Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2006, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006
Fréttir DV
Kostir & Gallar
Ragnar hefuryndislega klmni-
gáfu, er náttúrutalent og
traustur maður.
Hann er metnaðarfullur og
um leið kærulaus og man
hreinlega ekki texta.
„Hann Ragnar er ákaf-
iega sannur vinur og
skemtilegur. Hann hefur
óhemju sérstæðan
húmorogyndisiega
kimnigáfu sem auðgar allt í kring-
um hann. Gallarnireru kannski
þeiraö hann er sérkennileg blanda
af metnaðarfullum og kærulaus-
um tónlistarmanni, eða eins og
hann segir sjálfur:„Efþað á að fara
aö spila eitthvað nákvæmt, þá er
ég farinnI" Ragnar er topplista-
maður."
Ómar Ragnaruon fréttamaður.
„Hann hefur náttúrulega
einstakt lundarfar. Hann
er svo skemmtilegur og
mikið náttúrutalent.
Hann er alveg einstakur,
það þarfekki að útskýra
það, allir sjá það sem hafa fylgst
með honum. Það eru engir svona
sérstakir gallar. Það er bara texta-
klúðrið sem hann gerirgrín að
sjálfur. Hanner bara yndislegur.
Það er heiður að vinna meðhon-
um og kynnast honum."
Eva Asrún Albertsdóttir söngkona.
„Hann er náttúrulega afskaplega
skemmtilegur og góður sögumað-
ur. Hann er léttlyndur og
traustur karl. Hann er
harðduglegur, karland-
skotinn, og fagmaður
fram i fingurgóma.Hann
kennir okkur líka aðtaka okkur
ekki ofhátíðlega. Gallarnir eru að
hannman ekki texta. Það er dálítið
fyndinn galli hjá söngvara, kannski
frekar spaugilegt. Hann mætir
alltafmeö textamöppuna en ef
hann gleymir henni bullar hann
bara. Hann segir alltafvið fólk að
syngja bara með þrátt fyrir að það
kunni ekki textana, segir aðhann
sé búinn að gera þetta í sjötíu ár
og það skipti engu máli hvaö mað-
ursyngur."
Sigtryggur Baldursson tónlistarmaður.
Ragnar Bjarnason, eða Raggi Bjarna eins og
hann er kallaður, er fæddur 22. september
1934. Ragnarereinn afstórsöngvurum íslands
og hefur verið að síðan hann var 15 ára. Ragn-
ar byrjaöi að spila á trommur í tríói norður á
Akureyri þegar hann var unglingur. Siðan ferð-
aðist hann um með hljómsveit Svavars Gests-
sonar og síðar tók hann við bandinu þegar
Svavar hætti. Raggi Bjarna hefur sungið sig inn
I hjörtu þjóðarinnar á yfir 50 ára ferli.
Yoko Ono er hrifin af síld, hún baðar sig daglega og elskar íslenska vatnið. Sean
Lennon er frelsaður íslandsvinur og ræddi við Helga Pé í Ríó um möguleika á
upptökum tónlistar hér á landi. Yoko framlengdi dvöl þeirra hér á landi vegna
hrifningar sem er gagnkvæm. Allir segja Yoko hrífandi og lausa við stjörnustæla.
„Ég flyt um þetta erindi í borgarstjórn á þriðjudag," segir Stefán
Jón Hafstein, formaður borgarráðs. Yoko Ono er nú horfin til
síns heima ásamt syni sínum Sean eftir vel heppnaða íslands-
heimsókn. Má heita að frágengið sé að friðarsúla hennar muni
rísa í Viðey, að sögn Stefáns Jóns. Kostnaðurinn er milli 20 og 30
milljónir króna. Borgin og Orkuveitan skipta með sér kostnaði.
„Eins og ein lítil gatnamót,“ segir
Stefán Jón og er þess fuilviss að það
sé kostnaður sem muni skiia sér til
baka með ýmsu móti.
Að sögn Stefáns lét Yoko vel af
dvöl sinni hér en Stefán sat kvöld-
verðarboð með Yoko ásamt öðrum.
„Afskaplega viðræðugóð kona sem
sagði skemmtilegar sögur af John
Lennon og þeim hjónum."
Yoko er mikil baðkona, fer í bað á
hverjum degi og trúir á heilunarmátt
vatnsins. Að það sé endurnærandi.
Og íslenska vatnið stóð fyrir sínu. Þá
fannst henni sfld sérlega góð.
Guðfræðineminn Ólafur Jóhann
Borgþórsson var fenginn til að vera
sérlegur einkabflstjóri en segist eng-
inn sérstakur Bítlaaðdáandi eða
Lennons. En hann er hrifinn af frið-
arboðskapnum. Og segir Yoko við-
kunnanlega konu. Þetta er i fyrsta
skipti sem Ólafur Jóhann er einkabfl-
stjóri.
Peugot passar vel við Yoko
„Við vomm á splunkunýjum bfl.
Peougot 407. Rosalega góður bfll sem
við fengum hjá umboðinu."
Dagur Jónasson, sölustjóri hjá
„Og drengurinn henn-
ar niðri á jörðinni,
þægilegur ungur
maður."
