Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2006, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2006, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 Fyrst og fremst DV Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar Ritstjórar: Björgvin Guðmundsson Páll Baldvin Baldvinsson Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, slmi: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot: 550 5090 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is Auglýsingar: auglysingar@dv.is. Umbrot: 365 - prentmiðlar. Prentvinnsla: (safoldarprentsmiðja. Dreifing: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og úr gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Björgvin Guðmundsson heima og að heiman Geimfer.ðir Hun er minmsstæ sagan af verkfræðingn- um Burt Rutan, sem sögð var í fréttaþættin- um 60 mínútum fyrir nokkrum árum. Rutan á sér þann stóra draum að geta sent venjulegt fólk út í geim. Það eigi ekki bara að vera á færi ríkisstjórna og útvaldra að ferðast um himinhvolfin. Af miklum eldmóði og krafti hefur fyrirtæki hans smíðað fjölmargar geimskutlur og sent nokkrar þeirra upp í háloftin. Rutan skaut föstum skotum á banda- rísku geim- ferða- stofnun- ina, NASA, í þættinum. Sagði hann að þrátt fyrir mörg þúsund milljarða fjárframlög tækist þeim ekki neitt af því sem hann gerði fyrir mun minni pening og á skemmri tíma. Þetta væri klassískt dæmi um svifaseina ríkisstofnun. Ríkið ætti ekki að vasast í þessu frekar en öðru. Geimferðir ættu að vera viðfangsefni fyrirtækja sem vilja þjónusta fólk. RSa!ið(«E%M|>a þegar Rutan tók við viðurkenningu úr hendi Ronalds Reagan, sem þá var Bandaríkjaforseti. Hafði Rutan þá tekist að senda mannaða flaug út í geim. í þakkaræðunni sagði Rutan að hann hefði aðeins þurft að fylla út tvö eyðublöð áður en verkið var fullkomn- að; eyðublað fyrir flughæf- isskfrteini og til að fá skráningar- númer á geimflaug- ina. Þetta virtist koma Reagan þægilega á óvart enda var hann ekki maður skriffinnskunnar. Verslunarráð benti á það í gær að það þyrfti að fylla út fjölmörg eyðublöð og útvega tugi fylgiskjala til að opna veitingahús á fslandi. Eins gott að enginn fslendingur vilji smíða geimflaug fyrir almenning. tfmsL Leiðari Eframmagrein íMogganum er til marks um málefnalega stööu hins nýja ríkisútvarpsstjóra erfull ástœða til að hafa áhyggjur af framtíð Ríkisút- varpsins. Páll Baldvin Baldvinsson 'hBuntfaj [fri ítabi-aohSi 1. Oft er útrás betri en innrás. 2. Verðurer banka- maðurinn launa sinna. 3. Oft flækjast fjölmiðlar fyrir með fjasi. 4. Sjaldan fellur Flóki langt frá friðnum. 5. Alltervænt sem vinstra er grænt. Ólíkt hafast menn að Neytendum er fagnaðarefhi að einka- fyrirtæki í útvarpsrekstri hafa komist að samkomulagi um gagnkvæman aðgang að dreiflkerfum sínum: Síminn og Dagsbrún hafa samið að á haustmánuðum verði lokið samstiga átaki um að bjóða bæði á stafrænum fykli Dagsbrúnarmanna og veitum Símans bæði opnar og læstar stöðv- ar. Þar með er rutt úr vegi hindrunum fyrir neytendur og heimilisfólki um allt land gert bærilegra notendaumhverfi á þessu sviði fjölmiðfunar. Á sama tíma og hindranir eru að brotna niður á sjónvarpsmarkaði eykst flóra út- varpsstöðva á neti og hillir í stafrænan rekst- ur þeirra. Allt eru það framfaraspor. Nýtt fjölmiðlafrumvarp er boðað með afmarkaðri eignaraðild og verðm fróðlegt að sjá meg- intexta þess. Lagaumhverfið sem stjómvöld leggja tU mvm líldega draga dám af raun- veruleikanum, einkum þeirri stefiiu að halda áfram rekstri Ríkisútvarps sem afþreying- armiðils á samkeppnismarkaði. Býttar þar engu þótt galopið frumvarp menntamáia- ráðherra um Ríkisútvarpið hf. verði orðið að lögum. Gagnrýni á skattstyrkt hlutafélag lætur ráðherrann sem vind um eyru þjóta og ber við þeim rökum að ekki sé ástæða að ræða það mál við hvem þann sem geti hugsanlega átt í einhverri samkeppni við Ríkisútvarp- ið. Hagsmunatengsl dæmi menn úr umræð- unni. Samkvæmt því ætti enginn að geta rætt Rfldsútvarp sem á í því hlut og borgar til þess samkvæmt lögum. Allir væm úr feik. Hversvegna vilja ráðherra og nú rfldsút- varpsstjórinn ekki opinbera umræðu um hlutafélagið RUV? Ætti rfldsútvarpsstjórinn ekki að fagna henni? Raunar hefiir hann fátt mátt segja um það mál. Ýmsir telja það ekki hans hlutverk, ekld við hæfi, aðrir h'ta bein- línis á það sem embættisskyldu hans. Verra er að ef rfldsútvarpsstjórinn opn- ar munn um RUV fyrr og nú getur hann fátt sagt: hann veit ekld hver eiginfjárstaða hlutafélagsins verður. Hann veit ekki hvemig menningarstofnun