Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 18. MARS 2006
Helgarblaö DV
tioitífcfuna
Anna Kristín Gunnars
dóttlr Qlþlngisnuidur.
Púður frá Clinique
„Ég var áður með
aðra tegund en líst
mjög vel á þetta púður
og er ánægð með það.“
Andlitskrem frá
Clinique
„Þetta er ólitað dag-
og næturkrem frá Clinique
sem ée nota á huerium
Augnblýantur
frá No Name
„Ég nota
yfirleitt ein-
hvem augnblýant daglega og þá
oftast þennan sem er mosa-
grænn eða annan sem er
svargrár."
Maskari frá Lancome
„Þessi er mjög góður og
klessir ekki augnhárin. Ég
nota maskara á hverjum degi
en gæti svo sem farið mask-
aralaus út fyrir dyr þar sem ég er
með brún augu og svarta augnum-
Hins vegar er maður van-
ur maskaranum enda lengir
hann augnhárin."
Gloss frá Body
Shop
„Ég nota oftast
Þettá er
næstum lit-
laust en
með smá
bleik-
um
ekki sterka liti á varirnar á
mér en set oft gloss yfir varaliti."
Anna Kristfn Gunnarsdóttir, alþingismaður Samfylkingarinnar, segist mála sig
á hverjum degi. „Ég mála mig hins vegar ekki alltaf eins. Þegar ég er að fara
út að skemmta mér mála ég mig meira, en hversdagslega set ég aðeins á mig
andlitskrem, litað dagkrem og maskara. Ef ég fer út á kvöldin snyrti ég mig
svo meira f kringum augun. Annars legg ég meira upp úr fötunum en förðun-
inni," segir Anna Kristfn og bætir við að hún sé um það bil tíu mfnútur til kort-
er að mála sig á morgnanna. „
Athafnakonan
Sirrý Hallgrímsdóttir er aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Creditinfo Group og eigandi og fyrrverandi
framkvæmdastjóri Sjá viðmótsprófana ehf. Auk vinnunnar
situr Sirrý í stjórn íslenska dansflokksins og er formaður í
móttökunefnd FKA. Það er því nóg að gera hjá þessari dug-
legu ungu konu.
ErtioiD skilar
sér á endanum
„Markaðir fyrirtækisins eru aðal-
lega í Austur- og Mið-Evrópu og það
að fá reynslu af þessum mörkuðum
hefur verið mér ómetanlegt," segir
Sirrý Hallgrímsdóttir, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Creditinfo Group,
sem er móðurfyrirtæki Lánstrausts á
íslandi.
Mikil ferðalög vegna
starfsins
„Ég hóf störf hjá Creditinfo
Group í júní 2005 og finnst verulega
gaman að taka þátt í uppbyggingu á
fýrirtæki í jafn örum vexti. Starfsem-
in snýst um mat á áhættu viðskipta
við fyrirtæki og einstaklinga og und-
ir merkjum fyrirtækisins höfum við
verið að byggja upp fyrirtæki um
heim allan," segir hún en Creditinfo
Group er nú staðsett í 25 löndum og
þarf Sirrý því að ferðast mikið vegna
starfsins. „Upp á síðkastið hef ég
aðallega verið að fara til Grikklands
og Möltu og verð því kannski að
bæta grískukunnáttuna," segir hún
brosandi.
Stofnuðu fyrirtæki í
niðursveiflu
Auk þess að starfa hjá Creditinfo
Group er Sirrý einn eigenda og fyrr-
verandi framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins Sjá viðmótsprófanir ehf. Það
fyrirtæki stofnaði hún ásamt tveim-
ur öðrum konum árið 2001, þeim
Jóhönnu Símonardóttur og Áslaugu
Friðriksdóttir sem er núverandi
framkvæmdarstjóri fyrirtækisins.
„Við stofnuðum Sjá viðmótsprófan-
ir árið 2001 þegar það var niður-
sveifla í þjóðfélaginu en ef maður
hefur gaman af því sem maður er að
gera skilar vinnan sér alltaf á endan-
um og það höfum við uppskorið
með Sjá ehf. Fyrirtækið sér um próf-
anir og greiningar á vefjum og hug-
búnaði auk þess sem fyrirtækið er
„Við stofnuðum Sjá
viðmótsprófanir árið
2001 þegarþað var
niðursveifla í þjöðfé-
laginu enefmaður
hefur gaman afþvi
sem maður er að gera
skilar vinnan sér
alltafá endanum og
það höfum við upp-
skorið með Sjá ehf."
með vefráðgjöf," útskýrir Sirrý og
bætir aðspurð við að síðasta vor hafi
henni boðist aðstoðarframkvæmd-
astjórastarfið hjá Creditinfo Group
og að hún hafi talið það vera tæki-
færi sem hún gæti einfaldlega ekki
hafnað.
íslenskar konur
metnaðargjarnar
Aðspurð segist Sirrý alltaf hafa
verið metnaðarfull og hún segir ís-
lenskar konur í heildina stefna hátt.
„íslenskar konur eru mjög metnað-
argjarnar og þær stefna fram á við.
Þátttaka kvenna í stjórnum félaga
og í forsvari fyrirtækja er að aukast
og á bara éftir að aukast og ég tel að
íslenskar konur séu mjög sterkar og
góður efniviður til að verða leiðtog-
ar í viðskiptalífinu," segir hún
ákveðin en Sirrý er einnig ein af fjór-
um konum sem eiga fyrirtækið D8
sem gerði heiðarlega tilraun til að
kaupa Símann. „Við vorum þar í för
með erlendum fjárfestum og mynd-
uðum hóp sem tók þátt í útboðinu."
Sirrý Hallgrímsdóttir „Aö mlnu mati er
þaö hins vegar nauðsynlegt fyrir hvern og
einn að eiga áhugamúl utan vinnunar, þvl
áhugamál og félagsstarf eykur bara á vlö-
sýni okkar og reynsiu. “
Áhugamál nauðsynleg
Auk starfsins situr Sirrý í stjórn
íslenska dansflokksins og er for-
maður í móttökunefnd FKA, Félags
kvenna í atvinnurekstri, og því er
nóg að gera hjá þessari ungu konu.
„Að mínu mati er það hins vegar
nauðsynlegt fyrir hvem og einn að
eiga áhugamál utan vinnunar, því
áhugamál og félagsstarf eykur bara
á víðsýni okkar og reynslu," segir
hún að lokum.
indiana@dv.is