Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 Fréttir DV Mál Bubba Morthens gegn tímaritinu Hér & nú var dómtekið fyrir viku. Málið snýst einkum um fyrir- sögn á forsiðu timaritsins: „Bubbi fallinn“. Lögmaður hans, Sigríður Rut Júlíusdóttir, og lögmaður Hér & nú, Einar Þór Sverrisson, spurðu hann út í málið. DV birtir hér framburð Bubba eins og hann var fyrir viku i Héraðsdómi Reykjavíkur - sal 101. Sigriður Rut Júliusdóttir (SRJ): Ég ætla að leggja fyrirþig dómskjal númerþrjú, kannastu við þetta skjal? Bubbi Morthens (BM): Já. SRJ: Nú er á þessu skjali mynd afþér þar sem þú ert greinilega að tala I farsíma og ert inni i bil, manstu eftir þvl að þessi mynd var tekin afþér? BM: Nei, hefekki hugmynd um hvenær hún er tekin eða á hvaða tíma hún er tek- in. [Óskýrj SRJ: Efvið flettum skjalinu og flettum upp á fréttinni sjálfri, þá eru þar fleiri myndir sem hafa greinilega verið teknar við sama tilefni, kannastu við að þetta sé bíllinn þinn á þessum myndum? BM: Já,já, bíllinn sem ég átti á þessum tíma. SRJ:Já. BM:Já,já. SRJ: Nú kemur þetta dómskjal út eins og það ber með sér hérna 16.júní2005. Vissir þú fyrir fram áður en að þetta timarit Hér & nú kom út á þessum degi að það stæði til að fjalla um þig á einhvern hátt íþessu blaði? BM: Nei. afþessu eftir útkomu blaðsins. BM: Ég var í veiði, I Kjarrá, laxveiði. Það er ekki GSM-samband þarna en síminn i veiðihúsinu fór að hringja þegar ég kom niður í veiðihús um kvöldið. Þá fékk ég að vita það að síminn hefði ekki stoppað og það væri verið að reyna að ná í mig og það fyrsta sem ég hugsaði er að það hlyti að vera eitthvað að. Vanatega þá er eng- inn að hringja í mann í veiðihús. Þannig að ég hringi til baka í umboðsmanninn og þá sagði hann að það væri fyrirsögn á einhverju tímariti sem hann hafði séð úti í búð, að ég væri fallinn. Og ég hváði og sagði að þú þekkir mig betur en þetta. Já, sagði hann, en þetta er samtþannig. Svo þegar ég fór i bæinn 18.júní, þegar ég kom í Mosfellsbæinn, þá sá ég þetta á öll- um stöndum og gerði mér grein fyrir því að það væri einhver óþverri i gangi. SRJ: Þú sagðir að umboðsmaðurinn hefði verið sá sem sagði þér frá þessu. Hversu vel þekkist þið, eruð þið góðir vinir? BM: Mjög góðir vinir. SRJ: Eruð þið búnir að þekkjast lengi? BM: Já, við erum búnir að þekkjast í sjö ár. SRJ: Tjáði hann þér í þessu símtali að „Ég varð mjög reiður og fann fyrir bara svona vaniíðan, svo náði ég mér alveg niður, sko, og allt það, en hins vegar hefur það verið þannig síðan að ég opna ekki dyrnar heima hjá mér öðruvísi enað líta til hægri og vinstri og at- huga hvort þarsé Ijósmyndari." SRJ: Hafði ritstjóri eða einhver annar starfsmaður hjá stefnda, 365, eða einhver starfsmaður tímaritsins Hér &nú sam- band við þig áðuren umfjöllunin varskrif- uð og birt í þessu blaði? BM: Nei. Einhver óþverri í gangi SRJ: Segðu mér frá þvi hvernig þú fréttir hann hefði einhverja trú á þviað það væri eitthvað sannleikskorn... [Bubbi grípur fram í.j BM: Það sem hann hafði aðallega áhyggjur afvar það að þetta gæti haft áhrifá samninga okkarog viðskipti við aðra aðila. Aðaláhyggjur hans voru þetta, hann notaði frekar stór orð og sagði að nú þyrftum við að fara að útskýra fyrir jafnvel Islandsbanka og þessum mönnum að þú sért ekki byrjaður að dópa. Það var svona aðaláhyggjuefni hans. Bubbi verður ofboðslega reiður SRJ: Þannig að hann þekkir þig mjög vel og veit alveg um þína edrúmennsku, ef svo mætti segja? BM: Við erum báðir í eða stundum sömu samtök,já. SRJ: Lýstu því kannski i nokkrum orðum hvaða áhrifhafði