Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Blaðsíða 20
Menning DV 20 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2006 Þegar Pétur var búinn að hitta Sigur- björn, sagði hann, að byshoppurinn vildi að ég kæmi'til tals við sig. Sigurbjörn sagði Pétri, að andúð mín á Himnafeðgum og Heilögumanda, or- sakaðist efalaust af flækum í sál, sem væri í mér. Ég spurði Pétur hvað sál væri, hvern- ig hún hefði komist oní mig með flæk- um innaní sér, og hvemig Sigurbjöm gæti fullyrðt, að þetta dót væri þar? (.Helgi Hóseasson, Ríó ogrögn þess.) 1%^ Halldór Bragason blúsari Auðvitað verðurhann að spila á Blúshátíð I Reykjavík, auk allra blúsarasem vettl- ingigeta valdið. Blúshátíð nálgast Á þriðjudaginn verður Blúshátíð sett í Reykjavík, en miðasala mun nú vera í fúllum gangi. Blúsdívurnar frá Chicago, ; Ðeitra Farr, Zora Young og Grana Louis, og Mississippiblúsmaður- inn Fmteland Jackson, verða aðal- gestir Blúshátíðar, auk rjóma ís- lenskra blústónlistarmanna, en hátíðin fer ffarn á Nordica Hotel dagana 11.-13. apríl ogíFríkirkj- unni á föstudaginn langa. Blúshátíð í Reykjavík hefur aldrei boðið upp á jafn glæsilega og Qölbreytta dagskrá, en á stór- tónleikum á Nordica kl. 21 fyrsta kvöldið koma fram Andrea Gylfa- dóttir, Páll Rósinkranz, Skaf og fleiri. Fmteland Jackson fen með gesti í blúsferð um árósa Miss- issippi á stórtónleikum á miðviku- dagskvöld, en þar koma einnig fram Dóri Braga, Siggi Sig., Kmmmamir, Fjallaskáldin og óvæntur leynigestur. Skírdags- kvöld taka Dívurnar þrjár völdin með Vinum Dóra, en að kvöldi föstudagsins langa syngja þær gospel og sáima ásamt Fruteland Jackson og íslenskum tónlistar- mönnum í Fríkirkjunni í Reykja- vík. Dagskrá og fréttir em á www.blues.is og em miðar seldir á ■ eftirtöldum stöðum: www.midi.is, Skífan Laugavegi 26, Skffan Smáralind, Skífan Kringlunni, BT Akureyri og BT Selfossi. Hversveqna giftirfólksig? Arina Einarsdóttir félagsráð- gjafi flytur fyrirlestur um stað- festa samvist á íslandi í Odda í hádeginu í dag. Um þessar mundir bjóða Samtökin 78 til hádegisíyrirlestra í Háskóla íslands í samvinnu við fé- lagsvísindadeild HI, hugvísinda- stofnun HÍ, RIKK, rannsókn- arstofu í kvenna- og kynjafræðum, Mannréttindaskrifstofu fslands og FSS, Félag STK-stúdenta. Fyr- irlestur önnu nefnist „örugg með "líflð og vel gift. Staðfest samvist - fyrir hverja og hvers vegna?“ Anna byggir fyrirlesturinn á nið- urstöðum doktorsrannsóknar sinnar um staðfesta samvist á ís- Olandi, en þar fjallar hún einkum um það hvers vegna fólk giftir sig og hverju það breytti fyrir þátt- • takendur í rannsókninni að fá formlega staðfestingu á sambandi sínu. Anna lauk MA-prófi í uppeld- is- og menntunarfræði frá Há- skóla íslands árið 2000, en starfs- réttindanámi f félagsráðgjöf frá sama skóla 1997. Hún stundar nú doktorsnám í félagsvísindum við South Bank University f London. í Jafnframt námi og rannsóknum er Anna stundakennari við þann skóla, svo og við Kings College í London. „Sígildur rokksöngleikur, fullur af húmor og kraftmikilli tónlist.