Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Blaðsíða 44
64 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 Helgin DV Sá vin sinn deyja Peter Phillips, sonur Önnu prinsessu, mætti fyrir kviðdóm í vikunni vegna dauða vinarsins. Prinsinn hafði verið að leika sér á fjórhjóli ásamt vinum sínum á landareign móður sinnar þegar slysið átti sér stað. Tveirþeirra, Daniel Brookman og Nichoias Pearce, veltu hjólinu og lést Daniel afáverkum sínum. „Ég sá vini mína kastast afhjólinu. Dan stóð strax upp en féll svo niður eftir nokkur skref," sagði Peter Phillips i réttarsalnum. Niðurstaða réttarins var að um slys hefði verið að ræða. Chelsyí vopnuðu ráni Chelsy Davy, kærasta Harrys prins, var rænd á veitingastað í Höfða- borg. Chelsy og vinir hennar voru á veitingastaðnum þegar fimm vopnaðir ræningar þustu á staðinn og skipuðu öllum að leggjast á gólfið á meðan þeir tóku peninga, veski, sima og bíllykla af gestum og starfsfólki. Enginn slasaðist alvarlega í ráninu en ræn- ingjarnir spörkuðu í andlit eigandans. Að sögn var Chelsy afar brugðiðeftir atburðinn en ómeidd aðöðruleyti. Mette-Marit ófrísk Margir telja að Mette- Marit krónprinsessa Noregs sé ófrísk. Það að prinsessan hafí afþakkað hvítvíns- glas I veislu hefurýtt undir sögusagnirnar. Þó eru sumir sem halda því fram að Mette-Marit drekki aldrei áfengi þegar hún sé i opinberum erinda- gjörðum. Prinsessan, sem hefur oft verið gagnrýnd fyrir lélegan fatasmekk, tók ekki sénsinn íþetta skiptið og mætti til matarboðsins í norska þjóðbúningnum. Dvergur leikur drottningu Leikhúsgestir í Berlín gengu í vikunni út afafar umdeildu leikriti sem fjallar um bresku konungsfjöl- skylduna. íleikritinu sést Díana prinsessa fara í rúmið með mönnum með Downs-heilkennið og er Elísabet drottning leikin af dvergi. „Eins gott að ég hafði ekki borðað áður en ég mætti, þvlþá hefði ég líklega kastað upp," sagði einn leikhúsgestanna en leikritið verðursýnt í Bretlandi l næsta mánuði. Höfundur verksins Christopher Slingensieff kom hingað á Listahátíð i fyrra með ý ' tvo dverga sem eru fastagestir ' Isýningum hans. Camilla í matreiðslutíma Þrátt fyrir að þurfa sjaldan að elda heima hjá sér bretti Camilla Parker Bowles upp ermarnar er hún heimsótti barnaskóla f Crewe í síðustu viku og skellti sér í matreiðslutlma með börnunum. Heimsóknin var á vegum heilsudaga sem haldnir hafa verið í Bretlandi upp á síðkastið í von um að fá bresk börn til að borða minna af skyndibita og meira af ferskum afurðum. Camilla hjálpaði krökkunum að skera niður grænmeti og ávexti í kaldan drykk sem þau drukku saman á eftir. í nýjum bókum um Díönu prinsessu kemur fram að Díana hafði vonast eftir að verða eiginkona forsetaefnis Bandaríkjanna og að Díana og Fergie hafi snúið bökum saman gegn konungsfjölskyldunni. Einnig kemur fram að þótt Díana og Fergie hafi verið ágæt- is vinkonur hafi Díana haft minnimáttarkennd út í hina hressu og kátu Fergie. Díana var afbrýðissöm í nýju bókinni hans Pauls Burrell, fyrrver andi bryta Díönu prins essu, kemur fram að Díana hafi vonast eft- ir að verða forseta- frú. í bókinni kem- ur fram að prinsessan hafi átt í ástarsam- bandi við hátt- settan amerískan milljarðamæring en Burrell gefur nafnið ekki upp. Talið er að sá sem um ræð- ir sé Teddy Forstmann oghafamenn kunnugirpóli- tíkusnum ját- að að hann og Díana hafi átt í ástarsam- bandi. „Það er satt. Díana