þetta á þig, þá á ég við tilfínningalega, hvernig leið þér þegar þú sástþetta? BM: Mér fannst þetta vera svona, mér leið illa og ég var auðvitað bara mjög reiður. Það fyrsta sem ég hugsaði var að hringja í krakkana og segja krökkunum að pabbi sé í lagi og allt þetta. Síðan varð ég bara ofboðslega reiður. Ég varð mjög reiður og fann fyrir bara svona vanlíðan, svo náði ég mér alveg niður, sko, og allt það, en hins vegar hefur það verið þannig síðan að ég opna ekki dyrnar heima hjá mér öðruvísi en að líta til hægri og vinstri og athuga hvort þar sé Ijósmyndari. Og sama er að ég bý á þannig stað að það er mjög auðveltað taka myndirinn um stofuna hjá mér eða heita pottinn eða eitthvað því um líkt. Ég eralltafmeð varann á, alveg frá því að ég uppgötvaði að þessi mögu- leiki er fyrir hendi, að þeir geta verið fyrir utan heima hjá mér og tek- ið myndir og svo framvegis. Ég hef haft þennan vara á síðan. Ónotakenndin situr í Bubba SRJ; Segðu mér, þú segir að þú hafírorðið reiður, varstu sáreða...? BM: Já, auðvitað, þetta var áfall, mér fannst þetta áfall vegna þess að, sko, það þarf áfall til þess að snúa við blaðinu og koma sér íþann girinn að þurfa ekki að vera að nota áfengi eða önnur efni og síðan þegar maður er búinn að byggja kannski nýtt lífsem byggist á þeim trúverðugleika að ég sé ekki að neyta efna eða áfengis og síðan er mikið afminni fjárhagslegu afkomu sem byggir á þviað þessi ímynd sé skýr og klár að ég sé í lagi. Þannig að,já,já, þetta hafði margs konar áhrif, bæði þú veist að... [Lögfræðingurinn gripur fram í.] SRJ: Nú er ég bara að tala um tilfinningalega. BM: Tilfínningalega hafði þetta bara áhrif og... [Lögfræðingur grípur inn ÍJ SRJ: Þú sagðir áðan að þú hefðir orðið reiður. Segðu mér, stóð þetta lengi yfír? Fannstu lengi fyrirreiði■ tilfinningum og einhverj- um sárindum út afþessu? Varstu lengi að ná þér niður? Þú sagðir áðan að þú hefðir náð þér niður. BM:Já, ég fínn fyrirþessu ennþá. Bara afþví við erum að tala um þetta hérna, þá finn ég fyrir ónotakennd. Já,já, þetta situr I mér, situr I mér ennþá i dag. SRJ: Segðu mér þarna, hvaða áhrifhafði þetta á fjölskyldu þína, þetta atvik að þetta blað... [Bubbi grípur inn í.j Trúverðugleikinn bíður hnekki BM: Dóttir mín lenti í frekar leiðinlegum málum ískólanum. Ég meina, krakkar löbbuðu að henni og sögðu að pabbi þinn er dópisti og pabbi er að dópa og eitthvað svona sko. Hún auðvitað varði mig með kjafti og klóm en þetta hafði áhrifá hana. Hún hringdi í mig og var ......'WUJ3UII cj Stöð 2 Hitti Bubba til að ræða við hann um forsiðuna frægu. miður sín.alveg miðursín. SRJ: Höfðu þau áhyggjur afþví að þú værir kannski fallinn? BM: Hún hafði áhyggj- ur afþví, já. Yngsti sonur minn er það lítill og sá elsti er svona duglegur, það hafði áhrifá hann en öðruvísi, en dóttur minni var mjög brugðið og þetta raskaði hennar til- Myndin fræga Fékkyfirskriftina „Bubbi fallinn"og hann staðhæfir að bað hafi skaðað sig. SRJ: Þú talaðir um hérna áðan að edrú- mennskan sé svo mikilvæg fyrir þig að það skipti þig svo miklu máli þín ímynd og varðandi þina fjár- hagslegu afkomu, efég skildi þig rétt. BM:Já. SRJ: Geturðu þá lýstþví fyrir mér hvaða áhrifþetta hefur haftá þína fjárhags- legu afkomu og þina ímynd, svona frétt eins og þetta, þar sem að stendur að þú sértfallinn með upphrópunarmerki. BM: Þetta hafði þau áhrif að trúverðugleikinn minn, hann beið hnekki. Vegna þess að það er alltaf þannig þegar svona kem- ur fram í fjölmiðlum og menn svona, það er svona
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.