Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Blaðsíða 39
DV Síðast en ekki síst
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 39
Á RÚV að gefa upp sætaskipan
í Eurovision-keppninni?
Gætisárnað
„Nei, ég vil ekki að þeir opinberi öll sætin þvlþá
gæti þeim síðasta sárnað."
Helena Kjartansdóttir nemi.
Ríkissjónvarpið gefur aðeins út hvaða lög lentu í efstu þremur sætunum í
söngvakeppninni. Stofnunin neitar að segja í hvaða sætum hin lögin tólf lentu.
„Ég held
að það sé allt í
lagi því þá veit
maður hverjum
gekk verst og
best."
Lárus Óskar
Sigmundsson
það er
skemmtilegt
fyrir okkur og
þá sem I keppn-
inni voru."
Berglind
Harðardóttir
nemi.
„Nei, ég
held að það
skipti ekki
nokkru máli."
Sigurður
Bjarnason
nemi.
„Já,
mérfmnstþað
í lagi því ég vil
vitaþað."
Helen Valdís
Sigurðardóttir
nemi.
Ráðuneyti rassskellt
„íslendingar fá hærri
laun núna en fýrir ára-
tug, þ.e. geta flestir
keypt meira fyrir laun-
in sín núna en þeir gátu
árið 1995. Um þetta er ekki deilt.
Skattar þeirra hafa jafnframt
aukist - nema þeirra sem fá
hæstu launin. Miðað við
launavísitölu, sem mælir
hækkun launa.
Þetta hafa menn séð í rann-
sóknarniðurstöðum Stefáns
Ólafssonar, útreikningum frá full-
trúum aldraðra og fleiri hópa, í
greinum þingmanna Samfylk-
ingarinnar. Fjármálaráð-
herrann mótmælir, og
með honum Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, Guð-
laugur Þór Þórðarson og
fleiri spekingar. Ráðherrann
hefur látið sérfræðinga fjármála-
ráðuneytisins reikna út dæmi sem
virðast sýna annað, en þegar á
reynir standast ekki þær álykt-
anir sem ráðherrann dregur af
hinum sérútreiknuðum dæm-
um - sem alltaf miðast við verð-
lagshækkanir þótt launin hafi ,
sem betur fer, hækkað umfram
verðlag.“
Góð blaðamennska í Kast-
ljósi
„Að undanförnu hefur verið fjallað
um þessi skattamál í Kastljósi. Sá
þáttur hefur stundum verið gagn-
rýndur fyrir líttbærilegan léttleika
í umfjöllun um samfélags- og
menningarmál, en með
skattaumfjöllun Jóhönnu
Vilhjálmsdóttur sýna Kast-
ljósmenn að slík gagnrýni
á ekki við. Jóhanna tekur
fuUt tiUit tU röksemda
beggja aðfia í ,deUunni
en kemst að lokum að
því að gagnrýnendur
, fjármálaráðherra hafa á
réttu að standa - þ.e.
þegar miðað er við
| launavísitöluna. En
með henni er
Iffls
einmitt mæld þróun
launa. Niðurstöður
KasUjóss eru þær að
skatthlutfaU hefur
hækkað á laun 75%
íslendinga síðan 1995, mest
álægstu launin - en sá fjórð-
ungur sem skattar hafa
lækkað hjá eru hinir tekju-
hæstu. UmfjöUun Jóhönnu
er ekki lokið en hefur hing-
að til verið einkar skýr, vel
fram sett og rökstudd."
Skömm fjármálaráðuneytis-
ins
„Ekki öfunda ég sérfræðingana í
fjármálaráðuneytinu. Þeir eru
eflaust heiðarlegir og velmein-
andi menn en hafa orðið fyrir
pólitískri misnotkun og virðast
ekki komast út úrþeim vítahring
hálfsannleika sem ráðherra hefur
skipað þeim í. Sá sem samkvæmt
stjórnsýsluhefðum á að verja
starfsmenn sína er auðvitað
ráðuneytisstjórinn, en því
starfi gegnir nú dyggur
flokksmaður, Baldur Guð-
laugsson, sem er auðvitað
annara um velgengni ráðherr-
anna en heiður stjórnarráðsins.
Þegar Davíð lagði niður Þjóðhags-
stofnun á sínum tíma var svar
stjórnarliða við gagnrýni meðal
annars sú að það væri dónaskapur
að vantreysta hinum ofurfaglegu
reiknimeisturum fjármálaráðu-
neytisins.