var hrifin af Ted. Hún hreifst af kenning- um hans og góð- gerðarstarfi," seg- ir heimildarmaður New York Daily News en blöðin hafa ekki fengið Forstmann sjálf- an til að tjá sig um málið. Abbó Rithöfund- inn Sarah Brad- einnig að gefa út um prinsessuna. ur fram að Díana Ferguson,semum fastar í ásdausum um, hafi ædað ur- ford er nýja bók Þar kem- og Sara tíma sám hjónabönd að yfirgefa konungsfjölskylduna í samein- ingu. í bókinni segir að Díana hafi tekið Fergie undir sinn verndarvæng. Hún hafi kynnt hana fyrir Andr- ési prins og að þær hafi ver- ið góðar vinkonur í fyrstu. í ævisögu Fergie segist her- togaynjan hafa verið besta vin- kona Díönu en Bradford seg- ir það af og frá. Vinskapur- inn hafi fljótt staðið höllum fæti og að af- brýðissemi Dí- önu hafi aðal- lega verið um að kenna. Ferskur blær Fergie hafi kom- ið eins og fersk- ur andi inn í hina stífu konungsfjöl- skyldu og hafi fljótt unnið hug og hjörtu al- mennings og tengdafjölskyld- unnar. „Díana vildi vera í fyrsta sæti. Hún þoldi ekki að Fergie fengi meiri umfjöllun en hún," segir einn heimild- armanna Bradfords. Ferg- ie hafi tekið þátt í öllu og hræðst ekkert á meðan Díana vildi ró og næði og því hafi prinsessan óttast um hylli drottningarinnar. Svilkonur „Elisabetu drottningu var alls ekki illa við Diönu þvl hún elskaði dýrðartjómann sem prinsessan færði fjölskyldunni. Fergie var hins vegar I uppáhaldi hjá henni þar sem hún hafði sömu áhugamál og fjölskyldan. Fergie datt hins vegar fljótt niður vinsæidariistann," kemur fram I bókinni. Dáður dýrðarljómi „Elísabetu drottningu var alls ekki illa við Díönu því hún elskaði dýrð- arljómann sem prinsessan færði fjölskyldunni. Fergie var hins vegar í uppáhaidi hjá henni þar sem hún hafði sömu áhugamál og fjölskyld- an. Fergie datt hins vegar fljótt niður vinsældarlistann," kemur fram í bók- inni. Samkvæmt Bradford styrktist vinskapur kvennanna þegar hjóna- band Díönu var komið í hundana en tengdamóðir þeirra ætlaði ekki að leyfa þeim að skilja við menn sína á sama tíma og segja heimildarmenn bókarinnar að Díana hafi ekki haft sama kjark og Fergie sem sagði fljót- lega skilið við fjölskylduna. indiana@dv.is Fæöing prinsins strik í reikning þeirra sem vildu leyfa stúlkum að erfa krúnuna útíFergie Hisahito kominn heim Nýi, litii, japanski prinsinn yfir- gaf fæðingardeild spítalans ásamt foreldrum sínum í vikunni og var fagnað af hundruðum aðdáenda en hann er fyrstí prinsinn sem fæðist inn í japönsku konungsfjölskylduna í 41 ár. Þyrlur sveimuðu yfir fjölskyld- unni þegar Kiko prinsessa og Akishi- no prins gengu af sjúkrahúsinu með bros á vör. Fæðing litla prinsins, sem hefur fengið nafnið Hisahito, hef- ur sett strik í reikninginn hjá þeim sem vildu breyta lögunum og leyfa stúlkum að erfa japönsku krúnuna en synirnir hafa stjórnað landinu í meira en tvö þúsund ár. Lögreglan telur að um 1800 manns hafi mætt til að berja litía prinsinn augum og var atburðinum sjónvarpað beint í land- inu. Litli prinsinn er sá þriðji í röð- inni eftir japönsku krúnunni, á eftír frænda sínum og föður. Kiko prins- essa hafði dvalið á sjúkrahúsinu frá miðjum ágúst og var send í keisara- skurð þann 6. september. Stoltir foreldrar Kiko prinsessa hafði dvalið á sjúkrahúsinu frá miðjum ágúst og var send í keisaraskurð þann 6. september. Nordic Photo Getty Images
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.