Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 Fyrst og fremst JSV Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar Ritstjóran Björgvin Guðmundsson Páll Baldvin Baldvinsson Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot: 550 5090 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is Auglýsingar: auglysingar@dv.is. Setning og umbrot: 365 - prentmiðlar. Prentvlnnsla: ísafoldarprentsmiðja. Dreifing: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og úr gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Dr. Gunni heima og að heiman Éteyyrar!Æ/fi! vergri þjóðarfram- leiðslu. Ég hefekki hugmynd um þaö hvað „vergri þjóð- arframleiðslu" þýöirenég veit að eitt prósent er ekkert svakalega mlkið. Á miövikudag- inn varð uppi svaka fát og ég heyröi spurt I fréttunum: .Fyrst Kaninn er að fara verður þá ekki bara að opna álver á Suðurnesj- umf Þessi spuming lýsir ekki mjög frumlegri hugsun og mér fannst glatað aö heyra þetta. Það hlýtur einhver framsóknarmaður að hafa látið þetta út úr sér enda eru álver lausn þess flokks á öll- um vandamálum. Skoðanakann- anir sýna aö fólk er almennt ekki að kaupa þessa lausn. Vonandi hverfur Framsóknarflokkurínn alveg I næstu kosningum. Hann er leiöindi og tlmaskekkja. _____________________Jálausa Baugsmál enn eina dýfuna. Þaö var sniðugt hjá Jó- hannesi og Jóni Ásgeiri að segja aö þeim pen- ingum sem Rlkið (það er þúogég, manstu) eyddi í að reyna að koma Baugi á hné heföi betur veríö varíö I aö kaupa nýja björgunar- þyrlu. Þetta var gott skot I pung- inn á ráöamönnum sem áttu ekk- ert svar. Bjöm Bjamason varö eins og vankaður og fór bara aö röfla eitthvað um Róm og Sesar. Hvað var þaö? En það var ánægjulegt að sjá fréttamenn hafa eitthvaö til aö tala um. Og maður nennti næstum þvf aö horfa á fréttimar. > Q Heilsuhæli En hvað á að gera viöallartómu Kana-blokkimará Miönesheiöi? Fáum við ekki örugglega að eiga þetta? Hvað með lúxusvillur fyrir eldri borgara? Nei, þaö er ekki hægt að leggja þaö á ömmu og afa aö hýrast I þessu rokrassgati. Kannski er máliö aö búa þama til samfélag þeirra sem illa hafa fariö út úr llfinu, upp- byggilegt og uppþurrkandi heilsuhæli fyrir götunnar fólk, a la Byrgið. Einhvers staðar veröa ,vondir" aö vera og það er skárra áö vera (notalegri blokk (rokrass- gati en I leku greni (miðbænum. Annars held ég að Ámi Sigfússon hljóti að vera með þetta allt á hreinu. Merkilegt aö þegar ég sé þann gæöamann I sjónvarpinu langar mig alltaf til aö kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Leiðari Þaö er nauðsynlegt að æðstiyfirmaður lögreglu- og dómsmála.í landinu sjái þróunina ísínum málaflokki fyrir. Björgvin Guðmundsson Baráttan við erlenda glæpahringi DV hefur undanfamar vikur greint ítar- lega frá því hvemig Litháar hafa reynt að smygla miklu magni eiturlyfja til landsins. Frá byrjun febrúar hafa þrír Litháar verið teknir höndum. Allir höfðu þeir í fórum sín- um fljótandi amfetamín sem má auðveld- lega innbreyta og drýgja í neysluhæft form. Enginn íslendingur hefur enn verið tengdur við málið svo vitað sé. f fyrra var Lithái tekinn með fjögur kíló af amfetamíni við komuna til landsins og ann- ar með brennisteinssýru á flöskum. Brenni- steinssýran er sögð nauðsynleg til að gera fljótandi eiturlyf neysluhæf. Sá síðamefndi hafði komið þrisvar sinnum áður til lands- ins en sagðist samt ekki þekkja neinn á ís- landi. Bjöm Bjamason dómsmálaráðherra segir mál Litháanna þriggja, sem nú sitja í gæslu- varðhaldi, sýna fram á að starfsemi alþjóð- legra glæpahringa teygi anga sína alla leið til íslands. „Ég tel ástæðu til að líta á þetta þannig að við eigum þama í höggi við alþjóðlegan glæpahring og það eigi að líta á þetta mál á þann veg. Eg hef til dæmis lagt til að lögregl- an fái heimildir undir merkjitm greiningar- deildar til að leggja mat á hættu á slíkri starfsemi og gera þá ráðstafanir eins tíman- lega og kostur er til að koma í veg fyrir að menn geti hreiðrað um sig hér á þerrnan hátt,“ sagði Bjöm í hádegisfréttum Útvarps- ins í gær. Samkvæmt fféttaflutningi DV virðist inn- flutningurinn á amfetamíninu vera skipu- lagður af Litháa sem búsettur er á íslandi. Samverkamenn hans í Litháen hafa