Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2006, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2006, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 1 1. APRÍL 2006 Lífsstíll DV Upptökur standa yfir Stjörnuspá Vatnsberinn (20.ian.-i8. fébr.) r: ' Hinrik Ólafsson leikari er43 ára í dagll.apríl „Hann býr yfir miklum vitsmunum og er fljótur að átta sig á stöðu mála. Viðkomandi áttar sig fljótt og örugglega á aðstæð- um þegar kemur að ákvarðanatöku sem hann stendur eflaust frammi fyrir um þessar mundir. Einnig er áberandi í stjörnu- korti mannsins að hann sér samstundis þá kosti og galla sem athuga þarf þegar nauðsyn krefur. Hann er einn af þeim sem finnur þegar hann gefur að það veitir honum gleði." i 1 Heppnin leikur við þig og óskir þínar rætast en talan sjö staðfestir velferð þína. Alsæla birtist þér og leggst bókstaf- lega að fótum þér. Þú munt fá aðgang að auðæfum fyrr en síðar. f dag mættir þú hins vegar huga betur að heilsu þinni andlega og ekki síður líkamlega. Fiskamirr/s. febr.-20. mars) Þér er ráðlagt að láta fortíð þína ekki koma í veg fyrir velgengni framtíðar. Þú aðlagast aðstæðum á auðveldan hátt og ferð í gegnum tilveru þína með hugar- fari sem leiðir þig á rétta braut hvert sem þú stígur niður fæti. MWm(2lmars-19.apríll Skaþgerð þín er einstök og vits- munir þínir öflugir og þú mátt ekki van- nýta þessa ágætu hæfileika, hafðu það hugfast fram yfir páskana. NaUtið (20. apríi-20. maí) Ef samband þitt við maka þinn eða félaga er ekki sem skyldi er komið að þér að leggja spilin á borðið. Þú ættirað forðast það að gera öðrum greiða til þess eins að halda friðinn. Tvíburarnirp/. mal-21.júní) Mál sem tengjast réttvísinni og heiðarleika virðast vera efst á baugi um þessar mundir. Mikilvægi réttlætisins er efst í huga þínum varðandi mál sem skipta þig og aðra máli. Ekki hika við að gera góðverk án þess að fara fram á eitthvað í staðinn. Láttu eingöngu gott af þér leiða. Krabbinno2jiin/-a/ú/)) Stjarna þín, krabbinn, er án efa fær um að örva og efla fólkið sem hún umgengst á jákvæðan hátt. Fólkið sem birtist í kringum þig er tengt þér vináttu- böndum. Leyfðu þér að opna hjarta þitt og ekki síðurtilfinningagáttir þínar. Ef og þegar þú vilt verður líf þitt sælureitur eins og því er ætlað að vera. l\Ómb (23. júli-22. ágúst) Af einhverjum ástæðum ættir þú að sýna viljastyrk og þor. Ef þú tekst á við erfiðleika þessa dagana færðu umbun erf- iðis þins fyrir vikuna miðað við stöðu sólar gagnvart stjörnu þinni. Frjósemistákn birt- Meyjan (23. ágúst-22. septj Leyfðu tímanum að vinna með þér. Ekki sóa tíma þínum til einskis.Þú ættir að finna nýjan farveg fýrir áhugamál þin ef þú finnur fýrir eirðarleysi. Vogin (23. sept.-23.okt.) Þér að óvörum mun manneskja birtast í lífi þínu næstu daga og hjarta þitt mun slá örar. Þú virðist vera á vegamótum í dag og fyrir hér er eins og hlutverk við- komandi sé að leiða þig á rétta braut og stilla hjartastöðvar þínar. Sporðdrekinn (24.okt.-21.n6v) Ef þú hefur tilhneigingu til að vera montin/n um þessar mundir er þér ráðlagt að breyta framkomu þinni hið fyrsta. Þú skalt snúa því sem kemur fram sem neikvæðar tilfinningar yfir í já- kvæða orku og magna þannig uþp kraft þinn. ©Bogmaðurinn 122.n0v.-21.desj Ef þú kærir þig um getur þú meðvitað fundið fýrir orkuflæðinu innra með þér með því að hlusta á líkama þinn af kostgæfni. Steingeitin (22.des.-19.janj Hugarfar þitt skiptir megin máli þegar þú gefur og það virðist eiga vel við þig þessa dagana. Þér berast boð frá hjart- anu um líðan þína en stjarna steingeitar biður eflaust um meira jafnvægi eins og staðan er í dag. Synglandl láMasy Greta Mjöll og Hólmfríður Ósk Samúelsdætur vöktu athýgli Lífsstíls fyrir fallegar raddir og töfrandi útgeislun þegar þær sungu Ó María í Söngkeppni framhaldsskólanna sem hafnaði í öðru sæti. Okkur lá forvitni á að vita hvað þær takast á við samhliða söngnum. „Þetta var æðislegt," svarar Greta Mjöll Samúelsdóttir, sem varð ásamt systur sinni Hólmfríði í öðru sæti í Söngkeppni framhaldsskólanna um helgina með lagið Ó María og bætir við hlæjandi: „Ég er nefnilega vön að vera í fótbóltagallanum." Greta Mjöll og Hólmfríður Ósk eru vægast sagt hæfileikarík- ar systur sem hafa nóg fyrir stafni. Okkur leikur forvitni á að vitá hvað þær takast á við fyrir utan að syngja svona fallega: „Ég spila með meistaraflokki Breiðabliks. Svo er ég í landsliðinu. Spila á vinstri kantinum," segir Greta Mjöll hress og heldur áfram:,, Fer út á morgun til Hollands. Þar munum við spila vináttuleik við landsliðið þar fyrir HM. Annars þurfti ég að fara heim tveimur dögum fyrr úr æfingaferð sem ég var í með Breiðablik fyrir söng- keppnina um helgina," segir hún og viðurkennir að hún er upptek- Kærastinn átti hugmyndina „Ég er í MK á náttúrufræði- braut og það gengur bara mjög vel," segir Greta og bætir við að- spurð um ástamálin: „Ég á kærasta. Höfum verið saman í rúmt ár. Hann er ekki mikið í íþróttum eins og ég en það er bara gott mál," segir hún og skellihlær lítur til systur sinnar og bætir við: „Lærði hinsvegar aldrei á hljóðfæri eða að syngja þvi ég var send í allar íþróttirnar. Mér finnst þetta skemmtilegast í heiminum. Finnst rosalega gam- an að vera pæja líka. Það er ekki oft sem maður fær tækifæri á því að vera í kjól. En það var kærasti systur minnar, Pálmar örn Guð- mundsson, sem spilaði lagið Ó María einhvern daginn og þá fór hann að velta fyrir sér hvað þetta væri sorglegur texti og tilfinn- ingaríkur miðað við lagið sem hann er sung- inn við. Þess vegna samdi hann lag með Hólmfríði sem passar við text- ann. Okkur finnst lagið passa bet- ur við text- ann og hlökkum til að taka það upp. Vonandi fær það einhverja spilun." (HólmfríðurÓsk: „Þegar ég meiddist fór ég að spila á hljómborð og leika mér að spila eftir eyranu. Tónlistin hefur átt hug minn allan og áhuginn á fótboltanum þar afleiðandi dofnað Kíkjölfarið Systir hennar tekur til máls: „Já, Páimar á heiðurinn af þessu. Hann átti hugmyndina í upphafi. Þetta var frábær hugmynd því þessi texti er svo sláandi sorglegur en lagið sem allir kannast við er

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.