Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2006, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006
Fréttir DV
Allir ráðnir í
Leifsstöð
Gengið hefur verið frá
ráðningu allra starfsmanna
íslensks markaðar í Leifs-
stöð til nýrra verslunarað-
ila, Rammagerðarinnar og
10-11 búðarinnar. Guð-
brandur Einarsson, for-
maður Verslunarmanna-
félags Suðurnesja, segir að
það hafl ætíð legið fyrir að
starfsfólk Islensks markaðar
fengi vinnu við þær versl-
anir sem tækju við er mark-
aðurinn legðist af. „Það eru
bara einn eða tveir sem
komnir voru á aldur sem
ekki voru endurráðnir," seg-
ir Guðbrandur.
Snjóflóð á
fleygiferð
Snjóflóðið sem féll úr
Skollahvilft á Flateyri var á
110 til 145 kílómetra hraða
þegar það kom út úr gilkjaft-
inum. Þetta kemur ff am á vef
Bæjarins Besta en Snjóflóða-
setur Veðurstofu íslands
og snjóflóðavaktin mældu
hraða þess. Var það gert með
svipaðri tækni og lögreglan
notar við hraðamælingar á
bílum en ef um slíkan væri
að ræða þá ætti ökumaður-
inn von á sekt enda á aflt of
miklum hraða.
prest
Um það bil fimm þús-
und manns hafa skrifað á
undirskriftalista til stuðn-
ings séra Sigfúsi B. Ingva-
sonar eftir að meirihluti
valnefndar í Keflavíkur-
prestakalli mælti með séra
Skúla Sigurði Ólafssyni í
starf sóknarprests. íbúar
í Reykjanesbæ hafa sent
Birni Bjarnasyni kirkju-
málaráðherra bréf þar sem
þeir fara fram á að hlustað
verði á sóknarbörn í Kefla-
víkursókn og að séra Sigfús
verði ráðinn sóknarprestur.
Kvennatölt hestamannafélagsins Gusts í Kópavogi var haldið á laugardaginn. Meðal
keppenda var Unnur Birna Vilhjálmsdóttir alheimsfegurðardrottning og þótt hún hafi
ekki komist á verðlaunapall vann hún hug og hjörtu áhorfenda.
Unnup Birna kát á Káti
Alheimsfegurðardrottningin Unnur Bima Vilhjálmsdóttir kemur
víða við og sýnir glæsitakta hvar sem hún stígur niður fæti. Nú síðast
á laugardaginn þegar hún tók þátt í kvennatölti hestamannafélags-
ins Gusts í Kópavogi. Unnur Bima mætti til leiks kát í bragði enda sat
hún hestinn Kát sem er lipur töltari og eiginlega jafn fallegur og
Unnur Bima, sé öðrum mælikvarða bmgðið á.
Unnur Bima komst ekki í úrslit í
keppninni en vakti þó verðskuldaða at-
hygli enda ekki oft sem alheimsfegurð-
ardrottningar sitja hest af þvílíkri leikni
og hún. Enda á hún ekki langt að sækja
hæfileikana, meira og minna aiin upp
á hestabaki af föður sínum og móður,
Viihjálmi Skúlasyni ogUnni Steinsson.
Sem h'tið bam sat hún á hnakknefi föð-
ur síns en nú ríður hún sjálf, eins og
hershöfðingi á góðum degi.
Flugeldar fældu hross
Kvennatölt Gusts fór vel fram þótt
minnstu hafi munað að slys yrðu á
knöpum þegar einhver óprúttinn ná-
ungi tók upp á því að skjóta upp flug-
eldum í nágrenni reiðhallar Gusts. Fátt
hvekkir hross meira en sprengingar
í flugeldum og mátti minnsm muna
að konur féllu af baki þegar drunum-
ar bergmáluðu í reiðhöllinni. En bet-
ur fór en á horfðist og sátu konumar
hesta sína eins og ekkert hefði í skorist.
Unnur Bima líka.
Mýkt og yndisþokki
Hesturinn sem Unnur Bima keppti
á heitir Kátur og var mál áhorfenda að
ekki mætti á milli sjá hvor hefði verið
kátari á vellinum, hrossið eða Unn-
ur. Af þeim báðum skein keppnisgleði
og eldd síst ánægja við það eitt að taka
þátt. Töltið er þýður gangur, stolt hins
íslenska hests sem borið hefur hróð-
Fátt hvekkir hross
meira en sprenging-
ar í flugeldum og mátti
minnstu muna að kon-
ur féllu afbaki þegar
drunurnar bergmáluðu
í reiðhöllinni. En betur
fór en á horfðist og sátu
konurnar hesta sína
eins og ekkert hefði í
skorist. UnnurBirna
líka.
ur hans vítt og breitt um heiminn. Líkt
og yndisþokki Unnar Bimu, sem ekki
síður hefur gert garðinn frægan svo
langt út fýrir landsteinana að leitun
er að öðm eins. Saman vom þau kát
í kvennatölti Gusts, Unnur Bima og
Kátur hennar.
