Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Síða 36
56 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006
Helgin DV
„Það var þegar ég var við nám úti
í Ósló að kvenlæknir sagði við mig:
„Þú ert með Multiple Sclerosis."
„Hvað?" sagði ég. „Er það einhver
rómverskur keisari?"
„Þú ert með MS," sagði hún. Ég
var fullfrískur og hafði engar áhyggj-
ur en 1983 fór þetta að leggjast á fæt-
urna á mér. Þá vorum við Edda kon-
an mín komin heim og eignuðumst
okkar fyrsta barn. Við eigum þrjú
börn, strák og tvær stelpur. 1986 var
þetta farið að há mér verulega, þrekið
orðið lítið, sjónin farin að daprast og
1992 var ég kominn í hjólastól og hef
setið í honum síðan," segir Kjartan.
Ólst upp í Kópavoginum
„Ég átti venjulega bernsku og gekk
í skóla í Kópavoginum og útskrif-
aðist frá Menntaskólanum í Kópa-
vogi áður en ég fór í nám til Noregs
í norsku og málvísindum. Svo las ég
líka bókmenntir við Háskóla íslands
eftir að ég kom heim. Draumur þinn
rætist tvisvar er svona uppvaxtar-
saga, sem kannski fjallar um árin í
Kópavogi. Eftir að ég kom heim frá
Noregi skrifaði ég líka fyrir Moggann
og Dabbann og var líka með pistla í
útvarpinu. 1986 stofnaði ég örlagið
og fór að gefa út því ég var alltaf að
skrifa eitthvað, sem mér fannst að
aðrir mættu lesa."
Aldrei bitur vegna sjúkdómsins
Bundinn í hjólastól með sífellt
þverrandi krafta heldur hann áfram
að skrifa, áfram að gefa út. Stundum
voru skrifin ekki efnismikil en alltaf
innihaldsrík. Gleðin er í orðunum,
brosið óafmáanlegt, kímnin alltum-
lykjandi.
Hef alltaf átt góða að
„Þetta eru 10 ára gamlar syndir,
þessi hljóðdiskur. Sigurður Skúlason
leikari tók að sér að safna öllu sem
Verst þegar ég missti tölvuna
„Ég var alltaf að skrifa þrátt fyrir
að þrekið væri að þverra og sjúkdóm-
urinn ágerðist og gat notað tölvuna.
Var með 17" skjá frá Blindrafélaginu
en svo tók tölvan upp á því að klikka
og eftir það var ekkert að gera annað
en að hætta að skrifa en ég hef gefið
út tvær bækur síðan. Þetta er einhver
árátta í manni að vera alltaf að gefa
út. Nú er flest útkomið, þannig að ég
fer að hætta þessu bráðum."
Um að muna á ný
„Þessi nýi hljóðdiskur fékk nafnið
Allt sem var gleymt er munað á ný,
því ég fór að muna þessi skrif mín á
ný þegar ég heyrði diskinn. Ég undr-
aðist þetta náttúruiega en það þurfti
auðvitað að segja hver hafði skrifað
svona skemmtilegan texta. Síðan á
eftir að ganga frá dreifingunni held
ég en ég held þó að diskurinn fáist í
Máli og menningu og Pennanum."
Kjartan er orðinn þreyttur ogrödd-
in verður eilítið óskýrari. Blaðamað-
ur fær leyfi til að senda ljósmyndara
daginn eftir, niður í Sjálfsbjargarhús-
ið í Hátúni 12 þar sem Kjartan hefur
dvalið síðustu sex árin.
„En ekki fýrr enn eftir klukkan
ég hef skrifað og var óútkomið og
hann og Arnar Jónsson ásamt fleir-
um lásu þetta inn á diskinn. Það er
gott að hafa slíka snillinga í sínu liði.
Það er auðvitað Örlagið sem gefur
þetta út og hefur gefið næstum allt út
eftir mig, nema Kata mannabarn og
stelpa sem ekki sést, sem er barna-
bók og Æskan gaf út. Ég hef skrifað
einar sjö eða átta bækur. Skáldsög-
una Draumur þinn rætist tvisvar og
tvær ljóðabækur, önnur hét Dagbók
Lasarusar og svo auðvitað smásög-
ur. Ég gaf líka út smáprent Örlagsins
í mörg ár, örleikrit og fleira. Þessi ör-
leikrit eru nú komin út á bók."
Höft
í dag er fossinn í klakaböndum
svo hann missi ekki niður um sig vatnið
Á morgun kemur sólin
og bræðir af honum böndin
Þá mun hann standa berstrípaður
fyrir hvers manns augliti
með vatnið á hælunum
Verður mikið híað?
Úr Ijóðabókinni Dagbók Lasarusar
þrjú. Ég ligg fyrir mestallan daginn
og hlusta á útvarp, helst Rás 1. En
það er gott að vera hér og þær sinna
mér vel, vinkonur mínar sem vinna
hérna."
Örlagið 20 ára
„Ég sá Kjartan fyrst 1990 á fýrir-
lestri hjá jóganum Gurundev í Borg-
arleikhúsinu og fannst strax að ég
þekkti hann. Skömmu seinna upp-
hófst samvinna okkar og vinátta sem
hefur varað síðan. Ég las úr verkum
hans inn á kasettur fyrir Blindrafé-
lagið en sérstaklega var það uppvaxt-
arsagan hans Draumur þinn ræt-
ist tvisvar, sem heillaði mig. Það er
ákaflega falleg bók og ég fann í henni
samhljóm við mitt eigið líf. Ég álít
hana vera hans helsta höfundarverk
og ég las hana líka í útvarpið þannig
að hún gæti verið einhverjum kunn.
Kjartan stofnaði örlagið 1986 og
hefur gefið út bækur eftir Berglindi
Gunnarsdóttur og Jóhann Hjálmars-
son auk sinna bóka. Á þessum diski
er valið efni úr 20 ára sögu Örlags-
ins," sagði Sigurður Skúlason leikari
sem séð hefur um útgáfu hljóðdisks-
ins. Lesarar auk Arnars og Sigurð-
ar eru Berglind Gunnarsdóttir, Gísli
Helgason, Helga Jónsdóttir, Jóhann
Hjálmarsson, Sindri Sigurðarson og
Sólveig Arnardóttir, auk þess sem
Kjartan les eitt ljóð sjálfur.
kormakur@dv.is
Kjartan Árnason Hefur alla lið verið
afar ánægður með þá þjónustu sem
hann hefur fengið i Sjáífsbjargarhús-
inu. „Þetta eru allt vinkonur minar."
Kjartan Árnason rithöfundur hefur barist viö MS-sjúk-
dóminn í 26 ár. Þrátt fyrir að þessi ólæknandi og illvígi
sjúkdómur sé að leggja hann að velli hefur Kjartan aldrei
látið bugast, aldrei gefist upp, en hann veit að endalokin
nálgast og hefur nú lokið hljóðritun sinnar hinstu kveðju.