Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2006, Side 10
I
10 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006
Fréttir DV
Hann eraldrei að blekkja
neinn. Hjartahlýr og hress.
Stendur við það sem hann
segir, sama hvað gengur á.
Vinur vina sinna.
Hann er einstaklega
orðljótur og segir stundum
ofmikið.
„Hann ermjög tilfinningaríkur.
Kemur til dyranna eins og hann
erklæddur. Segirþað sem
honum býrí brjósti.
Hanneraldreiað
blekkja neinn, segir
það sem honum
finnst, hvortsem
það kemur honum
eða öðrumveleða
illa.“
Sigurður G. Tómasson starfsfélagi.
„Ingvi Hrafn er góður maður.
Einn besti stóri bróðir sem hægt
erað eiga. Hjartahlýrog hress.
Leiðinlegt hvaö hann er
orðljótur. Sem ég
skil ekki hvernig
kemur til. Okkur
varkenntaf
foreldrum okkarað
blótsyrði væru
skorturá
orðaforða. Það var
aldrei blótað á okkar heimili."
Óli Tynes bróöir.
„Ingvi er hress og með
skemmtilegri mönnum. Hann er
hugmyndaríkur maður með
afbrigðum, afar fær að greina
dægurmál og fljótur að koma
þeim á framfæri, stundum of
fljótur. Hann er
hrókuralls
fagnaðar hvar sem
hann kemurog
vinsæll í hópi vina
og kunningja.
Hann ermeð
eindæmum
óstýr/látur og liggur hvergi á
skoðunum sínum. Hans helsti
ókostur erað vera orðljótur. Lofi
ingvi einhverju, stendurþað,
sama hvað gengur á. Hanner
mikill fjölskyidumaðurog vinur
vina sinna."
Orri Vigfússon vinur.
Ingvi Hrafn Jónsson er sonurJóns
Sigtryggssonar og Jórunnar Tynes. Hann er .
stúdent frá MR og lauk prófi í fjölmiölafræði
frá Háskólanum i Wisconsin. Hann var
blaöamaður á MorgunblaÖinu í mörg
ár, þingfréttaritari á RÚV og svo fréttastjóri.
Á tímabili varhann laxveiöibóndi og
stundaði fjölmiölaráögjöf. VarÖ svo
fréttastjóri á Stöö 2. Hans helstu áhugamál
eru pólitlk, golfog laxveiði. Undanfarin ár
hefur Ingvi stjórnaö þættinum Hrafnaþing,
fyrst I útvarpi og svo núna á NFS. Ingvi á
fimm systkini.
Höröur G. Ólafsson „Þetta virðist
orðið eitthvað mjög vafasamt mál,‘
segir höfundur lagsins 100%.
Fyrirtækið BaseCamp hefur enn ekki gert upp við þá lagahöfunda sem komust
í úrslit í söngvakeppni Sjónvarpsins. Lagahöfundurinn Hörður G. Ólafs-
son segir ekkert hafa gengið að ná í Gauja litla sem annast hafi fjármálin
hjá BaseCamp. Gauji segir að allir fái greitt fyrir páska. Tafir hafi orðið á
greiðslum vegna breytinga hjá fyrirtækinu.
Eurovision-
höfundar
drepnir á
greiðslum
Lagahöfundar í söngvakeppni Sjónvarpsins eru í vandræðum
með að gera upp við flytjendur laga sinna því umsamin greiðsla
fyrir þátttökuna hefur enn ekki borist.
„BaseCamp, sem er verktaki hjá
Sjónvarpinu, er ekki að standa sig
varðandi greiðslur," segir söngkon-
an Rúna Stefánsdóttir sem enn hefur
ekki fengið greitt að fullu fyrir þátt-
töku sína í Eurovision-söngvakeppni
Sjónvarpsins.
Rúna söng lag Harðar G. Ólafs-
sonar, 100%, og komst það í sjálfa úr-
slitakeppnina sem fram fór 18. febrú-
ar. Nú, tæpum tveimur mánuðuðum
síðar, hefur Hörður enn ekki fengið
greitt fyrir þann hluta keppninnar.
