Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006
Fréttir DV
Björn Ingivill
sólstofu
Björn Ingi
Hrafnsson, for-
maður borgar-
ráðs Reykjavík-
ur, er nú með
áætlanir um að
stækka eilítið
við húsakynni
fjölskyldunnar í Breiðholtinu.
Borgarkerfið liefur nú fengið til
umfjöllunar ósk Björns Inga og
Hólmfríðar Rósar Eyjólfsdóttur,
eiginkonu hans, um að fá að bæta
sólstofu framan við kjallara húss
þeira í Hálsaseli. Byggingarfulltrúi
taldi ekki unnt að afgreiða málið á
síðasta fundi heldur vísaði málinu
til umsagnar hjá skipulagsfulltrú-
anum.
Meintur nauðgarl
íaðalmeðferð
Framhald aðalmeðferðar í máli
ríkissaksóknara gegn fyrrverandi
sölumanni á fasteignasölu sem
ákærður er fyrir hrottalega nauðg-
un og líkamsárás á hendur tveim-
ur konum af erlendum uppruna
var haldið í Héraðsdómi Reykja-
víkur í vikunni. Maðurinn er með-
al annars ákærður fyrir hrottalega
nauðgun og líkamsárás sem átti
sér stað á heimili hans í Grafar-
vogi nú í febrúar. Hann neitaði
sök við þingfestingu málsins og
hafnaði tveggja milljóna bóta-
kröfu annarrar konunnar - sam-
kvæmt heimildum DV. Munnleg-
ur málflutningur fer fram í málinu
á næstu dögum og að því loknu
verður það lagt í dóm.
Með hass í
Hagkaupum
23 ára Reykvíkingur hefur ver-
ið ákærður fýrir þjófnað og brot á
fíkniefnalöggjöfinni. Segja má að
lögreglumenn hafi slegið tvær flug-
ur f einu höggi þegar maðurinn var
tekinn fyrir þjófnað á sólgleraugum
í Hagkaupum í maí 2005. Asamt
sólgleraugunum sem kostuðu 999
krónur hafði maðurinn meðferðis
tæp sjö grömm af hassi sem lög-
regla fann við leit eftir handtöku.
Að því loknu var farið í húsleit
og fundust þá hátt í 40 grömm af
hassi. Samtals var maðurinn tek-
inn með 250 grömm af hassi og
lítilræði af amfetamíni í þrjú önnur
skipti eftir Hagkaupsmálið.
Skráning í
X-Factor á fullu
„Það eru nú
þegar komin um
fimm hundruð
manns á skrá og
allir geta skráð sig
sem eru 16 ára og
eldri," segir Þór
Freysson hjá Stöð
2 sem er að hefja sýningar á þátt-
unum X-Factor. „Venjulega feng-
um við um fimmtán hundruð í
áheyrnapróf fyrir Idolið en núna
ættum við að fá fleiri því það geta
líka skráð sig sönghópar og hvetj-
um við fólk til að vera með," segir
Þór. Hann segir að mikil spenna
sé vegna undirbúnings þáttanna
og hlakkar til að takast á við þetta
verkefni. Þeir sem vilja freista
gæfunnar geta skráð sig inn á
xfactor.is.
legt hús á Arnarnesinu
Dugggufjara 6 Inga
Lind og Árni keyptu
þetta glæsilega hús á
Akureyri á dögunum.
DV-mynd Þorri
Tjaldanes 5 Inga Lind og Árni hafa
komið sér vel fyrir á Arnarnesinu.
Hjónin Inga Lind Karlsdóttir og Árni Hauksson eru að færa út
kvíarnar. Þau hafa keypt eitt glæsilegasta hús Akureyrar en fyrir
eiga þau fallegt hús á Arnarnesinu. Þau vildu hvorugt tjá sig við
DV þegar eftir því var leitað í gær.
Þetta kuhafa verið
draumahús hennar og
það eina á Akureyri
sem hana langaði í.
Húsið sem sjónvarpsdrottningin
Inga Lind og eiginmaður hennar Árni
Hauksson keyptu fyrír skömmu er
eitt það allra glæsilegasta á Akureyri.
Það var áður í eigu Skúla Ágústssonar,
eins af hinum frægu Kennedy-bræðr-
um. Húsið, sem er 261 fermetri að
stærð, stendur við Duggufjöru 6 og er
með fallegu útsýni yfir Pollinn. Ekkert
hefur verið til sparað til að gera það
sem glæsilegast úr garði, jafnt innan
dyra sem utan.
