Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2006, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2006, Blaðsíða 11
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 11 „Það verður allt hreinsað upp þá.Þaðerekk- ert gruggugt í gangi." Rúna Stefánsdóttir„Ég vil fá mitt, öll hundrað prósentin," segir söngkonan Rúna Stefánsdóttir. greiðslur til lagahöfundanna. Að sögn Guðjóns urðu nokkrar breytingar á rekstri BaseCamp þeg- ar Dagsbrún keyptí nýlega fyrirtækin Senu og D3 af Degi Group sem einn- ig áttí BaseCamp. Síðastnefnda fyr- irtækið hafi verið undanskilið í sölunni. Tafir hafi orðið á lokagreiðsl- unum til lagahöfundanna vegna ým- issa breytinga þessu tengdu. Með- al annars hafi gjaldkeri Dags Group sem séð hafi um BaseCamp flust á brott með Senu. „Ég er búinn að vera í stöðugu sambandi við þessa aðila og þeir fá greitt fyrir páskana sem þýðir að greiðslan kemur á næstu dögum. Það verður allt hreinsað upp þá. Það er ekkert gruggugt í gangi," segir Gauji litli. Eins og að ná íforsetann Rúna bendir á að lagahöfundar, söngvarar og dansarar hafi byrjað að undirbúa sig fýrir keppnina um ára- mótín. „Það er því ekíd eins og ver- ið sé að biðja um eitthvað fyrirfram. Það er orðið eins og að ná í sjálf- an forsetann að hafa uppi á honum Gauja litla. Og svo þegar maður nær í hann segir hann yfirleitt að greiðslan komi eftír tvo daga sem alltaf er svik- ið. Þetta er svo óforskammað. Það er eins og hugsunin sé alltaf sú að söngvarar og dansarar og aðrir sem eru með skemmtídagskrá geri það bara af gleðinni einni." Lagahöfundar allir í mínus Rúna segist telja víst að allir laga- höfundamir hafi tapað peningum á söngvakeppninni því útlagður kosm- aður þeirra sé mun meiri en þeir fái fyrir þátttökuna: „Eg heyrði að sagt hafi verið við menn að sættu þeir sig ekki við þessi laun yrði einfaldlega eitthvert annað lag tekið inn í staðinn. Það var mjög ánægjulegt að taka þátt í þessu en ég vil samt fá launin mín og vil ekki þurfa að standa í þrasi um þau." gar@dv.is 18 mánuðir fyrir að stela tíu þúsundum íkveikjustrákur dæmdur Eiríkur Hrafnkell Hjartarson var dæmdur í gær í Héraðsdómi Reykjaness í 18 mánaða óskil- orðsbundið fangelsi fýrir þjófnað. Eiríkur tók ófrjálsri hendi veski sem viðskiptavinur Samkaups í Kópa- vogi gleymdi. Eiríkur fór svo með veskið í hraðbanka í Hamraborg og tók út tíu þúsund krónur. Ástæðan fýrir því að Eiríkur fær svo þungan dóm er vegna þess að hann rauf skilorð en hann var dæmdur áður fýrir íkveikju þegar hann kveikti í stigagangi í fjölbýlis- húsi í Breiðholti ásamt öðrum í júlí 2001. Segir í dóriii að hann hafi lagt líf fólks í hættu ásamt því að fremja skemmdarverk með uppátæk- inu. Eiríkur hefur eftir það hlotíð nokkra dóma en hann rauf einmitt Héraðsdómur Reykjaness Fékk 18 mánuði fyrir þjófnað. skilorð fýrir þjófnað með þessu broti. f ljósi þess að hann hefur þó nokkurn sakaferil þótti dómnum ekki mögulegt að skilorðsbinda refsingu Eiríks. Stefán Jón ósáttur við mat á landi Kjartans Gunnarssonar Kjaftshögg standi niðurstaðan Kjartan Gunnarsson hans í Norðlingaholti v. metið á 208 milljónir. Kjartan Magnússon Andvígur eignarnámi nema brýnir almannahagsmunir krefjist. „Það er bara kjaftshögg," segir Stefán Jón Hafstein, formaður borg- arráðs, um það ef niðurstöðu mats- nefndar eignarnámsbóta varðandi 3,6 hektara spildu Kjartans Gunn- arsssonar í Norðlingaholtí verði ekki haggað fyrir dómstólum. Eins og kom fram í DV á laugar- dag er það niðurstaða matsnefnd- arinnar að Kjartan eigi að fá 208 milljónir króna fýrir umrætt land. Borgin vildi greiða 25 milljónir og í allra hæsta lagi 62 milljónir króna. Lögfræðideild borgarinnar ákvað að niðurstöðu matsnefndarinn- ar yrðu skotið til dómstóla. „Það var enginn vafi vegna þess að þetta var svo langt fyrir ofan það sem átt- um von á," segir Stefán Jón um þá álcvörðun. Aðspurður segist Stefán Jón ekki að svo stöddu geta metíð fordæmis- gildi niðurstöðunn- ar í máli Kjartans. Eignarnámsleið in sé afar sjaldan farin og honum sé ekki kunn- ugt um að nein viðlíka landa- kaup standi fyr ir dyrum. Kjartan Magnússon, borgarfull- trúi og varamaður í stjórn skipulags- sjóðs Reykjavíkur, segir það einfald- lega hafa verið tæknilegt mál hvernig verðið á landinu var reiknað út. „Mér finnst hins vegar rökrétt hjá nefndinni að líta tíl alls landsins en ekki aðeins til þess hluta sem byggja á. Landeigandinn missir jafn mik- ið landið, hvort sem það fer und- ir íbúðahús eða græn svæði," segir Kjartan Magnússon. Þegar borgarstjórn ákvað í fyrra að taka land Kjartans Gunnarssonar eignarnámi var nafni hans í borgarstjórn sá eini af fimmtán borgarfulltrúum sem greiddi atkvæði á mótí þeirri ákvörðun. „Ég er af grundvallarástæðum andvígur eignarnámi nema brýn- ir almannahagsmunir krefji. í þessu tílfelli taldi ég slíkt ekki vera fyr- ir hendi," segir Kjartan sem þannig telur að fyrst borgin var ekki reiðu- búin að greiða Kjartani það verð sem hann vildi fá fyrir land sitt hefði jtfjS&aup; verið einfalt að ÆHKmmk skipuleggja byggðina framhjá reitoum. Stefán Jón Hafstein Niðurstöðu á aðskjóta til dómstóla að hans mati. Sérverslun með sjávarfang Miðvikudaoinn 12. aprí LANGUR HUMARDAGUR FYLGIFISKAR Suðurlandsbraut 10 • Skólavörðustígur 8 Humarragu, hvítlauks humar. ferskur og frosinn humar, humarsúpa, humarsoð, humarsalat og aðrir Fylgifiskar 12% afsláttur af frnsnum humri Gleðilega páska fukað alla páskana • opnum aflur hriöjudagínn 18. aprí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.