Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 18. MARS 2006
Fréttir DV
Funda um
atvinnu
Bandaríkjaher hyggst
kveðja okkur fslendinga í
september á þessu ári eins
og frá hefur verið greint í
fjöimiðlum. Suðurnesja-
menn standa eftir með sárt
ennið og leita nú leiða til
að tryggja þeim hundruð-
um manna atvinnu sem
missa hana þegar síðasta
þyrlan flýgur burt. Sam-
ráðsfundur sveitarstjórna á
Suðurnesjum, fulltrúa ríkis-
valdsins og stéttarfélaga
hefur verið boðaður eftir
helgi, en þar verða ræddar
lausnir í atvinnumálum
Suðurnesja, að því er greint
er frá á vef Víkurfrétta.
Minna veitt
af úthafskarfa
Sj ávarútvegsráðherra
hefur gefið út reglugerð um
veiðar á úthafs-
karfastofnum
2006. Sam-
kvæmt reglu-
gerð þessari er
íslenskum skip-
um heimilt að
veiða samtals
28.610 lestirafút-
hafskarfa á þessu ári og
skiptist þetta magn á tvö
svæði. Heimilt er að veiða
23.406 lestir á deilisvæði
sem að hluta liggur innan
lögsögunnar en sá karfi er
veiddur á fyrri helmingi
ársins, en 5.204 á deilisvæði
sem liggur alfarið utan lög-
sögunnar en sá karfi er
veiddur á seinni helmingi
ársins. Um er að ræða 17%
samdrátt í veiðiheimildum
frá árinu 2005.
Lánshæfisein-
kunn staðfest
Standard & Poors hefur
staðfest lánshæfiseinkunnir
ríkissjóðs á langtímaskuld-
bindingum í erlendri mynt
AA- og AA+ fyrir langtíma-
skuldbindingar í íslenskum
krónum. í frétta frá S&P
kemur fram að lánshæfis-
einkunn íslands byggist á
stöðugu stjórnkerfi, mjög
auðugu og sveigjanlegu
hagkerfi ásamt góðri stöðu
opinberra fjármála. Það
sem heldur aftur af frekari
hækkun lánshæfismatsins
er bæði mjög mikil erlend
fjármögnunarþörf og mjög
miklar erlendar skuldir
hagkerfisins.
Formaður Flugvirkjafélags íslands, Erling P. Erlingsson, segir að við brotthvarf
hersins eigi að nýta flugskýlin á Keflavíkurflugvelli undir viðhaldsverkefni fyrir
erlend flugfélög. Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri segir að nota eigi
skýlin fyrir kvikmyndaver. Hann vill breyta Keflavík í Bíóbæ. Páll Magnússon,
aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, segir ráðuneytið styðja áform um kvikmyndaver
en ekki hafa tekið afstöðu til staðsetningar.
Flugvirkjar ou bíófólk í slag
uoi risaskyli Baadaríkjahers
„Við erum að spekúlera í því hvort ekki yrði hægt að nýta skýlin
sem eru á vellinum til að byggja upp vinnu og taka að sér viðhald
fyrir erlenda aðila," segir Erling P. Erlingsson, formaður Flug-
virkjafélags íslands. Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri
hefur aðrar hugmyndir um framtíðarhlutverk flugskýlanna. „Við
viljum breyta þessu í kvikmyndaver," segir Friðrik.
Stóra skýlið Margir
lita girndaraugum á
þetta risavaxna fiug-
skýli Bandaríkjahers á
Keflavikurflugvelli.
Að sögn Erlings P. Erlingssonar
hafa flugvirkjar þegar haft samband
við alþingismenn í Suðvesturkjör-
dæmi og kynnt þeim hugmyndir sínar
varðandi notkun mannvirkja þegar
Bandaríkjaher yfirgefur Keflavikur-
flugvöll.
Mestur áhugi á stóra skýlinu
Erling telur fslendinga eiga raun-
hæfa möguleika á að ná til sín við-
haldsverkefnum frá erlendum flugfé-
lögum. Hann segir að þótt stóra skýlið
á Keflavíkurflugvelli taki ekki stærstu
breiðþotur komist flestar þotur, eins
og þær sem Icelandair og Bláfugl noti,
þangað inn.
„Þetta byggist á þvf að fá þessi skýli
fyrir lítið eða ekkert," segir Erling sem
bæði sér fyrir að viðhaldsfyrirtæki sem
fyrir séu í landinu eða ný fyrirtæki geti
tekið þetta verkefni að sér. Sérstaklega
séu flugvirkjar að horfa til þess að
stærsta flugskýlið
á vellinum
verði
„Þetta byggist á því
að fá þessi skýli fyrir
lítið eða ekkert"
þess sem það var byggt til en ekki und-
ir aðra starfsemi:
Líst illa á kvikmyndaver
„Það hefur verið nefrit að nota
þetta sem kvikmyndaver en það er
slæm hugmynd þó ekki væri fyrir ann-
að en að það yrði sífelld truflun frá
flugumferðinni. Það verður fuflt af
fólki sem kemur til með að reyna að ná
í þetta því þama er fullt af eignum,“
segir Erling sem sér fyrir sér mikinn
handagang í öskjunni - láti herinn
raunvemlega af því að fara eins og
boðað er.
Milljónaverðmæti í súginn
Að sögn Friðriks Þórs Friðrikssonar
er langt síðan kvikmyndagerðarmenn
fóm að velta því fyrir sér að fá að nýta
mannvirki á vallarsvæð-
inu. Það hafi gerst
flugskýli og aðrar byggingar stóðu
tómar.
