Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Blaðsíða 17
DV Sport FÖSTUDAGUR 24. MARS 2006 17 BOLTINN | BEINNI VEiSLUSALUR afmwll, ítffggír < gjwulr ojj uínVrmamKvajwí• POOL & SNOKER, Hverfisgata 46 s: 55 25 300 Frábær stemning Það er líf og fjör á pöllunum í Borgarnesi og Stykkishálmi þegar heimamenn spila. DV-myndir: Eiríkur og Hari -MHii- Everton best eftiráramót Það kann að koma mörgum á óvart en ef leikir árs- ins 2006 í ensku úr- valsdeildinni til þessa eru teknir saman kemur í ljós að Everton er með besta árangurinn. Af þeim tíu leikjum sem Ever- ton hefur spilað hefur það unnið sjö sigra og gert tvö jafntefli. Chelsea, sem er á toppi deildarinnar sem stendur, er ekki með nema ijórða besta árangurinn. Lið- ið hefur tapað tveimur leikj- um á árinu og segir það sitt. Blackburn er í öðru sæti á þessum lista og Liverpool í því þriðja. Manchester United og Arsenal koma í næstu sætum á eftir Chelsea. Elmar Dan til Fjarðabyggðar? Elmar Dan Sigþórsson, knatt- spymumaður með Víking Reykjavík, gæti verið á leiðinni í Fjarðabyggð þar sem hann myndi hitta fyrir sinn gamla þjálfara hjá KA, Þor- vald örlygsson. Fram kemur á stuðningsmannasíðu Vík- inga að tilboð haii borist ffá Fjarðabyggð en viðræður hafi.siglt í strand þar sem ekki hafi sámist um ásættan- legt kaupverð fyrir báða aðOa. Elmar Dan sleit kross- bönd í hné síðasta sumar og verður ekki orðinn leikfær fyrr en í byrjun júm'. Hafþór Ingi Gunnarsson hefur spilað með Snæfelli í undanúrslitum úrslitakeppninn- ar í körfubolta en að þessu sinni er hann kominn þangað með sínu uppeldisfélagi Skallagrími, því liði sem hann hefur spilað með í átta af níu tímabilum á sínum ferli. L Cole missiraf tímabilinu Andy Cole, sóknarmaður Manchester City, mun ekkert geta leikið með iiðinu það sem eftir lifir leiktíðar vegna hnémeiðsla. Hann hefur misst af síðustu sjö leikjum liðsins en þarf að gangast undir aðgerð öðru sinni á skömmum tíma. Manchester City tapaði fyrir West Ham í fjórðungsúrslitum ensku bik- arkeppninnar á mánudaginn og mætir um helgina Chel- sea í ensku úrvalsdeifdinni. Tíu leikmenn liðsins eru frá vegna meiðsla og em því góð ráð dýr fyrir Stuart Pearce, knattspymustjóra liðsins. Solskjær boðinn nýr samningur Manchester United mun vera reiðubúið að bjóða norska framheijan- um Ole Gunnar Sol- skjær nýjan samn- ingviðfélagið, þrátt fyrir ítrekuð meiðsli leikmannsins. Hann hefur lítið getað leildð með liðinu undanfarin þrjú ár og er nú að jafiia sig á kinn- beinsbroti. Yrði samningur- inn sennilega þess eðlis að Ole Gunnar fengi borgað fyr- ir hvem leik sem hann leikur fyrir félagið. „Við viljum haida Ole í félaginu og ætl- um að ganga frá þvf,“ sagði David Gill, framkvæmda- stjóri félagsins. og ono oopgoesiogooo bok m obbor Hafþór Ingi Gunnarsson þekkir kannski betur en félagar hans þá stöðu sem Skallagrímur er komið í í úrslitakeppni Iceland Ex- press-deildar karla. Hafþór Ingi var nefnilega í liði Snæfells sem sló í gegn í úrslitakeppninni fyrir tveimur árum líkt og Skalla- grímur nú á sínu öðru ári í deildinni. Nú er Hafþór í lykilhlut- verki hjá Skallagrími sem heimsækir fslandsmeistara Keflavíkur á morgun í fyrsta leik undanúrslitanna. „Það er rosafega mikill áhugi í bænum og nú er bara eitt umræðu- efni í Borganesi og það er körfubolti," segir Hafþór Ingi Gunnarsson en það er hvergi eins góð aðsókn á körfú- boltaleiki og einmitt í Borgarnesi og þessi góði stuðningur hefur reynst Skallagrímsmönnum vel í vetur. „Það er mjög gaman að upplifa þetta aftur en ég verð að viðurkenna að þetta stendur mér aðeins nær því nú er ég að upplifa þetta með mínu liði. Þetta er annars mjög líkt og Borgarnes og Stykkishólmur eiga það sameiginlegt að fólkið þrífst á þessu,“ segir Hafþór Ingi þegar hann er beðinn um að bera saman ævintýrið með Snæfelli fyrir tveimur árum og það sem er nú í gangi með Skallagrími. Mikilvægt að klára þá í tveimur leikjum „Það var mikilvægt fyrir okkur að klára Grindavíkurseríuna í tveimur Tók Johnson úr umferð Grindvíkingurinn Jeremiah Johnson skoraði aðeins þrjú stig og klikkaði á 15 af löskotum sínum isíðustu þremur