Nú er í ljós komið að ekkert er að
marka útreikningana úr fjár-
málaráðuneytinu. Ráðherra og
ráðuneytisstjóra er ekki
treystandi til að gefa sannferð-
ugar upplýsingar af sérsviði
ráðuneytisins en halda uppi skít-
kasti í garð þeirra sem hafa tekið
af þeim ómakið. Það er svo sannar-
lega ánægjulegt að Jóhanna Vil-
hjálmsdóttir í Kastljósi Sjónvarps
skuli í nafni upplýstrar blaða-
mennsku rassskella þessa götu-
stráka úr Arnarhvoli opinerlega
kvöld eftir kvöld.“
Mörður Árnason alþingismaður ritar á mordur.is
Didda skrifar um fullorðna karlmenn sem vilja
bjarga ungum stiílkum úr nauð
Könnunarsveitir
barnaníðinga
Menn voru afhjúpaðir af einhverjum
þáttagerðarmönnum sem voru að vinna
þátt um níðinga og beittu fyrir sér upp-
diktaðri stúlkukind sem væri til í að hitta þá.
Svör þeirra við því að hafa mælt sér mót við
stúlku undir lögaldri til þess að eiga við
hana samfarir, var á þessa leið: að
þeir væru að gera könnun á því
hvort hún væri til í að fara alla leið!
Hvað þóttust þessir menn eigin-
lega vera að gera? Bjarga stúlkunni ?
Frá öðrum níðingum? Bjarga henni frá
sér sjálfri? Eða voru þeir kannski ekkert
að hugsa um að bjarga neinum, aðeins
að kanna hversu langt þeir kæmust
með hana, ósjálfráða ungmennið sem
þeir í sínum litla þrönga hugarfari
tókst að ímynda sér að réði ferð-
inni.
Níðingar af þessu tagi eru
nefnilega snillingar í að af-
sala sér allri ábyrgð á um-
hverfi sínu, hika ekki við að
láta í það skína að fómar-
lömb þeirra hafi bók-
staflega beðið þá um að
gera það sem þá
dreymir sffellt um,
jaftivel allt að því
neytt þá til þess að
stíga yfir þröskuld
aldurs og laga. En
ég er samt ekki
viss
hvort
poffusf þessir
vera að^geÍa^^i?3
sfúIkunn??FráBolíum '
wSlfe S5i
. Þeirkam.sk]ekkSrtX?
kngsa um að ÍiíSa Ífj*
nm, aðeins að^mna*11"
hversu Iangtþefr
osjalfraða ung-
*nennið...“'
þessum
níðingum Kður eins
ef graður hundur „humpar" á þeim fótinn og þeim
finnist þeir verða að taka þátt, af því skepnan vildi
það.
Ég veit að ég er ekki að koma níðingum á óvart
með að minna þá á að sjálfræðisaldursmörkin á ís-
landi em 18 ár. Það þýðir að þú sem ert orðinn
18 og yfir ert að fremja ólöglegt athæfi þegar
þú hefur kynlíf með einhverjum sem er
ekki orðinn 18 ára. Gæti hreinlega ekki
verið einfaldara, gersamlega eldrauð
öskrandi lína þama fyrir ykkur að
horfa á og fara ekki yfir.
Réttast hefði verið, hafi einhverj-
um ykkar staðið gott eitt tíl með
þessu stefnumóti, að þið hefðuð
kaUað tíl frdltrúa frá bamavemd-
amefnd tíl þess að koma með tíl
þess að hitta þessa stelpu, hafi
ykkur ekki staðið á sama um
hana.
Það er nefrúlega ekki ólöglegt
að langa eitthvað, en það get-
ur verið ólöglegt að gera
þetta sem þig langar.
lla.ri
Didda
NÝTT TÖLUBLAÐ KOMIÐ ÚT
PERSÓNULEG UMGJÖRÐ
HULDAINGIBJÖRG OG JÓN ARNAR
RÓAAANTÍK MEÐ NÚTÍMATÆKNI
HVER SKAPAR MYNSTRIN?
ÖÐRUVÍSI PARKET
MEIRA LAGT í HVERSDAGSMATINN
TRYGGÐU ÞÉR BLAÐIÐ í
ÁSKRIFT MEÐ 30% AFSLÆTTI
Á AÐEINS 489 KR.
EINTAKIÐ 0G FÁÐU VEGLEGA
GJÖF í KAUPBÆTI
ÁSKRIFTARSÍMI 550 5000 j WWW.VISIR.IS