Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Síða 10
1 0 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Friðrik Ómar þykir lifandi, skemmtilegur, góður söngvari og traustur vinur. Hann er kaldhæðinn, strið- inn, ákveðinn og stundum of hreinskilinn. „Hann er mjög góður við vini sína og er dug- legur að koma þeim á óvart og er sannur vin- ur vina sinna. Hann er traustur og heiðarleg- ur og er manneskja sem maður viII hafa í vinahóp sínum. Hann hefur kaidhæðinn húmor sem mér finnst svo fyndinn. Svo er hann ofboðslega hæfileikarikur og frábær söngvari. Hann er jafngóður við sjálfan sig og hann er við vini sina. Hann er mjög hreinskilinn sem getur verið bæði gott og siæmt." Regína Ósk Óskarsdóttir söngvari. „Þetta er mjög Ijúfur drengur og ágætis fag- maður, hann syngur reglulega vel. Hann er fljótur að skiia sínu verki og er vel undirbúinn, er alltafbúinn að vinna heima- vinnuna sína. Hann veit sínu viti og er vel menntaður tónlistar- maður. Hann erákveðinn og vill ná sínu fram." Ólafur Gaukur tónlistarmaöur. „Hann er rosalega dug- legur og samviskusam- ur, það sem hann gerir það gerir hann vei. Hann er mjög tifandi og skapandi og það er aldrei lognmolla í kringum hann Hann er glaður og yndis- legur strákur og góð mann- eskja. Friðrik Ómar er einn af fimm bestu söngvurum lands- ins. Hann er kaldhæðinn og stríðinn og gengur stundum of langt í striðninni. Hann er svo mikill púki og það eru ekki allir sem geta tekið stríðninni hans." María Sveinsdóttir útvarpsmaöur. Friörik ómar Hjörleifsson er fæddur á Akur- eyri 4. október 1981. Hann bjó á Dalvík uppvaxtarár sín og flutti síöan til Reykjavík- ur 2003. Hann læröi aö spila á gltar og tók þátt í söngvakeppnum nyröra. Hann gafút sína fyrstu plötu, Ég skemmti mér, á síöasta ári ásamt Guörúnu Gunnarsdóttur söng- konu. Hann er að vinna að sólóplötu sem kemur út á þessu ári. Friðrik ómar lenti I þriöjasæti í forkeppni fyrir Eurovision meö lagi sínu Fram á við. Feðgarnir Hermann Hreiðarsson og Heiðar Hermannsson hyggja á miklar fjárfest- ingar í Danmörku og þá helst í hótelum. Hermann malar sem kunnugt er gull í knattspyrnunni í ensku úrvalsdeildinni en Hreiðar faðir hans er mikilvirkur bygg- ingaverktaki sem kann að breyta gömlu húsnæði í nýtt. Hermann Hreiöarsson Hreiðar Hermannsson Hyggur á útrás til Dan- merkur með sigtið á hótel- bransann, vel studdur af syni sínum. kanpir hótel í Feðgarnir Hermann og Hreiðar Hermannsson íhuga nú alvar- lega að festa kaup á hótelinu Taastrup Park Hotel í Kaupmanna- höfn og heíja þar með útrás á danskan fasteignamarkað. Her- mann Hreiðarsson hefur sem kunnugt er leikið sem atvinnu- maður hjá enska úrvalsdeildarliðinu Charlton og fyrir löngu öðlast sess sem einn af betri bakvörðum deildarinnar. Hreiðar faðir hans er hins vegar byggingaverktaki og verið stórtækur sem slíkur. Nú síðast festi hann kaup á húsnæðinu sem hýsti Kaffi Austur- stræti auk rýmisins þar við hliðina þar sem Jónína Bene- diktsdóttir stofnaði líkamsræktar- stöð á sínum tíma. A báðum þessum stöðum verða opn- aðir veit- ingastaðir á næst- unni. Það sama gildir um veitinga- stað sem Hreiðar keypti í Lækjargötu. Hann opnar von bráðar. Fjórar stjörnur „Við Hreiðar erum í sameiningu að skoða Taastrup Park Hotel í Kaupmannahöfn. Það skýrist allt á næstunni hvort við sláum til," segir Hreiðar, faðir Hermanns. „Þetta er aðeins eitt af mörgum hótelum í Danmörku sem við höfum haft augastað á en við höfum lengi leitað að fjögurra stjömu hóteli, í góðum rekstri og góðu lagi. Þarna höfum við ef til vill fundið það,“ segir hann. Enn stærra Ekki ætla þeir feðgar að láta þar við sitja: „Við emm með enn stærra verk- efni í burðarliðnum þarna úti. Miklu stærra hótel sem þætti fréttnæmt ef við keyptum. En þeir samningar em ekki komnir eins langt," segir Hreið- ar Hermannsson. 66 herbergi Taastmp Park Hotel er í um tíu kílómetra fjarlægð frá miðborg Kaupmannahafnar; gamalt en „Við erum með enn stærra verkefni í burðarliðnum þarna úti. Miklu stærra hótel : sem þætti fréttnæmt efvið keyptum. virðulegt hótel með mikla möguleika. Tveggja manna herbergi em 39 tals- ins og önnur eru 27. Á hótelinu er ráð- stefnusalur og glæsilegur veit- ingastaður a la carte. „Nú emm við með samning- ana í áreiðan- leikakönnun því við viljum vita hvort það er í köss- unum sem lofað er,“ segir Hreiðar Hermannsson sem vill hafa vaðið fyrir neðan sig í fjárfest- ingum þeirra feðga í Danmörku. Á hon- um er að skilja að þær séu rétt að hefjast. Hermann Hreiðarsson Einn glæsilegasti knatt- spyrnumaður Islendinga fyrr og síðar. í góðu sam- bandi við föðursinn. Taastrup Park Hotel 66 herbergi, ráðstefnusaiur og fyrsta flokks veitingastaður; fjögurra stjörnu hótel. MESTA URVAL YFIRBURÐIR LANDSINS VIKUR Arnar Kristín AF GLÆSILEGUM HJÓLHÝSUM. HAFÐU SAMBAND VIÐ RÁÐGJAFA OKKAR NÚNAI www.vihurverk.is TANGARHOFÐA 1 SIMI 55 7 7720

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.