Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2006, Page 17
rxv Sport
FÖSTUDAGUR 4. MARS 2006 17
Verða Svíar
sviptir ís-
hokkígullinu?
Svo gæti farið að karla-
landslið Svía í íshokkí verði
svipt ólympíugullverðlaun-
um sínum sem það vann til
í Tórínó í síðustu viku.
Sænska íshokkísambandið
ákvað að sniðganga mót-
töku sem sænska ólympíu-
nefndin hafði skipulagt. ís-
hokkísambandið hélt í
staðin sína eigin hátíð á
Borgaratorginu sænska
ólympíunefndin hefur nú
stefnt íshokkísambandinu
fyrir athæfið. Náist ekki
sáttir í málinu verður því
vísað til alþjóðaólympíu-
nefndarinnar en sam-
kvæmt reglum hennar gæti
svo farið landsliðið yrði
svipt verðlaunum sínum.
Úrslit leikja í gær
KNATTSPYRNA
KARLA
Reykjavíkurmót karla f knattspyrnu
Víkingur-Fram 0-2|
0-1 Þorbjörn Atli Sveinsson (34.)
0-2 Ingvar Þór Ólason^g.)
K A R L A R
ICELAND EXPRESS
Höttur-Skaliagrímur
Grindavík-Njarðvík
Hamar/Selfoss-Þór
Keflavík-Fjölnir
{R-Haukar
Snæfell-KR
87-89
116-112*
87-85
97-91
83-80
59-63
Staðan
Njarðvík
Keflavík
KR
UMFG
Skallagr.
Snæfell
IR
Fjölnir
Ham./Self.
Haukar
Þór
Höttur
20 16 4
20 16 4
20 14 6
20 13 7
20 13 7
20 12 8
20 10 10
20 8 12
20 7
20 4
20 4
20 3
13
16
16
17
1175-1467
1731-1572
1674-1556
1736-1638
1674-1513
1669-1589
1694-1730
1806-1834
1578-1778
1641-1773
1575-1754
1527-1989
32
32
28
26
26
24
20
16
14
8
8
6
K O N U R
ICELAND EXPRESS
Haukar-KR
r
103-51 |
Fram vann í gær sigur á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu eftir að hafa unnið Vikinga
í úrslitaleik, 2-0, en bæði mörkin komu í fyrri hálfleik. Af leiknum að dæma ætla
Safamýrarpiltar ekki að staldra lengi við í 1. deildinni og má einnig vera ljóst að
Víkingar þurfa að gera betur ef liðið ætlar að halda sínu sæti í efstu deild í sumar.
Bikarar á loft GunnarSigurðsson
og Helgi Sigurðsson lyfta
bikurunum á loft eftir sigur i
Reykjavikurmótinu igær.
.... ______DV-mýnd Valli
— , i >1 i S f : |V V Jl ‘ i
rör m j: ' ;,| í É jl íjiú— i V :‘Æ j. IIS Ji j j 1
Það er greinilegt að Framarar koma vel stemmdir til leiks á
íslandsmótinu í vor en liðið, undir stjórn Ásgeirs Elíassonar,
virðist vel mannað og ekki síður vel skipulagt.
Undirbúningsmót sem þessi hafa þó sjaldan gefið rétta mynd
af gengi liðanna á sjálfu íslandsmótinu en engu að síður er
Reykjavíkurmeistaratitillinn gott veganesti fyrir sumarið.
Leikurinn var opinn og skemmti-
legur en þama áttust við lið sem bæði
færðust milli deilda á árinu. Fram féll
vitanlega í 1. deild í haust á sama
tíma og Víkingar unnu sér sæti meðal
þeirra besm. Það var þó ekki að sjá að
Framarar væru í næstu deild fyrir
neðan andstæðinginn því þeir höfðu
tögl in og hagldimar í leiknum lengst
af. Eftir um hálftímaleik lét Víkings-
vömin loksins undan er Þorbjörn Atli
Sveinsson fylgdi eftir föstu skoti
Viðars Guðjónssonar sem Ingvar Þór
Kale náði ekki að halda.
Það var svo undir lok fyrri hálfleiks
að annað mark Framara leit dagsins
ljós. Grétar Sigurðsson braut á Fielga
Sigurðssyni er hann var að sleppa inn
fyrir vöm Víkinga en Grétar getur
þakkað íyrir að Helgi var búinn að
missa boltann er brotið átt sér stað og
slapp hann því með gult spjald.
