Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2006, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006
Fréttir DV
Kona svipt
forræði barns
Hæstiréttur hefur stað-
fest að kona ein skuli svipt
forræði yfir fimm ára barni
sínu. Sagði Hæstiréttur
ljóst að þrátt fyrir að konan
hafi ekki neytt fíkniefna í
um fjóra mánuði ætti hún
við djúpstæðari persónu-
leikaröskun að stríða. „Ef
vandinn væri einungis
vímuefnavandi hefði hún
að öllum líkindum tekið á
honum fyrr, í ljósi ítarlegra
upplýsinga frá fagfólki og
endurtekinna aðvarana
barnaverndaryfirvalda, “
segir Hæstiréttur.
Milda dóm
dópsmyglara
Árni Geir Norðdahl Ey-
þórsson var í gær dæmdur í
Hæstarétti fyrir innflutning
á 800 grömmum af
hassi og 230
grömmum af
kókaíni. „Að því
gættu meðal ann-
ars að kókaínið var
fr emur veikt var
refsing hans talin
hæfilega ákveðin
tvö ár og sex mán-
uðir,“ sagði Hæstiréttur
sem þar mildaði fangelsis-
dóm Árna Geirs frá héraðs-
dómi um háift ár. Árni
hafði selt mest allt hassið
en var tekinn með kókaínið
utan við Hallgrímskirkju
eftir að hafa tekið við því af
hollenskri, einstæðri og
eyðnsmitaðri móður sem
var burðardýr og fékk eins
árs fangelsisdóm.
„Það liggur eigintega ekkert
á hjá okkur í augnablikinu,"
segir
Pálmi
Har-
aldsson fjárfestir.„Það má
segja að allt sé f sómanum
þessa stundina."
Hvað liggur á?
Steinunn Guðbjartsdóttir réttargæslumaður segir að maður af erlendum uppruna
sem ákærður var fyrir að nauðga ungri stúlku hafi ekki verið settur í farbann.
Hann hefur nú flúið land. Honum er gefið að sök að hafa byrlað stúlkunni ólyfjan
og nauðgað henni. Hörður Jóhannesson segir að það sé ekki sjálfgefið að menn
með erlendan ríkisborgararétt séu settir í farbann.
Annar sýknaður
og hinn ílúði land
„Þess var aldrei krafist að maðurinn yrði settur í farbann/' segir
Steinunn Guðbjartsdóttir, réttargæslumaður stúlku sem er fædd
1983, en maðurinn sem er ákærður fyrir að hafa nauðgað henni
flúði land áður en dómur féll í málinu.
Maðurinn er erlendur ríkisborg-
ari en bjó á íslandi þegar hin meinta
nauðgun átti sér stað. Hann var ekki
úrskurðaður í farbann þrátt fyrir að
DNA úr honum hefði fundist í leg-
göngum stúlkunnar. Annar maður
var einnig ákærður fyrir nauðgunina
en ekki tókst að sanna sekt hans
með óyggjandi hætti og var hann því
sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur
síðastliðinn miðvikudag. Mál hans
var klofið frá máli þess sem flúði.
Hittust á Ópus
Stúlkan hitti hinn sýknaða á
skemmtistaðnum Ópus í Hafnar-
stræti í miðborg Reykjavíkur í des-
ember 2004. Maðurinn sannfærði
hana um að
koma
með sér
Stúlkan kynntist mönn-
unum á skemmtistaön-
Opus.
Horður Jóhannesson
yfirlögregluþjónn Seg-
ir það ekki gefiö að menn
séu settir I farbann.
eglan
heim til mannsins sem flúði land
ásamt vinkonu hennar. Þegar þau
komu þangað gaf hann þeim kók í
glas og mennirnir reyktu gras að
sögn stúlkunnar en hún segist hafa
fengið sér einn „smók". Stúlkan seg-
ir að hún hafi fundið fyrir flökurleika
og farið inn á klósett eftir að hafa
drukkið kókið og reynt að æla. Hún
taldi að sér hefði verið byrluð ólyfj-
Margnauðgað
Stúlkan segir að hún hafi lognast
út af í sófanum. Því næst hafi hún
rankað við sér á mottu á gólfinu
nokkru síðar og maðurinn sem var
sýknaður hafi legið ofan á henni.
