Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 Fréttir DV Neitaði aðfaraút 26 ára gamall Reykvíking- ur hefur verið ákærður af sýslu- manninum á Selfossi fyrir húsbrot og eignaspjöll sem áttu sér stað í apríl á þessu ári á Selfossi. Mann- inum hefur verið gefið að sök að hafa í heimildarleysi ruðst inn á heimili konu í bænum. Með því að spenna upp lítinn glugga fyrir ofan svalahurð heimilisins er talið að maðurinn hafi komist inn. Við það skemmdist stormjám á glugg- anum auk þess sem hvítur pinna- stóll fyrir neðan hann brotnaði. Þegar á manninn var skorað að koma sér út neitaði hann að fara og spyrnti fótum í vegg þannig að skófar myndaðist og hrinti hús- ráðandanum. ÁrásáDomino's 25 ára Hafnfirðingur hefur ver- ið ákærður af ríkissaksóknara fyrir sérlega hættulega líkamsárás sem átti sér stað nú í júní á pítsastaðn- um Domino's við Fjarðargötu í Hafnarfirði. í ákæm segir að Hafn- firðingurinn hafi slegið annan aðila í andlitið með glerglasi með þeim afleiðingum að sá er fyrir árásinni varð þurfti að láta sauma tvo skurði á kinn, skurð við eyrna- snepil auk skráma og rispna í and- liti. Átti árásin sér stað aðfaranótt laugardagsins lO.júní. Fullur rútubflstjóri 55 ára rútubílstjóri og eigandi ferðaþjónustufyrirtækis í Reykja- vík hefur verið ákærður af Sýslu- manninum á Selfossi fyrir að hafa keyrt rútu undir áhrifum áfengis auk þess að hafa ekki haft skrán- ingarblað í ökurita rútunnar. Ját- aði maðurinn sök. Rútunni var ekið utan í vegrið í Kömbunum á Hellisheiði að morgni sunnudags- ins 6. ágúst með sextán farþega innanborðs og við mælingu kom í ljós að rútubílstjórinn hafði 2,15 prómill af vínanda í blóði og 2,94 í þvagi. Telst þetta varða umferð- arlög og þess krafist að hann verði dæmdur til sviptingar ökuréttar og refsingar. Skallaði mann 22 ára karlmaður á Reyðarfirði hefur verið ákærður af Sýslumann- inum á Eski- firði fýrir lík- amsárás sem átti sér stað aðfaranótt sunnudags- ins 25. júní. Játaði maðurinn að hafa skallað 34 ára mann í andlitið með þeim afleiðingum að sá eldri hlaut glóð- arauga og 15 millimetra skurð á kinnbeini undir vinstra auga. Málið hefur verið lagt í dóm sem kveðinn verður upp bráðlega. Franklín Kristinn Steiner var handtekinn á heimili sínu i síðustu viku eftir húsleit lögregl- unnar í Hafnarfirði. Franklín hefur ekki verið mikið í umræðunni upp á síðkastið en þetta mál kom honum aftur í hana. DV lítur í stuttu máli yfir sögu Franklins, sem af mörgum var talinn vera „Kaupmaðurinn á horninu“ í lagi Bubba Morthens og Rúnars Júlíussonar. Saga„Kaupmannsins á horninu" Húsleit var gerð í tveimur íbúðum í Hafnarfirði í síðustu viku. í öðru þeirra býr Franklin Kristinn Steiner, einn frægasti glæpa- maður íslands. Það sem fannst við húsleitina var hass, LSD-töflur og amfetamín auk hnífa, skotvopna og skotfæra. Málið er talið „smámál" - miðað við það sem Franklin þessi Steiner er þekktur fyrir. DV skoðar sögu „Kaupmannsins á horninu". Franklín Kristinn Steiner er fæddur þann 14. febrúar árið 1947. Á upphafsárum ævi sinnar bjó hann í Bandaríkjunum en sex ára flutti hann aftur hingað til lands með móður sinni. Hann á í það minnsta sjö börn með sex konum en hann býr með einu þeirra á Austurvegin- um í Hafnarfirði. Að sögn lögmanns Franklíns er hann einstæður faðir sem hefur tekjur sínar úr spilaköss- um - og hann hafi kvittanir fyrir því. Byrjaði ungur Ferill Franklíns er langur og hófst í kringum árið 1966 þegar hann hlaut skilorðsbundinn þriggja mán- aða dóm hér á landi, þá tæplega tví- tugur. Á áttunda áratugnum var hann dæmdur í þremur löndum. íslandi, Danmörku og Svíþjóð, fýrir fíkni- efnabrot, sum hver stórfelld. Á níunda áratugnum fékk hann svo nokkra dóma fýrir fíkniefnabrot og hóf afplánun tveggja ára dóms á árinu 1982. Lítið bar til tíðinda uns Franklín var handtekinn í „Furugrundarmál- inu" árið 1988. Á heimili hans fund- ust yfir 100 grömm af hassi og eitt- hvað af amfetamíni. Það mál dagaði uppi í kerfinu öllum til mikillar furðu. Skömmu seinna hlaut Franklín tvo dóma sem áttu eftir að draga dilk á eftir sér. Þeir hljóðuðu upp á sam- tals 29 mánaða fangelsi vegna brota framin árin á undan. Vinur löggunnar? Næstu ár fóru að vakna upp spurningar um samskipti Franklíns við fíkniefnalögregluna. Fram kom í fjölmiðlum fýrir nokkrum árum að hlutast hefði verið til um það hjá þremur dómsmálaráðherrum að Franklín hlyti reynslulausn eftir helming afplánunar tveggja dóma. Það gekk eftir í einhverjum til- fellanna og menn spurðu sig htvers vegna. Tíundi áratugurinn var viðburða- mikill. Lögreglufulltrúar lágu und- ir ámæli fýrirvinnu á gráu svæði en meinið var talið gott samband milli þeirra og Franklíns. Dómsmálaráð- herra skipaði nefnd sem skoðaði starfsaðferðir lögreglu og sérstakur rannsóknarlögreglustjóri var skip- aður til að kanna tengsl Franklíns og fíkniefnalögreglunnar. Heppinn í spilum? Dag nokkurn árið 1996 var Franklín aftur tekinn með fíkniefhi. Fyrst hass í bíl sínum og svo um 250 grömm af amfetamíni á heimili sínu. Hann hlaut nokkru síðar 20 mánaða dóm í Hæstarétti fyrir það og hóf af- plánun þess dóms í ársbyrjun 1998 eftir að hafa farið í felur yfir jól og áramót, en samkvæmt boðun átti hann að hefja afplánun á Þorláks- messu. Það var í dómsmeðferð þess máls sem Franklín sagðist hafa tekj- ur sínar úr spilakössum og að fíkni- efnasala kæmi þar hvergi nærri - hann væri einfaldlega svo heppinn. Ómælt tjón af eiturlyfjasölu Franklín var og er þekktur í ís- lenskri þjóðfélagsumræðu. Hann hefur verið handtekinn nokkrum sinnum síðan þetta mál kom upp og stefnt ríkinu oftar en einu sinni fyr- ir ólögmæta handtöku. Þeim mál- um lauk með skaðabótagreiðslu til Franklíns í einhverjum tilfellum. „Ómælt tjón, er hann hefur vald,- ið þjóð sinni með eiturlyfjasölu, er meira en svo að miskabætur til hans frá íslenska ríkinu séu réttmæt- ar hvað þá sanngjarnar," sagði Páll Þorsteinsson héraðsdómari í dóms- orði eins málsins eftir að Franklín hafði farið fram á eina milljón króna Kaupmaðurinn á horninu Þaö vareinu sinni díler sem dreymdiað eignastallt dópsem var! landinu og allt á sama staö Hörðum höndum vann hann og læðinn slægði net I lausamennsku var hjá flknó ogátti /slandsmet Hann hafði aldrei setið inni, nei ekki einu sinni A laugadögum mætti 'ann, myndir gátu ei hrætt hann hann talaði og talaði, og malaði og malaði. Framtlð fíknó skóp. Hann átti bæjarins versta dóp Hann átti flna nál og skeið og skratti flna dælu skrlða þurftu menn tilhans efekta vildu sælu samkeppnin varengin I undirheimum þá. Alltafvarö hann fyrstur, kjafta menn á bak við slá. Franklín Húsleitvargerð hjá Franklln Steiner i siðustu viku og hald lagt á