Ingvar Þór Ólason skoraði hins vegar
beint úr aukaspymunni.
Andri og Hans á bekknum
Það var einkar athyglisvert að sjá
að tveir bestu menn liðsins síðasta
sumar, Andri Fannar Ottósson og
Hans Mathiesen, vom á bekknum og
komu inn á í hálfleik. Greinilegt er að
Ásgeir Elíasson hefur næga valkosú í
sínum mannskap. Andri Fannar átú
einmitt skalla að marki eftir
glæsilegan undirbúning Helga á 65.
mínútu en Grétar Sigfinnur varði á
línu. Grétar sjálfur átú svo skot í stöng
Fram-marksins skömmu síðar.
Nokkuð jafnræði var með liðunum
eftir þetta en sigrinum var þó aldrei
ógnað.
„Það er alltaf gaman að vinna úúa
og þó að um æfingamót sé að ræða
fer maður í alla leiki úl að vinna,
sérstaklega úrslitaleik sem þennan,"
sagði Helgi Sigurðsson, fyrirliði Fram,
efúr leikinn. „Við höfum nú spilað
fullt af æfingaleikjum og ég hef ekki
enn séð neitt lið sem er betra en við.
Þó skal ekki dæma þetta of fljótt en
við reynum að halda okkar striki og
þá tel ég okkur vera með mjög gott
lið.“
Ingvar bestur
Ingvar Þór var besú maður Fram í
leiknum og þó svo að Helgi hafi ekki
skorað í gær má vera ljóst að hann á
eftir að skora þau mörg mörkin í
sumar.
Vfkingar spiluðu ágætan bolta á
köflum en nýttu þó færin sín skelfi-
lega. Stundum fór boltinn frá víta-
teigsboganum nær homstönginni en
sjálfu markinu en oftast fjöruðu
sóknir Vfldnga einfaldlega út. Amar
Jón Sigurgeirsson var sprækur, sér-
staklega framan af, en annars stóðu
fáir upp úr.
eirikurst@dv.is
Alfreð Gíslason fékk sig lausan undan samningi við Magdeburg
Alfreð ráðinn landsliðsþjálfari í dag?
Alfreð Gíslason
mun að öllum lík- >
indum taka við ís-
lenska landslið-1
inu í handknatúeik
í dag. Alfreð stað-
festi í samtali við
heimasíðuna
handball-welt.de
í gær að hann
væri búinn að fá
sig lausan undan
starfssamningi sínum
við Magdeburg en honum
var vikið úr starfi snemma á nýju
ári. Alfreð átti að fá laun út samn-
ingstímann, fram á sumar árið
2007 en hefur nú komist að
samkomulagi við félagið.
Hann vildi þó ekki staðfesta
að hann muni taka við íslenska
landsliðinu í samtali við fyrr-
greinda vefsíðu og það vildi
Guðmundur Ágúst Ingvarsson
ekki heldur gera þegar DV
Alfreð Gísla-
son Næsti
landsliðsþjálfari
Islands?
Sport ræddi við hann í gær. Ætla
má þó að þeir hafi rætt saman í
gærkvöldi og verður það væntan-
lega aðeins formsatriði að ganga
frá samningum um að Alfreð taki
að sér þjálfun íslenska landsliðsins
fram yfir HM í Þýskalandi sem fer
fram í janúar árið 2007. Um sumar-
ið tekur Alfreð svo við liði Gum-
mersbach en hann skrifaði undir
samning þess eðlis í haust.
Mönnum er því enn spurn
hvaða lausn HSÍ ætlar að finna á
þjálfaramálum landsliðsins hvað
lengri tíma varðar. Ekki er ólfldegt
að Alfreð verði með aðstoðarmann
með sér sem gæti þá tekið við lið-
inu sem aðalþjálfari þess þegar Al-
freð snýr aftur til Þýskalands. Þar
verða líklegustu kandídatar að telj-
ast Geir Sveinsson, Dagur Sigurðs-
son og Óskar Bjarni Óskarsson.
eirikurst@dv.is
JC’Jf M M MW3 G. Tomasson eht • Súöarvogi 6
kUUWll .com • sími: 577 6400 • www.hvellur.com
esnum Qrænum • hveiiuf@hveiiur.com
í vetur
Ný tæki - Betra verð!
SLENDEBTONE m-. Qn|l '
SLfNDtSTONE- .. (««11 *
IFIIÆX IC.9UU.-
HREYSTÍ