hann hyggst reka. Hann veit ekki hvemig háttað verður uppsögn- um og starfslokasamningum. Hann veit ekki hvort nýtt RUV á lögsögu yfir eldra efni úr fórum þess gamla fyrirtækis sem hann nú veitir forstöðu. Hann veit að hlutafélag- ið verður að reiða sig á nær miljarð í aug- lýsingatekjur. Hann er ekki einu sinni klár á hvort hann verður þar í vinnu, hvorki sem fréttalesari eða forstjóri. Veit hann nú fyrir páska hvað tapið var á RUV á síðasta ári? Rfldsútvarpsstjórinn sá ástæðu til að hnýta í leiðarahöfunda Fréttablaðsins og DV vegna skrifa um RUV og frumvarpið í rammagrein í Mogganum. Ef sú grein er til marks um málefnalega stöðu hins nýja forstjóra er fiill ástæða til að hafa áhyggjur af framtíð Rík- isútvarpsins. Kjósi rfldsútvarpsstjórinn að blanda sér frekar í opinbera umræðu um framtíð þess er óskandi að embættismað- ur þjóðarinnar nýtí tækifærið til að upplýsa skattgreiðendur um fyrirætlanir sínar um hið nýja félag,ieitaásjár þeirra ogstuðnings um brýn mál sem hann vill sjá í rekstrinum til framfara fyrir fyrirtæki með stórt og enn óút- skýrt hlutverk. í stað þess að pakka skítapill- um í svarta ramma Moggans. Hann er jú op- inber starfsmaður. i'jsá' «o « XI <D E A ÞESSUM TÍMUM þar sem einyrkj- arnir og fjölskyldufyrirtækin eiga undir högg að sækja í baráttunni við stórfyrirtæki sem ætla sér allt að gleypa er gott að vita til þess að ein stofnun stendur vaktina þegar kem- ur að stórfjölskyldunni. Það er Þjóð- kirkjan undir styrkri stjórn biskups- Fyrst og fremst ins Karls Sigurbjörnssonar. í hans tíð hefitr það verið viðtekin venja að syn- ir, tengdasynir og dætur hafa getað fetað í fótspor feðranna, mæðranna og jafnvel tengdafeðranna ef ekki vill betur til. FJÖLSKYLDUGILDIN DRÓGU meðal annars sjálfan biskupinn fyrir dóm á dögunum þegar hann var dæmd- ur fyrir að brjóta stjórnsýslulög eftir að Biskupsstofa skipaði tengdason hans, Sigurð Arnarsson, sem sendi- ráðsprest í London. Svo virðist sem Karl ogfélagar hafi ekki lært af þess- um dómi. FYRIR SKÖMMU VAR auglýst staða prests í hálft starf í Laugarneskirkju. Fimm einstaklingar, sem allir hafa þjónað kirkjunni af stakri prýði með einum eða öðrum hætti, sóttu um en umsóknarferlið var aldrei neitt sér- staklega spennandi. Á meðál um- sækjenda var séra Hildur Eir Bolla- dóttir, systir séra Jónu Hrannar Bolladóttur, eiginkonu séra Bjarna Karlssonar, sóknarprests í Laugar- neskirkju. Það kemur kannski ekki á óvart að Hildur Eir fékk starfið, líkt og flestir höfðu spáð fyrirfram. ÞAÐ VIRÐ- IST heldur ekki skemma fyrir að vera son- ur fyrrverandi biskups. Það geturnúverandi biskup skrifað upp á og líka séra Skúli S. Ólafsson, sonur bisk- upsins fyrrverandi, Ólafs Skúlasonar. Séra Skúli virðist hafa lítið fyrir stafni þessa dagana og þá grípur Biskups- stofa til sinna ráða. Séra Skúli er hluti af fjölskyldunni og skal í starf - hvað sem það kostar. Jafnvel þótt það þurfi að moka út vinsælum presti í Reykja- nesbæ og setja söfnuðinn á annan endann. Fjölskyldan gengur nefni- lega fyrir. oskar@dv.is HerraKarlSigurbjörns- son Biskupinn hugsar um ■ fjölskylduna. I / Séra Bjarni Karlsson Sóknarpresturinn hugsar um fjölskylduna. DV-mynd Hari Dv-mynd Vilhelm Hver á þá að kjósa Framsókn? „Og allar þær eignir sem ríkið hefur átt hingað til og hefur grætt stórfé á, á að selja eða er búið að selja þessum nýríku gróðapung- um," skrifar Sigurður Lárusson, fyrrverandi bóndi, í gallharðri grein í Mogganum undir yfirskriftinni: Er Framsóknarflokkurinn í dauða- teygjunum? - næstum eins og spúrningamerkinu sé ofaukið. Nú eru góð ráð dýr. Sigurður hef-. urstuttJlokkinn í nærri 50 ár. Það er þá að kjósa Framsókn- arflokk- inn efekki trúfastur flokksmað- ur til hálfrar aldar og fyrr- verandi bóndi? Sigurður Láru Tekursinn gam flokkliðfyrirlið pakkar saman. Mogginn burstar kosningaskóna Styrmir Gunnarsson Heldur vart vatni vegna snilldarinnar sem VilliÞ. sýndi á flokksráðsfundi flokksins á Akureyri! „Það verður að segjast eins og er, að ræða Vllhjálms Þ. Vilhjálmssonar, leiðtoga sjálfstæðismanna í borgar- stjómarkosningum í vor, á flokkráðs- fundi Sjálfstæðisflokks á Akureyri fyr- ir helgi er snilldarleikur af hans hálfu í þeirri pólitísku orrnsm, sem nú er að hefjast um meirihlutann í borg- arstjóm." Þannig hefst leiðari Mogg- ans í gær. Það munar ekki um það. Sá sem er ekki eldri en tvævetur myndi reka upp stór augu. En hinir vita að nú er ■ Mogginn að bursta kosn- ingaskóna sem hann fer jafnan í þegar kosningar nálgast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.