Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2006, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2006, Side 17
DV Sport ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 1 7 BOLTINN I BEINNi VEISLUSALUR POOL & SNOKER^ Mveinwtfrtt* 40 m SS 2% 300 BOLTINN I BEINNI VEISLUSALUR K^íjy^U tjarcír «»jj niniisiftatiikv^f POOL & SNOKER^ Phil Mickelson vann Mastersmótið í annað skiptið <yha~emur árum þpgar hann kl höggum betur en næsti kyiíingur. Þetta er þriðja árfS Wöð sem Mickelson vii aðeins hann Qg TiaeEáft/oods hafa afrekað slíkt á síðustu tveimur áratugum. tveimur risamót en Klæddir i græna jakkann Tiger Woods, slgíitvegar- inn frápviifytra, Klxd/r Phil Mickelso.n i græiHi jakkann sem allir sigurvegarar Mosters-mótsins fa oð klæðasr. KorácPtnHúí-Sctty . r-tv ;.***■ í árslok 2003 hafði Phil Mickelson ekki unnið risamót í golfinu þrátt fyrir að vera tafinn í hópi bestu kyifinga heims. Phil braut ís- inn árið 2004 á, Mastersmótinu og hefur nú með sigrinum um helgina bætt við tveimur öðrum sigrum á risamótum. Phil Mickelson sýndi mikið öryggi á lokaholum Mastersmótsins í golfi en þessu fyrsta risamóti árs- ins lauk á sunnudagsvöldið. Mick- elson gerði engin mistök og hélt síðan sömu yfirveguninni í mót- slok þegar græni jakkinn var í höfn í annað sinn á ferlinum. Áhyggjulaus á 18. holunni „Það var frábært að geta labbað áhyggjulaus eftir 18. holunni og eitthvað sem ég hafði óskað mér að vera búinn að leggja grunninn að sigrinum," sagði Mickelsson sem fékk góðar móttökur frá þremur börnum sínum þegar sigurinn var í höfn. Hann vann einnig sigur á síðasta risamóti síðasta árs en það var á PGA-mótinu sem fram fór í ágústmánuði á síðasta ári. Mickelson ætlaði aldrei að ná að vinna sitt fyrsta risamót en ef marka má spilamennsku hans í undan- förnum tveimur risamótum eru fáir sterkari þegar kemur að því að standast pressuna á stóru mótun- um. Á sunnudaginn lék hann loka- hringinn á þremur höggum und- ir pari og gaf aldrei köppum eins og Fred Couples, Tiger Woods og Vijay Singh tækifæri til þess að ná sér. Allir efstu menn á heimslistan- um áttu vissulega möguleika á að ná honum á lokadeginum en Mick- elson var í rétta gírnum. Mikill léttir að vinna 2004 „Þegar ég vann árið 2004 var það mikill léttir fyrir mig að hafa unnið mótið sem mér hafði alltaf dreymt um að vinna. Að þessu sinni fylgir þessum sigri mikil ánægja og stolt yfir að hafa slegið þessum frábæru kylfingum við og náð að vinna á þessu einstaka móti í annað sinn," sagði Mickelson sem lék hringina fjóra á 281 höggi eða sjö höggum undir pari sem var tveimur högg- um betur en Tim Clark frá S-Afríku sem kom næst- ur eftir að hafa náð glæsi- legum fugli á 18. holunni. Mickelson fékk 1.26 milljónir doll- ara fyrir sigurinn eða rúmlega 91 milljón íslenskra króna. Aðeins einn af fimm Mickelson er aðeins einn af fimm kylfingum sem hafa náð að vinna risamót þrjú ár í röð síðan að Mastersmótið fór fyrst fram árið 1934 og á síðustu tveimur áratug- um eru það aðeins hann og Tiger Woods sem hafa afrekað slíkt. Tiger Woods sem hefði getað orð- ið fyrstur til þess að vinna Masters- mótið tvisvar sinnum tvö ár í röð var ekki að pútta nægilega vel og náði því ekki að ógna Mickelson. Woods hefur fjórum sinn- um sigrað á Mastersmót- inu, þar á meðal í fyrra og klæddi hann því Mickel- son í græna sigurjakkann í mótslok. „Ég er stoltastur af því að ég gaf öðrum kylf- ingum aldrei tækifæri til þess að blanda sér í baráttuna. Ef þeir ætl- uðu sér að ógna mér þá þurftu þeir að fara að safna fuglum," sagði Mickelson. ooj@dv.is Oruggur á lokahringnum Phil Mickelson spilaði lokahringinn á þremur höggum Flott hjá þér pabbi! Phil Mickehon var vel fagnad afsyni simnn, Evan, í matslok. MASTERS-MÓTIÐ 2006 Lokastaðan: Phil Mickelson (70-72-70-69) -7 TimClark (70-72-72-69) -5 Chad Campbell (71-67-75-71) -4 Fred Couples (71-70-72-71) -4 Retief Goosen (70-73-72-69) -4 Jose Maria Olazabal (76-71-71-66) -4 Tiger Woods (72-71 -71 -70) -4 MARGFALDIR MEISTARAR: Þessir hafa unnið Mastersmótið oftar en einu sinni: Jack Nicklaus 6 1963,1965,1966,1972,1975, ,1986 Arnold Palmer 1958,1960,1962,1964 4 TigerWoods 1997,2001,2002,2005 4 Nick Faldo 1989,1990,1996 3 Jimmy Demaret 1940,1947,1950 3 Sam Snead 1949,1952,1954 3 Gary Player 1961,1974,1978 3 Horton Smith 1934,1936 2 Byron Nelson 1937,1942 2 Ben Hogan 1951,1953 2 Tom Watson 1977,1981 2 Seve Ballesteros 1980,1983 2 Bernhard Langer 1985,1993 2 Ben Crenshaw 1984,1995 2 Jose Maria Olazabal 1994,1999 2 Phil Mickelson 2 2004,2006 Naði ekki metinu fjc.i Couplcs Oskai ha Mickelson tii hamingju en ef liann hefði siqtað hcfði Couples h.vtt met Jack Nkklaus og ordið sá elsti scm hefur unniO MattersmatiO cn Cauples a J6 <ira. « ■ .... „ ,, ,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.