Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Page 46
46 LAUGARDACUR 18. MARS2006
Fréttir 0V
Stimpillögin felld úrgildi
Lesendur
Þennan dag árið 1766 felldi
breska þingið ársgömul stimpillög
úr gildi sem höfðu kveðið á um að
allir opinberir pappírar, dagblöð
og bæklingar í Bandaríkjunum
skyldu bera sérstakan skatt. Tekj-
urnar sem af þvf hlutust vógu upp á
móti kostnaði við að halda úti
breska hernum í Bandaríkjunum.
Lagasetningin vakti mikla reiði og
lentu sumir skattinnheimtumenn í
því að vera tjargaðir og fiðraðir af
reiðum nýlendubúum. Afram
héldu Bretar þó að auka skattbyrð-
ar nýlendubúanna og fyrr en varir
I dag
Útsendingar fyrstu útvarpsstöðvar landsins hófust á
þessum degi 1926. Forvígismaður var Ottó B. Arnar
símfræðingur. Félagið lagði upp laupana rúmu ári
síðar þegar rekstrargrundvöllur var ekki lengur fyrir
hendi.
«£. |;• ® /$3|'
if l
Thomas Jefferson
Leiddi Bandaríkjamenn
I frelsisstríðinu.
voru komnir skattar á nánast allt
sem kom frá Bretlandi til Ameríku.
Var þar til að mynda skattur á
pappír, blý, gler og te. Þessir at-
burðir juku áhyggjur nýlendubúa
af tilætlunum breska þingsins og
var sem olía á eld þeirra
átaka sem seinna leiddu
til upphafs bandaríska
frelsisstríðsins.
Úr bloggheimum
Allir geta ráðist á fsland
„Herinn er að fara... og mér
er aiveg skítsama. Eða
samt ekki...jú kannski
smá. Ég var að velta
einufyrirmér...það
getur hvaða þjóð ráðist
á okkur núna og við
höfum ekkert til að verja
okkurnema Bandarikjamenn
i þúsundum kllómetrafjarlægð. Nato hef-
ur engar þotur efeitthvað kemur upp á
Noröurlöndunum.
Og ég tala ekki um völlinn mar... allt fólk-
ið fer aftur til US. Og hvað með Wendy's?
Hvað með allar kanamellurnar? Hvað
með trcik and treat sem ég fór alltafá
þegar ég bjó I Njarðvlk? Þetta á eftir að
vera hræðilegt... Mér líst ekkert á blikuna.
tsland erá leiðinni til helvltis."
BoðiLogason
- bodi.mis.is
Svartir í sænskutíma
Fórslðan um daginn I minn fyrsta
sænskutlma, en erum við 4út-
lendingar I liðinu sem voru
settir I sænskutlma. Eigum
við að fara 2var / viku I
þessa sænskukennslu [...]
Þannig við 4 erum þarna
saman komnir, allir svartir
og nettir (ég tel mig allavega
vera svartan að innann) til að reynað
læra þetta stórskemmtilega tungumál.
Reyndar er ég farinn að skilja sænskuna
sona þokkalega og slðan er ég einnig far-
inn að reynað bulla mig eikkvað áfram I
henni - en tala ég sona semi skandena-
vísku, blanda sænsku, dönsku, Islensku og
ensku saman I einn graut og kemur þá út
þessa stórskemmtilega tungumál mitt
sem erörugglega óskiljanlegt.."
Emil Hallfreðsson
- Emmlhall.com
Bllastæðaverðir eru mýs
„Efþað er einhver stofnun sem mér llkar
illa við I minni ástsælu borg þá
erþað bllastæðasjóður. Nú
hafa þessir kollegar mlnir
haft afmér 5000 krónum á
einum mánuði og verð ég
að segja að mér er ekki
skemmt. Bllastæðaverðirnir eru
eins og litlar mýs og er saklausum borgur-
um ekki sýnd nein miskunn. Manni er ekki
óhætt að svo mikið sem skreppa inn I
verslun til að skipta Ismámynt fyrir stöðu-
mælinn án þess að iðjusamur bllastæða-
vörður sjái sér leik á borði og laumi sekt-
armiða undir þurrkublaöið hjá manni."
Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir
- blog.central.is/lovisa2
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta I Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
Herstöðin verði túristaþorp
Þór Jóhannesson
telurlslandi best
borgiðsem 51sta
fylkiUSA.