Höfundar borga listamönnum
Fyrirtækið BaseCamp annað-
ist framkvæmd söngvakeppninn-
ar samkvæmt samningi við Ríkis-
jónvarpið. Sagt var að kostnaðurinn
væri á bilinu 60
til 80 millj-
ónir króna.
BaseCamp
greiðir síðan laga-
höfundum sem greiða
svo flytjendum lagsins
fyrir þeirra framlag.
Hörður G. Ólafs-
son segir að samið
hafi verið við laga-
höfundana að þeir
fengju fasta greiðslu
og gerðu svo sjálf-
Gauji litli Uppstokkun hjá BaseCamp
hefur leitt til tafa á uppgjöri við
lagahöfunda i Eurovision, segir Gauji litli
Silvía Nótt Tilhamingju Island
eftir Þorvald Bjarnason keppir
fyrir Island i Grikklandi.
ir upp við listamenn-
ina. Greiða átti sérstaklega fyrir for-
keppnina og svo aukalega ef menn
náðu lagi inn í úrslitin.
Mjög ískyggilegt
„Fyrri hlutann gekk treglega að
fá og seinni hlutann höfum við ekki
fengið enn," segir Hörður.
Samkvæmt heimildum DV átti
hver lagahöfundur að fá 350 þúsund
fyrir forkeppnina og 150 þús-
und krónur til viðbótar kæm-
ist lagið í aðalkeppnina. Það
er þessi seinni greiðsla sem
ekki hefur borist.
„Ég næ ekki í neinn á skrifstof-
unni og get ekki gert upp við mitt
fólk. Þétta virðist orðið eitthvað mjög
vafasamt mál. Það er alla vega mjög
ískyggilegt ef menn vilja ekki láta ná í
sig," segir Hörður.
Gjaldkerinn fórannað
Bæði benda Rúna og Hörður á
Guðjón Sigmundsson, eða
Gauja litla, sem starfs-
mann BaseCamp
sem annast hafi átt
Ævar Örn Jósepsson meö Spurningakeppni fjölmiðlanna í vinnslu
Kitlar að vita þegar keppendur
„Nei, hlustendur munu ekki
fara á mis við hljóðin í blessuðum
fuglunum," segir Ævar Örn Jóseps-
son rithöfundur.
Hann stjórnar nú í þriðja skipti
Spurningakeppni fjölmiðlanna á
RÚV sem einmitt er verið að vinna
þessa dagana. Fulltrúar helstu fjöl-
miðla landsins eru dregnir upp í
Efstaleiti og keppa þá sín á milli.
Þættirnir verða með sama sniði og
verið hefur.
Sú kenning ér uppi að vinsældir
þessa útvarpsefnis, sem hefur verið
á dagskrá Rásar 2 svo lengi sem
elstu menn muna, byggist ekki síst
á því að hlustendur hafa gaman af
því að heyra blaðamenn góða með
sig flaska á almennum spurning-
um. Ævar telur nokkuð til í því.
„Svo eru landsmenn upp til hópa
forfallnir spurningafíklar. Eru alltaf
að keppa við þá sem eru að keppa.
Og hjá okkur sem heima sitjum
þarf ekki nema að vita eitt svar sem
keppendur klikka á til að sannfæra
okkur um að þetta eru afglapar að
kepþa. Skiptir þá engu hvort menn
hafa ekki svör við neinni annari
spurningu," segir Ævar.
Hann þarf að semja, með
aukaspurningum komi upp bráða-
bani, um 300 spurningar fyrir þessa
keppni. Ævar Örn segir allt um
keppnina svívirðilega illa skráð,
ekki vitað hversu oft hún hefur
verið haldin né hverjir hafa unn-
ið. „Það segir sitt um keppnina.
Menn taka þessu hæfilega al-
varlega."
Ævar Örn er nú að fást við
ritun næsta krimma sem hann
hyggst stenda frá sér fyrir næstu
jól en Blóðberg kom út í desember
við góðan orðstír. Þá fæst Ævar við
þýðingar og morðgátusmíð ásamt
Davíð Þór Jónssyni en reglu-
lega eru haldin Morðgátu-
kvöld á Hótel Búðum. „Ég
vasast í ýmsu. Eins og tilheyr-
ir ef maður ætlar að vera rit-
höfundur á íslandi."