Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Blaðsíða 35
PV Helgin FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 55 sem skall skyndilega á Syk- urmolunum, í kjölfar þess að smáskífan Birthday var val- in smáskifa vikunnar í Mel- ody Maker. l>að er gaman að sjá iivað hún áleit „hápunkt- inn" á ferli sínum á þessari stundu, haustið 1987, tæp- lega 20 árunr síðar. „Ó, fuck." Ódauðleg orð Einars Arnar, sem hann mælti á stjórnar- fundi Grammsins eftir að Ásmundur Jónsson - Ási í Einar Örn sagði„Ó, fuck" Þegar hann vissi að Sykurmolarnir hefðu meikað það Gramminu - tilkynnti honum að Birthday hefði verið valið lag vikunnar í Melody Makervikuna 23. til 30. ágúst 1987. and your „tíoodbye y'ali thank you for money." Eitiar Örn að loknum tónleikum á ltitz í New York árið 1988. „Þvílíkt ógeð! Hvers- konar sódóma er þetta íslenska þjóðfélag að verða? Vita menn ekki hvað svona ómenning hef- ur í för með sér, ekki einungis fyrir þá sem ungir eru? Það er verið að draga hina sönnu list ofan í svaðið og gera hana að skrímsli. Svo er það guðlast- ið sem er ein svartasta syndin sem maðurinn getur drýgt. Skapari ltim- ins og jarðar hlýtur að heijast handa og taka í taumana þegar hans tími er kominn." Reiður áhorfandi Ríkissjónvarþsins skrifar í Velvakanda Morgunblaðsins 9. mars 1989, þremur dögum eftir að Smekkleysa fékk að annast menningar- þáttinn Já! Þar komu fram ýntis ljóð- skáld og rithöfundar Smekkleysu, rætt var viö Braga Ólafs, Björk og Einar Örn og I Jermann Gunnarsson fékk Smekk- leysisviðurkenningu. „Ég á aldrei eftir að vera metinn sem ijóðskáld," segir Bragi, „enda mundi ég sjálfur hugsa mig vel um áður en ég keypti ljóðabók eft- ir einhvern bassaleikara í Sálinni hans Jóns míns." Bragi Ólafsson í viðtali við Morgun- blaðið 2. febrúar 1992. Hrafn Gunnlaugsson fékk Smekkleysisviðurkenn- inguna og tók glaður við henni, eflaust án þess að gera sig grein fyrir ástæðunni 25. maí 1988. Sykurmolarnir koma heim úr tónleikaferðalagi Björk og sonur hennar Sindri Eldon, sem fyigdi oft móður sinni á ferðalögum um heiminn. --*— DV mynd GVA Heimsfrægðinni fylgt eftir með ferðalögum Fyrsta breiðskífa Sykurmolanna, Life's too Good, kom út um allan heim 25. apríl 1988 og fékk íyrirtaks dóma, auk þess sem hún fór beint í 14. sæti á breska vinsældarlistanum. Eftir velheppnað hljómleikaferðalag um Evrópu um vorið fór sveitin til Bandaríkjanna um sumarið og spil- aði kvöld eftir kvöld fyrir fullu húsi. Sveitin sneri til íslands úr Banda- ríkjatúrnum í september og hóf sam- stundis undirbúning fyrir næstu plötu Here, Today, Tomorrow, Next Week á ensku en Ulur arfur á ís- lensku. Upptökur gengu erfiðlega og platan reyndist dýr, meðal ann- ars vegna mikils tíma sem fór í eftir- vinnslu hennar og stanslauss hljóm- leikaferðalags Sykurmolanna, en hún leit þó loks dagsins ljós í olctóber 1989. Viðbrögð voru ekki eins góð og við Life's too Good, en þó ágæt og hún seldist vel. Róðurinn þyngist Here, Today, Tomorrow, Next Week var einnig fylgt eftir með löng- um hljómleikatúr út um allan heim og þegar Sykurmolarnir sneru loks heim úr Ástraiíuför sinni 23. maí 1990 voru þau öll orðin dauðupp- gefin, þar á meðal á Sykurmolunum. Ýmis hliðarverkefni litu því dagsins ljós. Bogomil