Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Page 48
68 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006
Helgin DV
í
%
Berglind Hásler
metur músíkina
Ég sakna þess að hafa ekki
tónlistarþátt á Rúv líkt og þá sem
voru reglulega á dagskrá hér áður
fyrr. Þættir eins og Poppkorn, Popp
og kók,Tíðarandinn og Ungling-
arnir í frumskóginum. Ég myndi
hoppa hæð mína ef svona þáttur
yrði settur aftur á dagskrá. Heiða
og Dr. Gunni væru til dæmis bæði
frábærir kandídatar í svona þátt.
Þau mundu pottþétt sjá til þess að
hann yrði fjölbreyttur og fróðlegur.
Aukin tónlistarvíðsýni og
góð afþreying
Ofannefndir þættir áttu það allir
sameiginlegt að sýna nokkur
myndbönd, erlend sem íslensk og
komu með ýmsa fróðleiksmola
milli myndbanda. Svona þættir
auka tónlistarvíðsýni og eru hin
besta afþreying. Rúv hefur að mínu
mati ekki staðið sig sem skyldi í að
sýna íslensk myndbönd. Það er
helst Sigur Rós og börnin sem hafa
fengið einhverja spilun.Tónleikar í
Kastljósinu á hverju kvöldi er
auðvitað frábær kynning á
íslenskum böndum en sami
bakgrunnur og engin umfjöllun
um bandið fær mann til að finna til
þreytu á annars góðu framtaki.
Þúsund rassar, þúsund brjóst
Fullt af íslenskum böndum luma á
myndböndum, nýjum og gömlum
sem gaman væri að sjá. Popptíví,
Sirkus og Skjár einn sýna vissulega
myndbönd. En ég nenni ekki fyrir
mitt litla líf að bíða og hofa á þúsund
rassa og þúsund brjóst áður en
íslenskt myndband birtist á skjánum.
Ég óska þess vegna eftir einum
fróðlegum, vikulegum, hálftíma þætti
sem ég er viss um að mannmergð
mundi að fagna. Með svona þætti
væri líka kominn góður starfsgrund-
völlur fýrir kvikmyndagerðarmenn.
Dj. Sóley fagnaði mánaðar afmæli óskírðrar dóttur sinnar síðastliðinn miðvikudag.
Þrátt fyrir að vera nýbúin að eignast dúlluna er Sóley mætt á Rás 2 með vikulega út-
varpsþætti sem hún kallar Píkupopp
Píkupopp
Sóley glóir þessa dagana enda nýbúin að áorka því að fæða
litla dömu í heiminn. Glöð og stolt arkar hún um bæinn með
dótturina í vagni.
Sóley svarar símanum rámri
röddu og biður blaðamann um að
hringja klukkutíma seinna. Klukku-
tíma seinna er leikurinn endurtek-
inn og þá er heldur meira fjör í stelp-
unni. „Ég var að vakna, ég sef á mjög
afbrigðilegum tímum núna," seg-
ir Sóley og hlær sínum sjarmerandi
hlátri.
Sársaukafull fæðing
Hvað kom þér mest á óvart við
að eignast barn? „Sársaukafull fæð-
ing, mun verra en ég bjóst við. Ann-
ars er þetta alveg yndislegt. Ég bjóst
„Ég bjóst alveg við því
að vaka á nóttunni svo
það kom mér ekkert
brjálæðislega á óvart."
alveg við því að vaka á nóttunni svo
það kom mér ekkert brjálæðislega
á óvart. Mestu viðbrigðin eru hvað
ég hef lítinn tíma fyrir sjálfa mig. Ég
þarf til dæmis að plana sturtuferðir
og búðarferðir. Eru vinkonur þínar
komnar með börn? „Nei, en það eru
nokkur á leiðinni. Það er frábært og
munar öllu." Er stelpan komin með
nafn? „Nei, hún er óskírð litla dúllan.
En nafnið er komið, við erum bara
ekki búin að tilkynna fjölskyldunni
það ennþá svo ég gef það ekki upp.
Við ætíum að skíra hérna heima og
bjóða nánustu fjölskyldu."
Gaman að vera komin aftur í
útvarpið
Er ekkert mál að vera komin með
útvarpsþátt þegar stelpan er enn
svona lítil. „Nei þetta er ekkert mál.
Hún á líka svo duglegan pabba."