Bernhard-umboðinu, segir Hafþór
Ingason, forstöðumann Listasafirs-
ins, hafa hringt og spurt hvort Bern-
hard hefði ekki áhuga á að lána þeim
bfl. „Mér fannst þetta tilvalið tæki-
færi. Peugot er flottur bfll, skemmti-
lega hannaður - bfll sem passaði vel
við Yoko. Flóknara var það nú ekki,"
segir Dagur.
Ólafi Jóhanni þótti merkilegt að
skyggnast í heim hinna rflcu og frægu
og þegar Yoko fór til að kaupa föt
trúði hann því tæpast hvað hægt væri
að kaupa mikið af fötum.
Stórfengleg og heillandi
Allir ljúka lofsorði á Yoko. „Stór-
fengleg. Mjög þægileg í allri um-
gengni. Alveg laus við stjörnustæla,"
segir Hafþór Ingvason, forstöðumað-
ur Listasafns Reykjavíkur. Hann var
mikið með Yoko meðan á dvöl henn-
ar stóð en hún framlengdi dvöl sína
Tónlistarmennirnir Helgi og Yoko Helgi
segir Yoko hafa leikið á alls oddi, hrífandi.
um dag, einkum vegna hrifningar
Seans á fslandi. Þau fóru á mánudag
í stað sunnudags eins og til stóð. Haf-
þór segir stærstu upplifunina Viðeyj-
arförina þar sem fyrirhugað er að súl-
an rísi. Ög er Yoko núna að hanna
súluna með tilliti til staðsetningar.
Svo fór hún í Bláa lónið auk þess sem
hópurinn snæddi á Tveimur fiskum,
Við tjömina og Vox. „Hún var hrifin
af sfldinni. Japanir em hrifnir af hrá-
um fiski yfirleitt." Hafþór segir
ómögulegt að segja hvenær súlan rísi
og vitnar íYoko: „Yesterday."
Sean frelsaður íslandsvinur
Helgi Pétursson í Ríó er verkefnis-
stjóri almannatengsla hjá Orkuveit-
unni og sat kvöldverðarboð með
hópnum og lét sér vel lflca. „Það var
búið að segja mér að hún kynni að
vera þurrpumpuleg. En hún lék á alls
oddi, hrífandi. Og drengurinn henn-
ar niðri á jörðinni, þægilegur ungur
Helgi og Sean náðu vel saman Sean er
frelsaður Islandsvinur og hyggur d Ibúða-
rkaup hér.
Alfreð og Yoko Alfreð hlustar með athygli
á ekkju Lennons.
maður. Hann fór upp úr þurm að
spyrja mig út í upptökumöguleika.
Hann hefur skynjað tónlistina á milli
okkar. Fannst lfldegast að ég vissi það
af þeim sem þarna vom. Mjög næm-
ur ungur maður," segir Helgi gaman-
samur.
Og Helgi upplýsir að Sean sé frels-
aður fslandsvinur og vilji kaupa hér
íbúð - svo uppnuminn varð hann af
landi og þjóð.
jakob@dv.is
Glæsilegt úrval af
handsmíðuðum
íslenskum
skartgripum
(ÍÁRAN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10
sími 561 1300
Bensínverð hækkar í sífellu
Ódýrasta bensínið í Vatnagörðum
Margir eru orðnir samdauna
hækkunum olíufélaganna undan-
farna viku og láta fréttir um eld-
neytisverð sem vind um eyru
þjóta. Þó getur munað allt að 5,4
krónum á hverjum bensínlítra.
Flestar sjálfsafgreiðslustöðvar
bjóða upp á mun lægra verð en
stóru stöðvarnar.
Ódýrasta bensínið finnst hins
vegar hjá Ego við Vatnagarða, ein-
ungis 105,80 krónur á lítrann.
Stöðin er í eigu Olíufélagsins, sem
selur sinn lítra annars staðar á
rúmar 110 krónur.
Runólfur Ólafsson hjá FÍB fagn-
ar að virk verðsamkeppni skuli
loksins vera raunin á eldsneytis-
markaði. Hann þakkar það til-
komu Atlantsolíu.
„Það er merkilegt hvað lítill aðili
getur haldið aftur af verðhækkun-
um hinna stærri," segir Runólfur
Við bensínstöð Ego Ódýrasta bensinið þar
þessa dagana.
Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.
„Það hefur ailtaf verið viðleitni í þá
átt að stórir aðilar á markaði lækka
verð eða halda því niðri eftir að nýr
aðili kemur á markaðinn í þeim til-
gangi að bola honum út. Þannig
hafa ódýru stöðvarnar, sem flestar
eru í eigu stóru olíufélaganna, ekki
Runólfur Ólafsson Fagnar virkri
samkeppni á markaði. DV-myndGVA
hækkað eftir gengisfellinguna um
daginn. Eina skýringin sem við sjá-
um er að þeir bíði eftir að Atlants-
olía hækki sín verð."
■1 hvað kostar dropinn?
Bensín Skeljungur: Gylfaflöt no,7 Flestar aðrar stöðvar 111,2 Diesel 109,7 110,2
Olfs: Gullinbrú Álfheimum 111,2 111,7 110,2 110,7
ESSO: Stórihjalli Kópavogi Stóragerði 110,2 110,7 109,2 109,7
ÓB: Allar stöðvar 107,8 106,3
Atlantsolfa: Allar stöðvar 107,8 106,3
Orkan: Allar stöðvar 107,7 106,2
Ego: Vatnagarðar Allar aðrar stöðvar 107,2 107,8 104.3 106.3