íbúi á Suöumesjum skrifar
Nú eru allir að velta því fyrir sér
hvað verði um herstöðina á Miðnes-
heiði. Á svæðinu eru veitingastaðir,
verslunarmiðstöð, sundlaug, kvik-
myndahús, keilusalur og barir, fyrir
utan íbúðabyggingar. í ljósi þeirra
staðreynda, að ferðamannastraum-
urinn til íslands er alltaf að aukast
og mörg flugfélög millilenda í Kefla-
vík á leið sinni vestur um haf og öf-
ugt, væri tilvalið að nýta þetta svæði
til að byggja upp ferðamannastað
með hótelum þar sem hægt er að
bjóða upp á alla þá þjónustu sem
ferðamenn þarfnast. Þarna eru veit-
ingastaðir, verslanir með íslenskum
vörum, heilsuheimili fyrir þá sem
vilja nýta sér Bláa lónið og lækn-
ingamátt þess.
Nú skilst mér að Reykjanesbær
ætli sér að reisa sædýragarð á Suð-
urnesjum. Bláa lónið er til staðar og
svo ætlar bæjarfélagið að búa til vík-
ingasafn með öllu tilheyrandi. Ég tel
J Bláa lónið Lesandi
j 5egir að Suðurnesin
I hafi upp á margt
I spennandi að bjóða
3 fyrir ferðamenn.
isþ/s'
■*' '-£5> ‘
j '* I * 3 * S * * *&('£s>
rí^jm ■
Vesturbæingurinn segir
Sjálfstæðis-
að Reykjanesið geti í náinni ffamtíð
boðið upp á mjög spennandi val-
kosti fyrir ferðamenn sem vilja
heimsækja land sem er á miðjum
skilum Evrasíuflekans og Amer-
íkuflekans; eldvirkni, jarðhiti, ein-
stök náttúrufegurð, hreint loft og í
rauninni óteljandi möguleikar til að
eiga einstakt og öðruvísi frí. Nýtum
okkur þetta einstaka tækifæri og
með þessu gætu Suðurnesjamenn
háft atvinnu- og viðskiptatækifæri
og næg atvinnuskapandi tækifæri til
þess að þurfa ekki að sakna her-
stöðvarinnar og atvinnunnar sem
fólk hafði þar áður.
Ríkisstjórnin höfð að fíflum
Sigrún Siguröardóttir skrifar:
Nú held ég að allir íslendingar
sjái hvað Davíð Oddsson og ríkis-
stjórnin eru búin að láta hafa sig að
miklum fíflum. Þegar hann sem for-
sætisráðherra tók þá ákvörðun
ásamt öðrum ríkisstjórnarmönnum
að styðja innrás Bandaríkjahers í
írak, þá þorðu þeir ekki annað af
ótta við að styggja bandaríkjastjóm
alla hermenn í
brott frá fs-
landi
leggja
niður
her-
stöð-
verið friðarsinnar em búnir að fá
það orð á sig um heimsbyggðina að
vera hlynntir stríði. Ég held að núna
þegar Bandaríkjaher fer frá landinu
eigum við að lýsa yfir ffiðaráædun
íslendinga og biðja íraka og alla
heimsbyggðina afsökunar á að hafa
gert þau mistök að styðja innrásina í
Irak.
Haldið til haqa
Einhver mglingur varð á les-
endabréfi sem birtist í blaðinu
þriðjudaginn 14. mars þegar nafn-
ið Kristinn Snæland var birt yfir
pistíinum „Ofsóknir gegn reyking-
arfólki". Pistilinn skrifaði Harald-
ur Diego en ekki Kristinn Snæ-
land, lflct og haldið var fram.
Nú verðum við Islendingar að
vígbúast í fyrsta skipti í sögu sjálf-
stæðis okkár. Það liggur í augum
uppi að þegar herinnn ffá Banda-
rflcjunum fer að vamir okkar em
engar. Við eigum ekki séns í yfir-
vofandi óvini okkar eins og Norð-
menn, Svía, svo ég tali ekki um
Dani.
Það liggur f augum uppi að
fyrrum herraþjóðir okkar hljóta að
berjast um að hertaka okkur og
gera að sfnum þegnum. Danirem
með öflugan her sem getur ráðist á
okkur frá láði og legi og úr lofti,
þótt langt sé að fara. Sama á við
um Norðmenn og Svía þó að
styttri sé leið þeirra.
