Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2006, Blaðsíða 6
„Það var langmest barátta um dýrustu
verkin. Þegar tvær myndir eftir Hugleik Dags-
son voru boðnar upp varð mikil keppni um
þær og fólk orðið mjög æst," segir Svavar Pét-
ur Eysteinsson, forsprakki hljómsveitarinnar
Skakkamanage.
ALLIR MÆTTU MEÐ HLUT
Um síðustu helgi stóð sveitin fyrir nýstár-
legri uppákomu, smámunauppboði, á Snóker-
sportbarnum við Hverfisgötu. Gestir voru
hvattir til þess að mæta með smáhluti, sem
þeir hefðu ekkert að gera við.
„Allir hafa þörf fýrir að losa sig við smáhluti.
Enda kom það í ljós að fólk var greinilega til-
búið að koma með hluti til að bjóða upp og við
þurftum að hafa okkur öll við til að komast yfir
þá alla. Þetta fór miklu betur en við þorðum að
vona,“ segir Svavar sáttur.
EFTIRMYND AF KJARVAL
Ekki grófu allir upp hluti sem þeir hefðu
engin not fyrir til að selja á uppboðinu. Auk
Hugleiks mættu nokkrir listamenn með verk
sérstaklega gerð fyrir kvöldið. Sara Riel mynd-
listarmaður útbjó tvö verk, örvar Þóreyjarson
Smárason í múm málaði eftirmynd af verki
eftir Kjarval og þannig mætti lengi telja. Þá út-
bjó Pétur Már Gunnarsson listamaður upp-
boðshamar og púlt fýrir kvöldið en hann var
sjálfur uppboðshaldarinn.
NÝJA PLATAN AÐ KOMA
„Við eigum pottþétt eftir að halda svona
uppboð aftur. Enda eiga kettir enn í neyð,“
segir Svavar en tíu prósent af afrakstri
uppboðsins renna til Kattholts. „Við erum ekki
búin að reikna það saman ennþá en þetta er
einhver góð summa."
Auxpan, Mr. Silla & Mongoose og The Des-
ire of Hudson Wayne tróðu upp um kvöldið en
tilefni smámunauppboðs Skakkamanage var
ný plata sveitarinnar, sem kemur út seinna í
sumar. Fyrstu lög af henni fara fljótlega að
heyrast þannig að það borgar sig að hafa eyrun
opin.
FORLÁTA SJÖTOMMUSTAND-
UR MEÐ SJÖTOMMU
SKAKKAMANAGE, HOLD YOUR
HEART, (KAUPBÆTI. BENNI
HEMM HEMM KEYPTI.
GESTIR VIRTU HLUTINA FYRIR SÍRÁ SNÓKERBORÐUM STAÐARINS ÁÐUR EN UPPBOBIÐ HÓFST.
GRIPIR KVðLDSINS EFTIR HUGLEIK DAGSSON.
flNSTRA MEGIN VAR SLEGIN k TÓLF ÞÚSUND
ATTAMSUND EFTIR MIKLA BARÁTTUr— —
ÞRÁfNN, SEM ERFYRIR MIÐRI MYND,f
KOSTUM SEM EINSMANNSSVEITIN THE
OF HUDSON WAYNE Á UPPBOÐSKVÖLDI
PÉTURMÁR GUNNARSSO
BOÐSHÁLDARIOG
BJÓfiA UPP GEIS
BENNA HE
HAMARINN
GESTIRNIR VORU SAMMÁLA
UM AB UPPBOÐIfi HEFfil
GÓÐUR GRIPUR. TEIKN
AF BJÖRGVINIHALLDÓRS-
SYNI ÁRIfi 1969, BROTIN
Sirkusmyndir: Anton Brink