Eina húsið sem Inga Lind vildi
Heimildir DV herma að húsið
hafi aldrei farið á fasteignasölu held-
ur hafi Árni Hauksson mætt til Ak-
ureyrar, bankað upp á hjá Skúla og
keypt húsið einsamall með innbú-
inu án þess að Inga Lind hafi skoðað
það. Þetta ku hafa verið draumahús
hennar og það eina á Akureyri sem
hana langaði í.
Alltof persónulegt
Inga Lind vildi ekki tjá sig við
blaðamann DV þegar haft var sam-
band við hana í gær. Hún sagði mál-
ið alltof persónulegt til að hún vildi
ræða það í fjölmiðlum. Sömu sögu
var að segja af Árna Haukssyni sem
sagði einfaldlega pass.
Búa á tveimur stöðum
Fyrir eiga þau Inga Lind og Árni
fallegt hús á Arnarnesinu. Það er
290 fermetra einbýlishús sem hef-
ur verið endurnýjað að mestu eftir
þeirra smekk. Þau eiga líka glæsileg-
an sumarbústað í Grímsnesinu, eins
konar athvarf í sveitinni. Ekki er vit-
að hvað Inga Lind og Árni hyggjast
fyrir með húsið á Akureyri. Líkleg-
ast er að það verði notað sem athvarf
fjölskyldunnar norðan heiða.
oskar@dv.is
Glæsileg hjón Inga
Lind og Árni eru glæsi-
leg hjón sem eiga nú
tvöheimili.eittá
Arnarnesinu og annað
á Akureyri.
Sjónvarpsdrottningin Inga Lind Karlsdóttir og eiginmaður hennar Árni Hauksson
festu nýverið kaup á einu glæsilegasta einbýlishúsi Akureyrar. Fyrir eiga þau fal-
Perlum kastað fyrir svín
Nú er það komið á hreint sem
engan grunaði. Sjónvarpsstöð hér
í borg er undirstaða íslenskrar sið-
menningar eins og við þekkjum
hana. Þetta hefur alveg hreint farið
framhjá Svarthöfða svo það er gott
að þetta hefur nú verið dregið fram
í dagsljósið.
Þar til fyrir nokkrum mánuðum
voru ljósin slökkt á Islandi. Menn
gengu hér illa upplýstir eins og villu-
ráfandi sauðir á verönd lífsins. Al-
gerir imbar. Tótal fífl sem hlustuðu
bara á HLH og Brimkló.
Loksins steig fram á sviðið Ijósa-
meistari af guðs náð. Sanngjarn,
réttlátur og vandaður svo eftir var
tekið. Nýr spámaður fyrir íslensku
rétttrúnaðarkirkjuna. Enginn annar
en Roberto Messías. Kallaður Robbi
Mess í ársreikningum.
Hver þátturinn af öðrum streym-
ir nú út í loftið og í átt að heimilum
landsmanna. Formúlan getur ekki
klikkað: Fyrir hvern einn viðmæl-
anda sem mætir eru tveir þáttar-
stjómendur sem hvor um sig hef-
Svarthöföi
ur yfirgripsmikla þekkingu á öllu frá
svartholum upp í sveitarstjórnar-
mál og eru haldnir djúpri þrá til að
leiðbeina hinum sem ekkert vita en
þurfa nauðsynlega að komast á rétt-
an kúrs.
Eini gallinn hingað til hefur ver-
ið andvararleysi almennings sem
enn kýs að fljóta sofandi að feigðar-
ósi. Þættir á borð við Hrópandann í
eyðimörkinni og Upp úr eins manns
hljóði eru bara eins og perlur sem
kastað er fyrir svín; verða úti ein-
hvers staðar í dreifikerfinu.
Svarthöfða setur hljóðan við til-
hugsunina um svona vanþakkláta
þjóð; pöpulinn sem stökk beint út úr
moldarkofunum upp í Porsche-jepp-
ana. Aula sem nenna ekki að horfa
á æðstu prestana um hábjartan dag
en vaka ffam á miðja nótt til að fylgj-
ast með endurfæddum kúlutyggjó-
poppara hinum megin á hnettinum.
pao er vooa ieiöintegt að þurfa að
segja það en þetta er ekkert að breyt-
ast. Landanum verður ekki haggað.
Hann nennir þessu ekki. Þetta vita
nú orðið allir enda vísindalega sann-
að. Samt er einn og einn sem skilur
þetta ekki - eins og til dæmis Robbi
Mess. Og það er slæmt því þar flask-
ar okkar maður á því sem allir verða
að hafa á hreinu:
Hverjum klukkan glymur.
Svarthöföi