram að
þú átt það einnig til að vera mjög
sterk/ur og til bardaga búin/n.Talaðu
hreint út og segðu hug þinn og ekki
síðurtilfinningar.
Ktábblm (22. júní-22.júlí)
Þú stendur eflaust frammi fyrir
þeirri spurningu,hvernig er hægt að öðl-
ast betra sjálfsálit? Skilgreindu hvers þú
þarfnasttil að renna stoðum undirjá-
kvæðu eiginleikana í fari þínu og öðlast
skilning á því sem gefur lífi þínu gildi.
LjÓnÍð (23.júli- 22. ágúst)
Þú ert án efa besti vinur,
vinnufélagi, trúnaðarvinur og maki ef
því er að skipta en þar verður traust að
ráða ríkjum ef upp skal ganga. Um
þessar mundir leitar þú eflaust að sam-
bandi sem býðurspennu af einhverj-
um ástæðum en ættir að huga vel að
eigin löngunum áður en framhaldið
verður ákveðið.
Meyjan (22. ágúst-22. sept.)
Ef streitutilfinning háir þér
ættir þú að endurmeta áherslur þínar
hið fyrsta og ákveða hvað þú ert fær
um að gera og ekki síst hvað þú kýst
að gera þegar hjarta þitt lætur þig vita.
Vogin (23.sept.-23.okt.)
Ef þú hefur unnið lengi að
verkefni sem verður þér ekki til hags-
bóta ættir þú að einbeita þér að öðru.
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n6v.)
Skildu efnishyggju þína og
settu þér takmörk af ákveðni. Næstu
dagar sýna viðurkenningu á einhvern
máta.
o
Bogmaðurinn (22.n6v.-2t.des.)
Ef marka má stjörnu bog-
manns ert þú greinilega (góðu jafn-
vægi þessa dagana og færð vissulega
jákvæða útrás þegar starf þitt er annars
vegar. Hér kemur Kka fram að þú helg-
ar þér vinnu þinni og skyldum en ættir
aldrei að gleyma þínu næma innsæi.
Steingeiting2<te.-».jiiBj
Ef þú finnur fyrir þyngslum
þegar tilfinningar þínar eru annars veg-
ar þessa dagana ættir þú að kveðja
þennan óvin hið fyrsta. Þú ert fædd/ur
undir svokölluðu jarðarmerki dýra-
hringsins sem segir þig vera mjög
næma/n fýrir orðum þeirra sem eiga
hlut (hjarta þínu.
SPÁMAÐUR.IS
©Vatnsberinn (20.jan.-ts. febrj
Þú ert rétt að hefja spenn-
andi ævintýri sem mun efla líðan þína
og ekki síður viljann til að sigra.
©Fiskarnir f79. febr.-20. mars)
Þú býrð yfir eiginleikum sem
koma þér að góðum notum þegar
kemur að mannlegum samskiptum en
stjarna fiska stendur jafnvel frammi fyr-
ir ákvörðun sem tengist framtíð hennar
til langs tíma.
Ráð við líflausu hári
„Mér finnst síddin farin að stytt-
ast hjá yngri konum. Þær eru komn-
ar með millisídd og jafnvel styttur,“
segir Svandís Ósk Helgadóttir hár-
greiðsludama á hársnyrti-stofunni
Flóka í Hafnarfirði. Svandís Ósk
segir hártískuna afar fjölbreytta.
„Hún fer mikið eftir týpunni, það er
ekkert eitt í gangi. Þó er mikið af lið-
um og bylgjum og það er um að
gera að hafa þetta svolítið villt. í lit-
unum er einnig allt í gangi. Rauði
liturinn hefur verið vinsæll, margir
vilja prófa en það þora ekki allir. Ég
hef mikið verið að leika mér með
skugga í endann án þess að hafa
það afgerandi. Annars finnst mér
voðalega gaman að blanda litum
saman og leika mér aðeins í þessu,“
segir Svandís Ósk og bætir við að
hún viti ekkert skemmtilegra en
þegar hugrakkar týpur komi í stól-
inn til hennar og biðji um allsherjar
breytingu. „Það er skemmtilegast
að vinna með hnífinn því þá skap-
ast ekki þetta nýklippta útlit heldur
verður útkoman mun röffaðri."
Svandís Ósk segir eldri konur
einnig frjálslegar. „Þær eru oft
kaldari að breyta til. Þær hafa samt
hárið aðeins meira í
styttri kantinum og eru
oft með töff klipp-
ingu. í sumar held ég
að það verði mikið
um bylgjur og liði og
þá er um að gera að
notfæra sér þessi ________________
bylgjujárn sem fást. Einnig
verður ábyggilega mikið um hár-
lengingar enda alltaf vinsælar á
sumrin. Þá er ég ekki að tala um
brjálaða lengingu heldur aðeins að
bæta í síddina."
n——www
ílssti
OTUT
vítamín. Vænlegast er að fara á
hársnyrtistofu og fá góða
djúpnæringu og gott
höfúðnudd til að örva blóð-
streymi til hárrótanna.
Marktæk ráð
Það er gott að setja glans-
skol í hárið því það gefur hár-
inu meiri þykkt, fyllingu og
gljáa en mikilvægt er að passa
að velja lit sem er næst háralit
hvers og eins. Ekki er gott að
nota heimaliti því ef viðkom-
andi hefur fíngert, þunnt hár
ætti sá hinn sami að leita frek-
ar til fagaðila. Svo er gott ráð
er að nota sjampó sem eru
mild og ekki nota of heitt vatn
þegar hárið er þvegið.
Hvað skal varast
Vertu viss um að hárvör-
urnar sem þú notar innihaldi
ekki glyserine (olíusætu) eða
silicone og einnig er gott að
hafa í huga að nudda ekki
sjampóinu fast heldur með
léttum hringlaga hreyfingum.
Skola síðan hárið með frekar
köldu vatni. I síðasta skolvatni
er um að gera að setja froðu
eða blástursvökva í hárið því
það gefur áberandi mikla fýll-
ingu. Svo að lokum er gott að
nota svokallaða „leave in“
næringu því hún verndar hár-
ið fyrir veðri, hita og sléttu-
jámum.
Svo er um að gera að velja
ávallt klippingu sem gefur
hárinu lyftingu og gerir það líf-
legra.
Kveðja, Helena Hólm
Tjásur, strípur og toppar
Svandís Ósk hjá Flóka „Það er
skemmtilegast að vinna með hnífinn því
þá skapast ekki þetta nýklippta útlit
heldur verður útkoman mun röffaðri."