Úrslitán Unnar
Annars urðu úrslit í kvennatölti
Gusts sem hér segir:
Drífa Daníelsdóttir sigraði í byrj-
endaflokki á Háfeta frá Þingnesi með
einkunnina 5,93/7,0.
Iilja Sigurðardóttir sigraði í áhuga-
flokki þeirra sem minna keppnisvan-
ar em á Glaði ífá Skipanesi með ein-
kunnina 6,73/7,0.
Katla Gísladóttir sigraði í flokki
þeirra sem keppnisvanari em á Órat-
or frá Grafarkoti með einkunnina
6,33/6,78.
Birgitta Dröfn Kristinsdóttir kom
svo og sá og sigraði í opnum flokki
á Dröfn frá Höfða með einkunnina
7,23/7,61 sem teljast verður frábær ár-
angur.
Mynd fegurðar
Þótt Unnur Bima hafi ekki komist
á verðlaunapall í kvennatölti Gusts að
þessu sinni fór eklá fram hjá neinum
sem með fyigdist að augu áhorfenda
beindust að henni þar sem hún sat líkust
prinsessu á Kát sínum. Samstilltar hreyf-
ingar konu og hests runnu saman í eina
mynd - mynd fegurðar sem fátíð er.
Unnur Birna á Káti
Mjúkar hreyfingar
runnu saman í eitt,
likast ævintýri úr
öðrum heimi.
Ármúlinn:Vin í eyðimörkinni
Það eru engar mellur í Ármúla.
Þetta sögðu bæði NFS og Morgun-
blaðið í fréttum í gær. í sjálfu sér em
þessi tíðindi sem slík ekki áfall fyrir
Svarthöfða því hann hefur lítið yndi af
portkonum. Sennilega er það einhver
meinloka úr uppeldinu.
Hitt fannst Svarthöfða merkilegra
að það þætti í frásögur færandi að
Ármúlinn væri orðið gleðikonulaust
svæði. Þetta var haft eftir formælanda
lögreglunnar sem er búin að kanna
málið í botn og fann ekkert nema dóp
og svoleiðis í tilteknu húsi sem þótti
grunsamlegt. Fráleitt væri að glyðrur
þær og glennur af brasihsku bergi
Hvernig hefur þú það?
brotoar sem þar hírðust innandyra á
bleikum frottésloppum um hábjart-
an dag hefðu nokkurt ósiðlegt í huga.
Sennilega væru þetta bara grúppa af
hitasæknum skiptinemum að vinna
að lokaverkefni um iðnaðar- og versl-
unargötur á Norðurhveli.
í hugum Islendinga nýtur Ármúl-
inn þeirrar stöðu að vera einn fegursti
manngerði staður landsins. Þar er gott
að vera og ganga um með fjölskyld-
una á laugardegi og kaupa raftæki og
„Ég hef það mjögt gott, maður er hress og mikið að gera," segir goösögnin og stórsöngvarinn
Björgvin Halldórsson. „Við erum að undirbúa síðustu sýningarnar á Nlnu og Geira á Brodway.
Það eru tuttugu þúsund manns búnir að sjá sýninguna ognú höfum við bætt tveimur við vegna
áskorana, 22. aprllog 6. maí. Það erlítið tilafmiðum þannig fólk verðurað hafa hraðar hendur.
Annars eru páskarnir á næsta leiti og þá verður meiriháttar stemning á Players á föstudags- og
laugardagskvöld þegar Brimkló og Paparnir stíga á stokk saman."
kínamat eftir ferð í Húsdýragarðinn.
Svarthöfða þótti fréttimar sem bár-
ust fýrir helgina af vændiskonunum
þar í götunni í raun aðeins staðfesta
það sem var óhjákvæmilegt að myndi
verða; að Reykjavík væri heimsborg
og Ármúh miðdepili hennar. Þar var
Hollywood með sínu blikkandi gólfi
og þar eru Gunni Þórðar og Bo Hah
á Hótel íslandi. Svo ekki sé minnst á
bókhaldsþjónustur og blikksmiðjur.
Nú virðist sem sagt sem DV hafi
stökkt mellunum í Ármúla á flótta
með uppljóstrunum sínum. Það er
vitað mál að það er erfitt að reka hóru-
kassa ef allir eru að kjafta um það út
og suður svo kúnninn verður bara
feiminn og inn í sig og hættir að koma.
Þessu verður að linna. Stöndum ekki
í vegi þróunarinnar. Fáum stúlkumar
til okkar aftur. Hjálpumst að.
Hórumar heim.
SvarthöJðL