flkniefni, vopn og meint þýfi. Hann blandaði með sykri á svaka fina vigt. Með svaka nefá feisinu sem fann ei neina lykt. Var hataður afflklum sem finna það á sér þeir fá ekkert dóp I bænum betra eins og er. í bætur frá ríkinu vegna ólögmætrar handtöku í Kópavogi 1997. Kaupmaður á horni? Yfirvöld þekktu sem fyrr segir persónu og feril Franklíns en tveir af okkar ástsælustu listamönnum, Bubbi Morthens og Rúnar Júlíusson, þekktu hann einnig. Þeir sungu sam- an í GCD um kaup- manninn á hominu í samnefndu lagi og ffá því að það var samið árið 1991 hefur það skin- ið í gegn að þar er átt yið Franklín. „Á þess- um tíma var þetta einhvern veginn altalað í samfélaginu. Fólk bendlaði lagið svolítið við hann, án þess þó að ég sé að gera það. Fólk getur les- ið í textann og túlkað hann á sinn hátt," segir Rúnar Júlíus- son tónlistarmaður um lagið Kaupmaðurinn á horninu. Málið sem kom upp í síðustu viku tengt Franklín er í rannsóknarferli og því ekki vit- að hvaða áhrif það mun hafa á feril hans. Bubbi Samdi lagið um kaupmanninn á horninu. Rúnar Júl Segirfólk svolltiö bendta lagið við Franklln Steiner. Páll Óskar Hjálmtýsson slappar af í Berlín fyrir átökin í X-Factor Safnar orku í Berlín fyrir átök vetrarins „Berlín er yndisleg borg, hún er svo græn og veðrið er frábært," seg- ir Páll Óskar Hjálmtýsson söngv- ari og verðandi dómari í raunveru- leikaþættinum X-Factor sem Stöð 2 mun sýna í vetur*í staðinn fyrir Idol-Stjörnuleit. „Berlín verður næsta höfuðborg Evrópu því hún hefur allt að bera til þess. Hér er ódýrt að vera og borgin er svo miðsvæðis í Evrópu að allar leiðir liggja til Berlínar," segir Páll Óskar. Hann segir að Berlínarbúar séu ekki eins mikið efnishyggjufólk og íslendingar og að þeir leiti ekki að viðurkenningu og samþykki í formi peninga. „íslendingar eru svo miklir unglingar, nýungagjarn- ir og fljótir að skipta um skoðun eins og unglingar. Svo þegar kemur nýr farsími á markaðinn þá þurfa allir að eignast hann en Þjóðverjar eru ekki þannig því þeir hafa annað verðmætamat," segir Páll Óskar. Dómararnir í X-Factor Einar, Ellý og Páll Óskar. Hann segir að gay-lífið í Berlín sé alveg sér á báti. „Fyrstu mann- réttindasamtökin í Þýskalandi voru stofnuð fyrir meira en hundrað árum og þó að Hitler hafi strokað út gay-menninguna í seinni heims- styrjöldinni þá voru Þjóðverjar ekki lengi að ná sér á strik eftir stríð. Ég mæli með Berlín fyrir gay fólk og reyndar fyrir alla," segir Páll og er alsæll með veru sína þar. Hann er hjá vinafólki sínu í Berl- ín og segist ætla að safna orku þar áður en hann byrjar að hlusta á alla þá sem skrá sig í áheyrnarpróf fyr- ir X-Factor. Þættirnir eru hugsaðir fyrir alla sextán ára og eldri og eng- inn er of gamall fyrir þáttinn. „Ég sá áttatíu og tveggja ára konu í bresku þáttunum sem náði ansi langt og ég hlakka til að sjá allar fertugu húsmæðurnar sem horfðu á Id- olið og eru drekkhlaðnar af hæfi- leikum en hafa ekki fengið tæki- færi til að láta ljós sitt skína," segir Páll Óskar og hlakkar til að takast á viðþetta krefj- andi verkefni ásamt með- dómendum sínum þeim Einari Bárð- arsyni og Elínborgu Halldórs- dóttur sem er betur þekkt sem Ellý Q4U. jakobina@dv.is Páll Óskar Hjálmtýsson erffríi í Berlín „Gay-lifið I Berlln er atveg sér á báti. M

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.