„Við vildum fá þetta fyrir geymslur
á leikmunum, búningum og slíku sem
er alltaf fleygt eftir myndir og milljóna-
verðmæti fer í súginn. Stjómmála-
menn sögðu þá að þetta væri ekki
hægt út af því að herinn vildi ekki um-
gang um svæðið. Hindrunin var alltaf
sú að það var ekki hægt að æða inn og
út af vellinum en nú h'tum við bara
björtum augum á þetta. Við breytum
þessu bara í kvikmyndaver; ekkert
mál,“ segir Friðrik.
Engar áhyggjur af atvinnu
Friðrik segir stjómmáfamenn vera
mjög jákvæða gagnvart hugmyndinni
um kvikmyndaver á Keflavíkurflug-
velli. Lengi hafi verið í deiglunni að
reyna að nýta mannvirkin á einhvem
hátt. Hann nefnir sem fyrirmynd að í
Danmörku hafa fyrirtæld kvikmynda-
leikstjórans Lars Von Trier fengið hefla
herstöð upp í hendumar:
„Það heitir í dag Fihnbyen þannig
að Reykjanesbær á þá bara að breytast
í Kvikmyndabæ eða Kvikbæinn því
það verður allt á hreyfingu þama. Fólk
þarf ekkert að hafa
áhyggjur af atvinnu, það
verður nóg að gera,“
segir Friðrik og bendir tfl
viðbótar á að í Keflavík
sé verið að byggja upp
Páll Magnússon
Ráðuneytið villkvik-
myndaklasa en stað-
setningin eróákveöin,
segir aöstoðarmaður
iðnaðarráðherra
vikingaþorp. „Það getum við hugsan-
lega notað saman þegar við förum í ís-
lendingasögumar.
Aðspurður um væntanlega sam-
keppni við flugvirkja um flugskýlin,
sérstaklega stærsta flugskýlið sem er
eftirsóttast, segir Friðrik:
„Stjómmálamenn verða bara að
meta hvað er hagstæðast-fyrir þjóðina.
Ekki endilega í Keflavík
Páll Magnússon, aðstoðarmaður
Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, segir að nákvæm-
lega þeim möguleika að koma fyrir
kvikmyndaveri á Keflavíkurfjugvelli
hafi ekki verið velt upp í ráðuriéýtinu.
„Hins vegar hefur ráðuneytið haft
áhuga á því að skoða hvort það væri
hægt að horfa á svona kvikmyndaklasa
eins og hefúr verið gert víða annars
staðar og meðal annars þama í Film-
byen þar sem einmitt gömul herstöð
var notuð," segir Páll og vísar þar til
kvikmyndavers Lars von Trier sem
Friðrik nefnir hér á undan.
Páll segir ákvörðun Bandaríkja-
stjómar um brotthvarfið frá Keflavík
svo nýtilkomna að ráðuneytismenn
hafi ekkert velt fyrir sér notkunar-
möguleikum á vallarsvæðinu. „Við
höfum hins vegar lýst áhuga á svona
kvikmyndaklasa; hvar sem hann yrði,“
segir hann.
gar@dv.is<None>
Varnarlaust land til sölu
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að Svarthöfði er lítið gefinn fyrir
ofbeldi. Sérstaklega hefur hann iÚan
bifur á öllum líkamsmeiðingum í
næsta nágrenni við hann sjálfan.
Það er því með trega í hjarta að
Svarthöfði kveður herinn góða sem
haldið hefur vemdarhendi yfir Svart-
höfða og fjölskyldu hans allar götur frá
því hann dró fyrst andann í þessum
heimi.
Satt best að segja hafði Svarthöfði
reiknað með því að þegar sá dagur
rennur upp að hann geispar endan-
lega golunni myndi sólin skína á
blaktandi gunnfána Bandaríkjahers á
Miðnesheiði. Hann myndi svona
„sove stille ind“ eins og Danir segja.
Fá snyrtflegt og hægt andlát í mestu
makindum. Áhyggjulaus.
En nú þarf að gera ráð fyrir þeim
möguleika að Svarthöfði hreinlega
lendi í miðjum stríðsátökum. Landið
er að verða vamarlaust. Allar Norður-
Víkings æfingarnar unnar fyrir gíg.
Herþyrlurnar hættar að fljúga yfir
víðernin með taktföstu vélarhljóði og
hafa kannski fiskað sinn síðasta ís-
lenska sjómann upp úr ólgusjó.
Stutt rannsókn leiðir í ljós að Svart-
höfði er haldinn akút kvíðaröskun og
þunglyndi. Nýja öryggiskerfið frá
Securitas nær ekki að breyta því.
Hættur steðja að.
Osama bin Laden, Litháar með
amfetamín og fleiri vilja leggja undir
sig landið okkar.
Hvað er tfl ráða? Ekki vfll Svart-
höfði drepast í kúlnahríð misyndis-
manna og heimsvaldasinna.
Lausnin er kannski bara einföld.
Að við flytjum öll brott af þessum
brimsorfna halaklepra á heimskort-
inu. Gemm upp kassann og skeflum í
lás. Kaupum faflegan eyjaklasa í Suð-
urhöfum og seljum allt hefla íslands-
klabbið einhverjum áhugasömum. Tfl
dæmis Kínveijum sem yrðu hér vað-
andi um allt eins og í Erró-málverid.
Væri það ekki bara gott á Bush?
Svarthöföi
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþaö bara gott,“segir Mörður Árnason, alþingismaöur og einn þeirra sem er kominn
íátta manna úrslit spurningakeppninnar Meistarinn á Stöð 2.„Þetta var ótrúleg heppni
gegn hinum sterka söngvara Stefáni Má Halldórssyni. Þaö er snúnara en ég hélt að sitja á
þessu sviöi. Ég var meira að segja búinn aö gleyma Halldóri Ásgrimssyni - en það veit
örugglega á gott.“