Hann hafi verið að hafa við hana
kynmök. Stúlkan segir að hún hafi
reynt að hreyfa sig en af einhverjum
ástæðum ekki geta
það eða
talað. Hún
segist hafa
lognast aft-
ur út af en
rankað við
sér þegar
sami maður
var að hafa
við hana
munnmök.
Næst rankaði
hún við sér inni
í svefnherbergi
og þá var mað-
urinn sem flúði
land að hafa mök
við hana, að hennar sögn. Vinkona
hennar lá sofandi í rúminu á meðan
hin meinta nauðgun átti sér stað en
varð ekki vör við neitt.
eftir því við ríkislögreglustjóra að
maðurinn sem flúði verði eftirlýstur
í Schengen-upplýsingakerfinu og á
Interpolvefnum.
valur@dv.is
Ekki alltaf farbann á erlenda
„Það er ekki gefið að lög
reglan krefjist farbanns þó
um erlenda ríkisborgara
sé að ræða," segir
Hörður Jóhannesson
yfirlögregluþj ónn.
Hann segir að ekki
sé alltaf krafist far-
banns á menn
með erlendan
ríkisborgararétt
sem séu bú-
settir hérlend-
is nenia um
beina rann-
sóknarhags-
muni sé að
ræða. Lögreglan
reynir að beita
þeim úrræðum sem
vægust eru.
Eftirlýstur af Inter-
pol
„Þetta er mjög slæmt ,
mál,“ segir Steinunn Guð-
bjartsdóttir réttargæslu-
maður stúlkunnar. Hún segir
að ekki hafi verið tekin
ákvörðun um hvort stúlkan
höfði einkamál á hendur
manninum sem var sýknaður eða
áfrýi dómnum. Dóms-
málaráðuneytið
hefur óskað
Steinunn Guðbjarts-
dóttir Réttargæslumaður
stúlkunnar.
Sjúklingar þurfa að greiða fyrir bílastæði
GÖMLU TRYGGINGAFÉLÖGIN
MEÐ HEILSARS BINDITIMA.
ELÍSABETU FINNST ÞAÐ VERA
ROSALEGA 2005.
BETRI KJÖR Á BÍLATRYGGINGUM OG BÍLALÁNUM Oelísabet
Vátryggjandi er Trvggingamiðstöðin hf. elisabet.is
Stöðumælar fyrir utan
Landspítalana
„Við emm að taka h'tinn hluta af
bílastæðunum sem em næst inn-
göngum," segir Ingólfúr Þórisson,
ffamkvæmdastjóri tækni og eigna hjá
Landspítalanum.
í dag þurfa þeir sjúklingar og gest-
ir sem vilja leggja nálægt inngangi
sjúkrahúsanna að greiða í stöðumæli.
„í Fossvogi verða tekin 28 bfla-
stæði sem verða gjaldskyld en það er
aukaatriði í þessu. Við erum fýrst og
fremst að reyna að bæta þjónustu við
sjúklinga og gesti sem leita á spítal-
ann. Meginþorri stæðanna er án
gjaldtöku en með þessu emm við að
reyna að ýta starfsfólki, nemum og
öðmm frá innganginum og halda
þeim lausum fyrir gesti og sjúklinga,"
segir Ingólfur.
Bflastæðasjóður hefur yfimmsjón
með bflastæðunum fyrir hönd Land-
spítalans en gjaldtakan er alla virka
Stöðumælar Sjúklingar og gestir sem
vilja leggja nálægt inngöngum Land-
spítalans verða að greiða ístöðumæli.
daga á milli átta og fjögur.
„Við Hringbraut verða 120 bfla-
stæði sem verða gjaldskyld. Það er
aftur á móti lítill lfluti af heildarfjölda
bflastæða en þau em um 1500,“ segir
Ingólfur.
Það mun koma í ljós á næstu dög-
um hvernig viðskiptavinir taka í þetta
uppátæki forsvarsmanna Landspítal-
ans og hvort bflastæðin verða nýtt.