Ég er að minnsta kosti skít-
hræddur, titra alveg, og þá sér í
lagi yfir Dönum því ef við pælum í
því þá veittu þeir okkur aldrei sjálf-
stæði. Það vita allir að við nýttum
okkur tækifærið og hrifsuðum
sjálfstæðið til okkar þegar Hitíer
hertók Danmörku.
í alvöru talað! Hvað eigum við
að gera þegar vinir okkar og vemd-
arar frá Bandaríkjunum fara?
Fyrir mína hönd segi ég, og
grátbið, „elsku Búsi og Condólísa
Grjón, ekki yfirgefa mig og mína
þjóð! Sjálfstæðið sem þið veittuð
okkur og hafið ávallt verið stór
hlutí af, sjálfstæðinu sem í raun
hefúr mátt kalla „hálfsjálfstæði"
því þjóð ykkar hefúr deilt því með
okkur frá upphafi. Gerið okkur
frekar að 51sta rfld USA svo við eig-
um möguleika gegn fyrrum herra-
þjóða á innrás.
Ég segi bara, eins og þið segið,
please, please help me. Eða vom
það Bítíamir?"
„Laibach er ekki svarið heldur
spuming,“ segir Ólafur B. Þórsson
menningarfr ömuður. Ólafur stendur
í ströngu þessa dagana við að skipu-
leggja tónleika slóvensku hljómsveit-
arinnar Laibach sem spilar á NASA
22. mars.
„Laibaich var stofnuð 7 dögum
eftir dauða Titos einræðisherra í
Júgóslavíu. Laibach stóð fyrir ein-
staklingshyggjuna í einræðisríki.
Með tónlist sinni og sviðsframkomu
tóku þeir sér ákveðið vald. Það leiddi
til þess að verk þeirra vom fljótlega
bönnuð. Sviðsframkomu þeirra,
textana og nafnið á hljómsveitinni
töldu slóvensk yfirvöld vera tabú.
Nafiiið Laibach er þýsk þýðing á
Lubjiana, höfuðborg Slóveníu. Með
þessari nafngift voru þeir að vekja
upp fortíðardrauga frá seinni heim-
styrjöldinni, en Þjóðverjar réðu þar
lögum og lofum á þeim tíma."
Ólafur segir að Laibach flytji tón-
á Ramstein og Ham
list sína jafitan í slóvenskum herbún-
ingum. Á sínum ú'ma fór það mjög
fyrir brjóstið á júgóslavneskum yfir-
völdum. Einkennisbúningar em
tákn valdsins sem yfirvöld ein telja
sig hafa.
„í textum Laibach er talið niður.
Þeir telja niður til endaloka heims-
ins," segir Ólafur.
„Fyrir utan frábæra sviðsfram-
komu og góða texta flytur Laibach
kynngimagnaða rokktónlist sem hef-
ur haft áhrif á tvær kynslóðir í Mið-
og Austur-Evrópu. Þeir hafa einnig
haft mikil áhrif á hljómsveitir eins og
Nine Inch Nails, Marilyn Manson,
Ramstein, að ógleymdum okkar ást-
kæm HAM."
Ólafur telur að Balkansskaga-
stríðið hafi haft mikil áhrif á tónlist
Laibach. „Ef fólk vill upplifa rosalega
sviðsframkomu og kröftuga tónlist
em Laibach-tónleikarnir nokkuð
sem enginn ætti að láta fram hjá sér
fara."
Ólafur er ekki hættur að kynna
mörbúann fyrir slóvenskri menn-
ingu. í apríl verður kynning á sló-
venskri matargerð og vináttuskák-
mót íslendinga og Slóvena verður
haldið seinna í vor.
„Slóvenía er miklu vestrænna
land en íslendingar gera sér grein
fyrir. Nálægð þeirra við Austurrfld
hefur haft mikil áhrif á menningu
þeirra. Eitt sem Slóvenar þekkja jafn
vel og Islendingar er hvemig það er
að búa undir erlendu valdi. Eins og
ísland fékk Slóvama fyrst sjálfstæði á
20. öldinni, eftirBalkansskagastríðið.
Þá höfðu þeir ekki þekkt sjálfstæði í
1200 ár."
Ólafur erfæddur og uppalinn I Reykjavík. Hann er sonur hjónanna Þors Fannars
Ólafssonar og Oddnýjar Ólafsdóttur. Ólafur er menntaður kY.ikmy"‘!®9®rð*', .
maður. Hefur mest starfað við eigin verkefni og garðyrkjustorf. Mikið skaksém.