Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2006, Qupperneq 18
BESTAHJÁBEÍ
Leikarinn Jamie Foxx var í skýi-
unum þegar hann tók við
tvennum verðlaunum á BET
(Black EntertainmentTV)
verðlaunahátíðinni I Los Ang-
eles á þriðjudaginn. Foxx
vann verðlaunin með Kanye
West fyrir besta myndband
og samstarf fyrir lagið Gold
Digger.
MaryJ. Blige var valin besta
R&B-söngkonan, Prince
besti R&B-söngvarinn og
Chris Brown besti nýliðinn
og vinsælastur. RappararnirT...
og Missy Elliott fengu sfn verðlaunin hvor í hipphoppflokknum.
Chaka Khan fékk viðurkenningu fyrir ævistarf sitt í tónlist og tróð
hún upp með Stevie Wonder og Prince.
PIÖTUDÓUAR
Uppskeruhátfð krúttkynslóðarinnar.
Á Fjölskyldualbúmi filraunaeldhússins er stórfjölskylda þessa merka
listabatterís saman komin. Hér er að finna 21 lag með jafnmörgum
flytjendum. Petta er rjóminn af tónlistarmönnum krúttkynslóðar-
innar, m.a. Kira Kira, Jóhann Jóhannsson, múm, Benni Hemm
Hemm, Amina, Mugison, Slowblow, Stilluppsteypa og Apparat Org-
an Quartet. Útkoman er einhver flottasta safnplata síðari ára. Heild-
arsvipurinn er sérstaklega sterkur og minna þekkt nöfn eins og
Borkó, ill vill og Represensitive Man standa leiðtogunum ekkert að
baki. Uppáhaldsplatan mín síðustu vikur.
ÝMSIR- FJÖLSKYLDUflLBÚM
TILRAUNAELDHÚSSINS
1234567 ú JO
Upphitað töffararokk frá Bobby Gil lespie og félögum.
Tónlist Primal Scream hefur alltaf verið sambland af töffararokki,
sýru og danstónlist. Blandan er hins vegar misjöfn eftir plötum:
Stundum er sýran ráðandi, stundum danstónlistin o.s.frv. Á Riot.
City Blues er töffararokkið í algjöru aðalhlutverki. Platan er yfirfull
af blúsuðum rokkslögurum sem minna á Stones, Faces eða New
York Dolls. Það er gaman að þessu þó að ég sé persónulega hrifnari
af sveitinni í framsæknari og tilraunaglaðari hamnum.
PRIMAL SCREAM
-RIOTCITY BLUES
12341< /8910
Melódfskt popprapp með ffábærum textum.
Fræ er samstarf þeirra Heimis og Sadjei úr norðlensku ofursveitinni
Skyttunum, Palla úr Maus og Mr. Sillu. Sadjei sér um taktana, Palli
spilar inn meirihlutann af hefðbundnu hljóðfærunum, Heimir rapp-
ar og Silla syngur viðlög og bakraddir. Tónlistin á Eyðilegðu þig smá
er sambland af rappi og poppi. Styrkur plötunnar felst í melódískum
lagasmíðum, á köflum skemmtilegum útsetningum og frábærum
textum. Veikleikinn er að þetta er stundum of fágað og kraftlítið.
Kostirnir vega samt mun þyngra en gallarnir og smellurinn Freðinn
fáviti er pottþétt eitt af lögum ársins.
Trausti Júlíusson
FRÆ
- EYÐILEGÐU ÞIG SMfl
123451' JJ910
Bil/bcxard
NIWS j BEYItWS
ARTíSTS
intiract
BILLBOARD UNDCBCaoUND
TÓNLISTARMAÐURINN BALDVIN
RINGSTED GAF NÝLEGA ÚT PLÖT-
UNA HOLE AND CORNER UNDIR
NAFNINU BELA. HANNBÝRÍ
GLASGOW í SKOTLANDIOG HEF-
UR HINGAÐ TIL FENGIÐ
J frAbærar viðtökur.
Blaðamenn bandaríska tónlistartíma-
ritsins Billboafd veðja á að tónlist Bald-
vins Ringsted, sem hann semur undir
nafninu Bela, eigi eftir að gera það gott. í
nýjasta tölublaði þessa gríðarlega áhrifa-
mikla fjölmiðils er viðtal við Baldvin und-
ir yfirskriftinni Tónlistarmenn sem eru
ekki meö samning en líklegir til að ná alla
leið.
Hvort það reynist rétt verður að koma í
ljós en það hefur væntanlega ekki skemmt
fyrir Baldvini að selja eitt laga Bela í aug-
lýsingu fyrir hafnaboltaliðið Washington
Nationals.
pAlmi plokkar bassann
Bela gaf nýlega út plötuna Hole and
Corner og er hún nú fáanleg á íslandi og
víðar. Hún inniheldur 12 lög. Kassagítar-
inn er í aðalhlutverki en tónlist Bela hefur
til dæmis verið líkt við verk Nicks Drake,
Kings of Convenience og Johns Martyn.