leikhlutunum i öðrum leiknum á móti Skaiiagrimi enda i góðri gæsiu Hafþórs Inga. DV-mynd Vikurfréttir/Þorgils leikjum því við þurftum á hvíldinni að halda. Það var mjög sætt að ná að vinna þá í Grindavík þar sem við höfðum aldrei unnið áður undir stjóm VaIIa,“ segir Hafþór Ingi sem greip í stöðu leikstjómanda í leiknum með góðum árangri. „Dimitar meidd- ist í byrjun leiks og ég kom upp með boltann en annars er það bara þannig að ég tek að mér það hlutverk sem þjálfarinn vill að ég skili," segir Haf- þór Ingi sem var einn af fimm íslensk- um leikmönnum sem lönduðu sigr- inum í framlengingu eftir að alfir er- lendu leikmenn liðsins vom komnir með fimm villur. „Við íslendingarnir í liðinu sýndum mjög góðan karakter með því að klára leikinn," segir Haf- þór Ingi sem skoraði 17 stig í leiknum. Kominn tími á íslendingana „Það er mikið búið að tala um út- lendingana okkar í vetur og við höf- um ekkert á móti því en það er kom- inn tími á að íslendingamir fari að gera eitthvað líka. AUt byrjunarlið okkar og sjötti maðurinn líka em mjög góðar þriggja stiga skyttur," seg- ir Hafþór Ingi og bætir við: „Liðið small saman þegar George Byrd kom því þar var kominn þessi hlekkur sem liðið okkar vantaði," segir Hafþór en styrkleiki Byrds inni í teig dregur að sér varnir andstæðinganna og opnar góð færi fyrir skyttur Borgnesinga en liðið setti alls niður 23 þrista í leikj- unum tveimur gegn Grindavík. Góður gegn Grindavik Hafþórlngi Gunn- arsson sést hér I leik með Skattagrími gegn Grindavík i átta liða úrslitunum. Ætlum að láta þá spila vörn á okkur „Við ætlum að fara langt. Við emm með hörkulið og alla Borgnesingana á bak við okkur. Við hlökkum mikið til að fara tíl Keflavíkur á laugardaginn. Þetta verður erfitt en við erum þessa stundina að gera okkur tilbúna fyrir einvígi. Við ætlum að láta þá spilá" vörn á okkur, ekki hleypa leiknum upp í einhverja óþarfa vitíeysu og halda áfram að spila okkar bolta," segir Hafþór Ingi en ekkert lið hefur slegið Keflavík út úr úrslitakeppninni frá því árið 2002 þegar Keflavflc tapaði fyrir Njarðvík í lokaúrslitunum. ooj@dv.is Keflavík vann fyrsta undanúrslitaleikinn gegn Grindavík, 90-83, á útivelli Keflavíkurstelpur fundu meistarataktinn á nýjan leik Kvennalið Keflavíkur kom inn í úrslitakeppnina með tvö slæm töp á bakinu, fyrst 43 stiga tap á heimavelli gegn Haukum og svo tap fyrir Grindavík í loka- umferð deildar- keppninnar sem kostaði liðið heima- vallarréttinn í undanúrslita- einvígi félag- anna. Keflavík úr því í fyrsta leiknum við Grindavík í úrslitakeppn- inni því sjö stíga sigur liðsins í Flott í fyrsta leik Lakiste "eflavík, fékk 44 fyrirfyrsta n Grindavík, var J, H fráköst, 9 og 5 stolna DV-mynd Heiða Grindavflc, 90-83, þýðir að íslands- meistarar síðustu þriggja ára geta komist í lokaúrslitin með sigri á Grindavík á heimavelli sínum í kvöld. Það var ljóst frá byrjun leiksins að Keflavíkurstelpur voru búnar að finna meistarataktinn sinn á nýjan leik, þær mættu einbeittar til leiks náðu strax 11 stiga forskoti í upp- hafi (13-2, 5 mín.) og voru með frumkvæðið næstum því allan leik- inn eftír það. Grindavíkurliðið beit þó frá sér og náði meðal annars að komast yfir í bæði þriðja og fjórða leikhluta en Keflavíkurliðið átti alltaf svar og það var síðan María Ben Erlingsdóttir sem kórónaði stórleik sinn með magnaðri þriggja stiga körfu 19 sekúndum fyrir leiks- lok. María Ben (23 stig) var ein af mörgum leikmörmum Keflavíkur sem léku vel, Lakiste Barkus spilaði vel fyrir liðið (9 stoðsendingar) og var að auki með 31 stig og 14 frá- köst, Birna Valgarðsdóttir (18 stig) fór fyrir liðinu í vörn og sókn eins og fyrirliða sæmir og þá má ekki gleyma Svövu Ósk Stefánsdóttur (10 stig, 4 stoðsendingar, 4 stolnir) sem tók hárréttar ákvarðanir á báðum endum vallarins. Hjá Grindavflc voru Tamara Stocks (33 stig, 14 frá- köst, 12 fiskaðar villur, 5 varin) og” Hildur Sigurðardóttir (18 stig, 9 frá- köst) allt í öllu og lovana Lilja Stef- ánsdóttír átti magnaðan þriðja leik- hluta þegar hún skoraði 12 stig og átti 3 stoðsendingar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.