Font steig sín fyrstu skref, djasshljómsveit Konráðs Bé, sem var skipuð meðlimum Molanna auk annarra, hélt sína fyrstu tónleika og Björk tók upp Gling Gló ásamt Tríói Guðmundar Ingólfssonar. Um svipað leyti sýndi Björk dans- tónlist sífellt meiri áhuga og gerði meðal annars tvö danslög með 808 4. janúar 1989, Sykurmolarnir framan á Melody Maker Blaðamaður kampakátur að lesa um velgengni Sykurmolanna úti í heimi. Brynjar Gauti State. Björk varð jafnframt sífellt óánægðari með stefnuna sem Syk- urmolarnir voru að fara í og vildi leggja meiri áherslu á harða dans- tónlist, hip-hop og aðra nýja tónlist sem henni fannst ögrandi. Sú tón- list var ólík fasa Sykurmolanna og vakti litla hrifningu meðal annarra liðsmanna. Þegar upptökur á þriðju breiðskífu Sykurmolanna, Stick ar- ound for Joy, hófst árið 1991 varð lún nýja stefna sem Björk hafði tekið sí- fellt augljósari. Að loknum upptök- um skífunnar tilkynnti hún öðrum Sykurmolum að hún hefði ákveðið að hætta í sveitinni. Þrátt fýrir það ákváðu þau að fylgja plötunni eftir með stuttu en hnitmiðuðu tónleikaferðalagi í upp- hafi árs 1992, auk þess sem liljóm- sveitin túraði stuttlega með U2 um haustið. Þegar sveitin sneri heim úr túrnum í nóvember hélt hver Syk- urmoli svo sína leið. (heimild Sykurmolarnir eftir Árna Matthíasson) ottar@dv.is Björk Guðmundsdóttir, fædd 1965, söngkona Sá Sykurmoli sem hefur áttmestu fylgi að fagna síðan hljómsveitin hætti. Hún varð sífellt meira ósammála stefnu hljómsveitarinnarog tilkynnti loks að hún væri hætt árið 1992. Björk hófst samstundis handa við gerð sólóplötu - Debut - sem kom út árið eftir. Síðan þá hefurhún gefið útfjölmargarplötur, leikið í tveimur myndum, unnið til margra verðlauna og fetað ótroðnar slóðir. Hún hefurlokið upptökum á nýrri breiðskífu og áætlar að fara i hljómleikaferðalag á næsta ári. EinarÖrn Benediktsson, fæddur 1962, söngvari Einar hefur fengist við ýmislegt síðan Sykurmolarnir hættu. Hann dró sig í stutt hlé frá tónlist, skrifaði ídagblöð, flutti inn hljómsveitir eins og The Prodigy, Fugees og Massive Attack og tók þátt í nokkrum ólíkum tónlistarverkefnum, þará meðal að annast tónlistina í kvikmyndinni 101 Reykjavík ásamt Damon Albarn. Undanfarin þrjú ár hefur hann skipað dúettinn Ghostigital ásamt Curver, sem gefið hefur út tvær frábærar plötur. Bragi Ólafsson, fæddur 1962, bassaleikari Bragi hallaðist snemma að skáldskap og gafútsína fyrstu Ijóðabókárið 1986. Hún nefnist Dragsúgur og Smekkleysa gaf hana út. Síðan þá hefur hann sent frá sér Ijóðabækur, smásagna- safn, leikrit og skáldsögur. Fyrsta skáldsagan hans, Hvíldar- dagar, var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna 1999 og sú næsta, Gæludýrin, árið 2001. Bragihlaut Menningarverð- laun DV í bókmenntum 2004 fyrir skáldsöguna Samkvæmisleikir. Von erá nýrri skáldsögu frá honum í haustsem nefnist Sendiherrann. Sigtryggur Baldursson, fæddur 1962, trommuleikari Sigtryggur hefur verið virkur í ísiensku tónlistarlífi síðan Sykurmolarnir hættu.