“ Svo er Litlu hryllingsbúðinni lýst, en hún verður frumsýnd hjá Leikfélagi Akureyrar í kvöld. Guðjón Davíð Karlsson er kallaður Gói af þeim sem þekkja hann, en i sýning- unni heitir hann Baldur og stendur frammi fyrir miklum hremmingum. Anna Einarsdótt- ir félagsráðgjafi Örugg með lífíð og vel gift, heitir erindi hennar. Vigdís Hrefna Pálsdótt- ir, Þráinn Karlsson og Guðjón Davíð Karlsson I hlutverkum sínum ILitlu hryllingsbúðinni. Guðjón Davíð hefur sungið í Grease, Hárinu og Kabarett og því er hann enginn aukvisi. Þó viður- kennir hann að það verði áreiðan- lega svolítið álag þegar Hryllings- búðin verður sýnd tvisvar á kvöldi. „Ég kvíði þó engu, vegna þess að það sem skiptir öllu máli er að hafa gaman að þvf sem maður er að gera,“ segir Gói. „Þetta er nátt- úrulega sígildur söngleikur, frá- bærlega skrifaður, en sagan er ein- föld og grípandi og tónlistin æðis- leg. Plantan er auðvitað mögnuð og ástarsagan ofboðslega falleg. Þetta eru lög sem langflestir þekkja og eru alveg frá ljúfsárum ballöð- um, upp í rosa rokk. Þetta er for- múla sem hefur ekki klikkað hing- að til,“ segir Gói og er bersýnilega yfir sig hrifinn af Hryllingsbúðinni og ekki síst samstarfsfólki sínu, leikurunum og leikstjóranum, Magnúsi Geir Þórðarsyni. „Þetta er frábær hópur, Magnús veit nákvæmlega hvað hann vill og all- ir leggjast á eitt til þess að gera sýn- inguna glæsilega. Það er líka svo góður andi í húsinu.“ Myndi aldrei drepa neinn En er einhver dýpri boðskapur sem Hryllingsbúðin ber með sér? Á hún alltaf erindi? „Það er einmitt svo skemmti- legt að ég held að allir geti tengt við þessa sögu. Börnin geta komið til að sjá töfra leikhússins og plöntu sem hreyfir munninn, en fullorðnir geta meðtekið boðskap verksins. Söguna um þennan sak- lausa dreng sem er fastur í von- lausri búðarholu og aldrei hefur selt neitt. Blómið illa kemur uppí hendurnar á honum og það dælast inn peningarnir. Skyndilega brosir lífið við honum; hann á séns í stelpuna sem áður vildi hann ekki, blöðin vilja taka viðtal og búðar- eigandinn vill taka hann upp á sína arma. En til að öðlast þetta allt þarf hann að færa stórar fórnir - og það gerir hann, illu heilli." Gói segist auðvitað geta tengt við sögupersónu Baldurs upp að vissu marki, þó að hann léti sér aldrei koma til hugar að drepa nokkurn mann. „öfgarnar eru töluverðar í verkinu, enda er það ævintýri og boðskapurinn er skýr.“ Gemmér! Auk Guðjóns Davíðs fara með aðalhlutverkin í sýningunni þau Vigdís Hrefna Pálsdóttir, sem leik- ur hina einföldu Auði, Andrea Gylfadóttir í hlutverki mannætu- plöntunnar Auðar II og Jóhannes Haukur Jóhannesson leikur sadíska tannlækninn. Hljómdiskur með söngvum úr sýningunni er einnig kominn út og lagið Gemmér með Andreu Gylfadóttur nýtur nokkurra vinsælda á öldum ljósvakans. Kristján Edelstein stjórnaði upptökum en hann er jaJfnframt tónlistarstjóri sýningar- innar, en Megas er þýðandi söng- textanna. Litla hryllingsbúðin sló í gegn snemma á níunda áratugnum þegar hún var frumsýnd og verkið hefúr verið sýnt í leikhúsum um allan heim síðan. Þetta er í þriðja skipti sem Hryllingsbúðin er sett m Guðjón Davið Karlsson Segist ekki hafa gengið eins langtog persónan Baldur. Snögglega Baldur Guðjón Davlð glímir við plöntuna. upp í atvinnuleikhúsi á íslandi. hún m.a. Steve Martin í hlutverki Hitt leikhúsið í íslensku óperunni tannlæknisins. árið 1984 og Borgarleikhúsið árið Miðasala er á heimasíðu leik- 1998. Kvikmynd var gerð upp úr hússins, www.leikfelag.is eða í söngleiknum árið 1988 og skartaði síma 4 600 200.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.