Hvernig kom þetta til? „Það var bara
hringt í mig. Þetta kom sér mjög vel
af því að ég er alveg hætt að spila og
það er mjög gaman að vera komin
aftur í útvarpið. Ég var þar síðast fyr-
ir aldamót. Þá var ég svo mikill hipp-
hoppari," segir Sóley sem er farin
að spila mun fjölbreyttari tónlist en
áður. Sóley er auðvitað vön því að
velja plötur og smella þeim á fóninn
svo hún á ekki í miklum vandræðum
með að undirbúa þættina sína. „Ég
þarf auðvitað að passa að ég sé ekki
að spila sömu lögin."
Glóandi Sóley Nýbúin að eignastsaklaust
stúlkubarn og er strax komin í útvarpið.
Píkupopp
Útvarpsþáttur
Sóleyjar á Rás 2.
Hvað sem það er, hvort sem þér leiðist eða langar að prófa eitthvað nýtt þá höfrnn við svörin fyrir þig. DV veit sínu
viti og fylgist vel með því sem er nýtt í búðum, nýjum stöðum eða einhverju sem er móðins ákkúrat núna.
Góður lestur fyrir fyrir kaldar nætur
A Spot of Bother Nýasta bók
Mark Haddon. Hún er till
bókabúöum landsins á ensku.
Mark Haddon fæddist í Northamp-
ton í Englandi árið 1962 og lauk prófl
í enskum bókmenntum frá Merton
College í Oxford og Edinborgarhá-
skóla. Mark Halldon hefur skapað sér
nafn sem myndskreytir en hann hefur
teiknað skopmyndir og teiknimynda-
sögur fyrir blöð á borð við New States-
man, Private Eye, Sunday Telegraph og
Guardian, en þar var hann meðhöf-
undur að teiknimyndasögunni Men -
AUser's Guide.
Verðlaun fyrir Furðulegt háttalag
Mark Haddon hefur skrifað töluvert
fyrir sjónvarp og meðal annars unnið til
tvennra BAFTA-verðlauna, auk fjölda
annarra viðurkenninga. Fyrsta bók
hans fyrir eldri lesendur var Furðulegt
háttalag hunds um nótt (The Curious
Incident of the Dog in the Night-time)
en hún vakti mikla lukku en hann fékk
„Whitbread Book Awards" árið 2004
fyrirþá bók.
Ný bók sem lofar góðu
Nú er hægt að nálgast nýjustu bók-
ina hans „A Spot of Bother" í verslun-
um Máls og menningar en hún kom
út núna fyrir skömmu. A Spot of Both-
er gerist í Peterborough og er aðal-
persónan George og er hann komin á
eftirlaun. Hann hefur miklar áhyggj-
ur af að hann sé kominn með krabba-
mein og eiga þessar áhyggjur hug hans
og hjarta allt.
Dóttir George, Katie, er að fara að
gifta sig í annað sinn manni sem föður
hennar líkar ekkert við og sonur hans
Jacob er hommi. Það er alltof mikil
dramatík í lífi George og er þetta hon-
um ofviða
Skrautieg saga og einstakar
persónur
Sagan er sögð í þriðju persónu en
frá fjórum sjónarhomum eða persón-
um sem allar eiga það sameiginlegt að
hafa lent í einhveiju sem gerir það að
verkum að þau eigá sín- mk
ar slæmu hliðar og daga.
Citt onrmnKlil/iA Ct*
FURöUI tr
Eitt augnablikið ákveð
ur ein persónan í bók-
inni að fara í sturtu og
framkvæma á sjálfum
sér aðgerð.
Eins og höfund-
urinn sagði þá vildi
hann skrifa um
eitthvað allt ann-
að en í lýrri bók Furðulegt háttalag
sinni, Furðulegt hunds um nótt Sló i
háttalag hunds gegn um allan heim.
um nótt. Einn-
ig vildi hann skrifa raunsæja sögu um
fjölskyldu og einhvem heim sem hann
þekkir vel. Karakteramir em trúverðug-
ir og má með sanni segja að söguþráð-
urinn sé skrautíegur. A Spot of Bother
hefur fengið misgóða dóma enda má
með sanni segja að væntingarnar séu
miklar eftir hans síðusm bók.
Mark Haddon Hrærðurað taka við verðlaun-
um. Hann á langan feril að baki.