það hlutverk að útvega og koma eiturlyfjun- um til landsins. Hér geta þeir hundrað- faldað verðmæti efnanna. Mikið af amfetamíni er ffamleitt í Litháen og er sent til landa þar sem margfalt hærra verð fæst fyrir efiiið. Hafa sænsk yfir- völd unnið markvisst gegn þessu. Undanfarna mánuði hefur Bjöm Bjarnason lýst nauðsyn þess að íslensk yfiivöld séu í stakk búin til að takast á við erlenda glæpa- hringi. Ráðherrann hefúr oft verið gagn- rýndur fyrir að mála raunveruleikann dökkum litum. Framsýni hans hefur þó oftast reynst þjóðinni vel. Það er nauðsynlegt að æðsti yfirmaður lögreglu- og dómsmála í landinu sjái þróunina í sín- um málaflokki fyrir. Aðeins þannig er tryggt að lögregluyfirvöld geti á trú- verðugan hátt tekist á við skipulagða glæpastarfsemi eins og í tilviki Litháanna þriggja sem nú sitja í gæsluvarðhaldi. LIWKA ■ff UDI DV 27. febrúar m MKml. Bushtown Iminn- Bjarnaborg I minn- Sumarhús Nú verða Höfn Eins og heima Stóra-Hraun Ef ingu siðasta bæjar- ingu Bjarna Ben. sem menn að bjarga sér hjá forsætisráð- girðingin verður stjórans. undirritaði NATO- sjálfir eins og Bjartur. herra. látin standa. samninginn. Keflavík Þá yrði RúnarJúl. ánægður. nýnijfn á Iwrstöðiiia é Miðnesfíeiði Vírar og liós í kassa GE0RGE CL00NEY ER enginn kjáni þó hann sé sætur. Hefur stimpíað sig sterkt inn í þá vitrænu umræðu sem þrátt fyrir aílt fer fram í Hollywood. Fyrst og fremst Laugarásbíó hefur að undanfömu verið að sýna kvikmynd hans, Good Night, and Good Luck, svart/hvíta mynd um sjónvarpsmanninn Ed- ward R. Murrow. MURR0W VAR SLEIPUR í sjónvarpi og lét sér ekki nægja að vera hnyttinn í viðtölum við fræga og ríka fólkið. Hann tók einnig slaginn og lagði allt undir f baráttunni gegn ofsóknum McCarthys í kalda stríðinu. Hann beitti sjónvarpinu í þágu réttlætisins og hafði betur. Hann þekkti mátt sjónvarpsins og nýtti sér hann. SKÖMMU EFTIR MIÐJA síðustu öld varaði Murrow við þeirri þróun sem strax þá var orðið einkenni sjónvarps- ins. Skemmtiþættir og froða í bland við dellu af öllum stærðum og gerð- Skemmtiþættir og froða í bland við dellu aföllum stærðum og gerðum. Og heima sat fólkið og innbyrti draslið. um. Og heima sat fólkið og innbyrti draslið. SV0 SEM EKKERT að spjalli, hlátra- sköllum og bófahasar í sjálfu sér. En Murrow vissi að í sjónvarpi gæti slíkt eytt öllu því sem máli skiptir. Við sjáum þetta í íslensku sjónvarpi í dag; Idol, Hemmi Gunn, ísland í dag, Strákamir, Stelpurnar og jafn- vel Kastljósið á slæmum degi. FRAMTÍÐARSÝN Edwards R. Murr- ow hefur ræst og það hér á landi sem annars staðar. Og lokaorð hans í kvikmyndinni ættu allir, sem fást við fjölmiðlun í sjónvarpi, að hugleiða: Ef ekkert verður að gert verður sjón- varpið ekki annað en vírar og ljós í kassa. ANNARS VAR Idolið ágætt í gær- kvöldi. Svo langt sem það nær. eir@dv.is Geir betri en Davíð Lygarar á valdastólum „Viðbrögðin í gær voru bæði yfirvegaðri og skynsamlegri en fyrir þremur árum. Þá átti að hætta vamarsam- starfinu, ef þotumar fæm, en nú á að halda viðræðum áfram í þeim tilgangi að fixma ásættanlega lausn fyrir báða aðila," skrifar Þorsteinn Pálsson í leiðara Fréttablaðs- ins í gær. / sjálfu sér kemur ekki á óvart þótt Þorsteinn vilji vekja at- hygli á flumhrugangi Davíðs og berí blak af Geir. En hér til hiiðar er annar ritstjórí um sama efni. Hann finnur þeim félögum fátt til ágætis. Og athyglisvert í samanburði. Þorsteinn Pálsson Telur viðbrögðin fyrir þremur árum misheppnuð. 3Sm m „Fyrst og fremst em það Davíð inn. og Halldór, sem hafa síðan 2003 logið því að þjóðinni, að þeir væm í fínu sambandi við ráðamenn Bandaríkjanna og gætu því hindrað brottför þota og þyrína. Sennilega hefur Davíð hætt í póli tík til að þurfa ekki að mæta kjós- endum með þessa lygi á bakinu. Geir Haarde hefúr líka tekið þátt í að blekkja okkur. Hann var í Washington fyrir skömmu Og lýstita Jónas Kristjánsson Vandar ánægju með fúnd-^ ráðamönnum ekki kveðjurnar. Ætla mátti, að hann hefði fengið vilyrði fyrir langri frestun á brottfór þota og þyrlna. Nú hefur komið í ljós, að hann laug eins og hinir tveir." Jónas Krístjánsson greinir kjamann frá hism- inu á \síðu í sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.