Platan var í smíðum í nokkurn tíma.
Baldvin flutti í fyrra tii Glasgow til að
leggja stund á listnám og halda áfram að
þróa plötuna. Hann hafði þá hljóðritað
talsvert af efni með aðstoð ýmissa hljóð-
færaleikara hér heima. Meðal annarra
plokkar Pálmi Gunnarsson bassa í
nokkrum Iögum og Birgir Hilmarsson
bæði syngur og spilar á ásláttarhljóðfæri.
OF MIKILLTÍMI í HLJÓMSVEIT
Þegar út var komið sendi Baldvin demó
til nokkurra útgáfufyrirtækja og Say Dirty
Records hringdu til baka nánast samdæg-
urs og buðu samning.
Þegar hann var f höfn var hafist handa
við að púsla saman plötu með aðstoð
góðra manna. Verkið var síðan hljóð-
blandað í Geimsteini af Sigga í Hjálmum
og Gulla í Lights on the Highway.
Baldvin Ringsted er bæði myndlistar-
menntaður frá Akureyri og Finnlandi og
tónlistarmenntaður frá FÍH. Hann hefur
verið í ótal hljómsveitum í gegnum tíðina
en segist hafa farið að semja tónlist einn
þegar hljómsveitaveran varð of tímafrek
meðfram myndlistinni. Þeir sem hafa
áhuga á að sjá hann á tónleikum ættu að
hafa augun opin í júlí og ágúst því þá er
stefnan tekin á fsland.
Fyrir forvitna:
www.myspace.com/belamusicforpeople
n
•*„ I lm,ll I Prtnt | | R|| |
Bela
20, 2004,
Hatky
°'d™*................
a.butfr0m fi.Idvin ol„WWi
based band, Bela.
» .......... ZHZ'IT b"d"a,"r s“*'>
^óAjttaii&enuii'tom nd Seb4rt»*n <i primery \nf\uancas, and the
élbumptln N.,vo„,( „h,
trioumful slida auiter At tímac
Marar *hiL J ' V0,C* #voke*John
.........«™>..............NJ*■,m",m«“»•>»•»<•»-b=h
sw ■ i
“*■ «*>•'’m”™! «!*’ýn(!'.ÍT.L7Tm Wr°u,h indi' s“ °i',> "•“>'” *nd
>«ldc«.d to Scotl.nd, „bs| Rlns‘,*d' * loLnd.r who
Hi. .Ibom I. „„ .v,i„b,. i„ Amermi 1" '’'*0,lvtas “’* •»• b.'d ow.
----------BILLBOARD FJALLARA
/ | AFAR JÁKVÆÐAN HÁTT
/ /f\ . ' ! UMTÓNLISTBELA.
V
BALDVIN FLUTTITIL
SKOTLANDS f FYRRfl TIL AÐ
SINNA LISTAGYÐJUNNI.
? ■
HUÓMSVEITIN TELEPATHETICS SENDIR FRÁ SÉR SlNA FYRSTU PLÖTU
SJÚKRABÍLUNN
KEMURÍJÚLÍ
Hljómsveitin Telepathetics vakti óskipta
athygli í fyrrasumar þegar breski umboðsmað-
urinn Alan McGee bauð henni út til London að
spila. Alan er nefnilega goðsögn í bresku tón-
listarlífi eftir að hann fann Gallagher-bræður í
Oasis og bauð þeim samning. Strákarnir létu
ferðina aftur á móti ekki stíga sér til höfuðs og
hafa verið duglegir að koma fram í vetur og
dundað sér við að leggja lokahönd á sína fyrstu
plötu, Ambulance, sem er væntanleg í júlí.
Telepathetics er skipuð ijórum rúmlega tví-
tugum strákum, þeim Andreas Boysen, Eyþóri
Rúnari Eiríkssyni, Hlyni Hallgrímssyni og
Óttari Birgissyni. Þeir hafa starfað saman
í um fimm ár, fyrst undir nafninu
Gizmo. Þeir gefa Ambulance sjálfir út
en þessa dagana ómar lagið Last Song á
útvarpsstöðvum landsins. Platan var
tekin upp í Sundlauginni, upptöku-
veri Sigur Rósar, og var upptöku- V
stjórn í höndum Birgis Jóns Birgisson-
ar, sem hefur unnið með Sigur Rós.
Þá annaðist Pétur Þór Benediktsson
strengjaútsetningar í tveimur lögum.
HARÐIR STRÁKAR
MEÐ HAUSINN í LAGI.
Fyrirforvitna:
www.myspace.com/telepathetics