þó eftirminnilegastur í gervi Bogomils Font - djasssöngvarans brosmilda sem komið hefur fram með Milljónamær- ingunum. Sigtryggur hefur einnig unnið mikið með Steingrími Guðmundssyni slagverksleikara undir heitinu Steintryggur. Nýjasta plata Sigtryggs erBananalýðveldið, en þarbregður hann sér í gervi Bogomils og drengirnir í Flís spila undir. Þór Eldon Jónsson, fæddur 1962, gítarleikari ■*'j- Eftir að Sykurmolarnir hættu V stofnaði Þór Unun árið 1993, ásamt Dr. Gunna, og varð hún mjög vinsæl. Fyrsta plata hljómsveitarinnar, Æ, var meðal annars kosin besta plata ársins á fslandi árið 1995 og hljómsveitin hitaði nokkrum sinnum upp fyrir Björk. Þór hætti í hljómsveitinni 1998. Hann samdi tónlist fyrir kvikmyndinaAllir litir hafsins eru kaldir og Gargandi snilld og Ijóðadiskinn Túnglskins- mjólk (nafni verður hugsan- lega breytt i Dauðaskammtur), þarsem Dagur Sigurðarson heitinn les upp. Friðrik Erlingsson, fæddur 1962, gítarleikari Friðrik var einn upphafsmanna Sykurmolanna, en hætti hins vegar í bandinu 1987 og sneri sér að ritstörf- um. Hann hefur samið og þýtt fjölda söngtexta, skrifað handrit að kvikmyndum og sjónvarpsefni, ævisögur og skáldrit fyrir alla aldurshópa. Skáldsaga hans, Benjamín dúfa, hefurhlotið fjölda viðurkenn- inga og verið þýdd á fimm mál. Friðrikskrifaði handritið að teiknimyndinni Litla lirfan Ijóta sem frumsýnd varí Reykjavík í ágúst 2002. Hann hlaut Barnabóka- verðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur2002 fyrir þýðingu sína á bók Monu Nilsson, Brannstrom Tsatsiki og mútta. Einar Arnaldur Melax, fæddur 1962, hljómborðsleikari Þegar Friðrik hætti ákváðu Sykurmolarnir að fá til liðs við sig hljómborð- sleikara og bárust böndin snemma að Einaþ Melax, enda hafði hann verið einn afstofnendum hljómsveitarinnar árið 1986en heltist snemma úrlestinni. Þegar þau leituðu eftir að fá hann til liðs við sig á ný var hann strandaglópurí ísrael og úr varð að hljómsveitin „keypti" Einar heim til íslands snemma árs 1988. Hann þoldi hins vegar illa tónleikaferðir og stressið í kringum þær og hætti í hljómsveitinni í upphafi sumars 1988. Síðan þá hefur hann kennt tónlist í Tónlistarskóla Reykjavík- ur, veriðyfir tónlistarskólunum á Flateyri og Kirkjubæjarklaustri, samið tónlist fyrir heimildarmyndir, verið í hljómsveitinni Exem og margt fleira. Margrét Örnólfsdóttir, fædd 1967, hljómborðsleikari Margrét var ekki einn upprunalegu Sykurmol- anna, heldur boðið f hljómsveitina árið 1988, til að fylla skarð Einars. Hún varþáíhljómsveit- inni Risaeðlan, en kvaddi hana með trega og efa og sagðist í það minnsta vera komin með titil á ævisöguna sína: Líf mitt í Molum. Síðan Sykurmolarnir hættu hefurhún verið iðin við kolann og sinntmargvíslegu menningarstarfi. Hún skrifaði meðal annars handritið að kvikmyndinni Regína! og samdi tónlist við Einkalíf. köinbow <j^t„ Mate englnnfilté, —-—- . , * SreathofFresh^r^ fri heimsending <-f^xnnbo*r Sjálfstætt lofthreinsi og rakatæki Hreinsar loftiö í gegnum vatn og gefur frá sér raka. Margar teg. ilmefna. Einnig lyktareyðir sem fjarlægir Ld. tóbakslykt og matarlykt Hrein þjónusta ehf Dalbraut 3, 105 Rvk 897 2800 - 567 7773 Ertu skóhólisti? Það er til lausn! Fallegu Cleatbox dömuöskjurnor eru svar þitt við hrúgunum $em flœða út úr skóskópunum, Öskjurnar eru líka til i stœrðum fyrir stigvélaóhugamenn og skóara. Notaðu augljósu geymsluaðferöina. ■ www.theciearbox.com - sími 511 0909
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.