Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Qupperneq 49
DV Helgin
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 69
Sigga Ella stormar um bæinn
Jibby Cola!
Það er svo sannarlega ágætt á sinn hátt
að haustið er komið í heimsókn þrátt fyrir
að það hafi komið soldið aftan að mér. Á
vorin er eins og andinn komi yfir mann
og maður hoppar um, líkt og kýrnar á
vorin. Fullur af bjartsýni og lífsgleði.
Spark í rassgatið
Á haustin rennur uppfyrir manni að
sumarið er búið, það er farið að dimma
og svo kólnar með hverjum deginum
sem líður. Persónulega skríð ég undir
feld á haustin þó ekki eins og birnirnir, ég
skýt upp kollinum af og til. Vetrarsleniðer
eins og langvarandi nefrennsli, maður
snýtir sér en samt lekur niður á
neðrivörina. En það sem gaf mér spark í
rassgatið var að við starfsfélagarnir
ákváðum að taka á honum stóra okkar,
betrumbæta innblaðið og þar með hófst
fjörið. Vinnustaðurinn lifnaði allur við og
beljurnar fóru að baula. Þetta var eins og
vítamínsprauta fyrir minn auma rass því
þá ákvað ég að taka til hendinni heima
fyrir sem og annars staðar.
Það eru ekki allir eins og ég
Það er ómögulegt að þurfa að horfast í
augu við þá staðreynd að það eru ekki
allir jafn miklir snillingar og ég,
fyrirhyggjusamir og sniðugir. Það er
nefnilega hópuraf kjánum þarna úti sem
hagar sér eins og beljur á svelli í stað þess
að búa sér í haginn. Eina sem er í fréttum
þessa dagana eru fréttir af hópslagsmál-
um, skipulögðum slagsmálum og
ruddum og ræflum. Það er ótrúlegt hvað
fíflin fá mikið út úr því að sparka hvert í
annað og gjörsamlega óskiljanlegt af
hverju þau spyrða sig ekki saman og láta
sér líða vel. Af hverju sagði mér enginn
að beljur bitu?
Langt er þangað til hægt verður að segja að samfélag okkar sé uppiskroppa með efnilegt
og spennandi fólk. Þetta er lítið land og andlit hins ókunna kemur oft kunnuglega fyrir
sjónir en hvort maður viti eitthvað bitastætt um einstaklinginn er allt annað mál. DV
fékk að þessu sinni Arnar Björnsson íþróttafréttamann til að opna sig eilítið.
CPSSfi
m *
Nafn?
ITI
jlLm
Arnar Björnsson
Hvað á hug þinn allan þessa
dagana?
Eg á ennþá eftir nokkra daga af sum-
arfríinu mínu og nýt þess í botn að safna
kröftum fyrir næstu átök. Haustið er ynd-
islegur tími og maður verður hugfanginn
af litadýrðinni.
Hvaöa mynd sástu síðast? Gefðu
einkunn frá einni stjömu upp í fimm.
BÖRN_ eftir Ragnar Bragason. Flott
mynd, ágeng og áleitin. Pottþétt kvikmynd
sem allir ættu að sjá og hvíla sig frá engij-
saxnesku myndunum sem tröllríða öllu,
alltaf. Fínt innlegg í umræðuna um ungl-
ingamenninguna og hvernig þjóðfélag við
foreldrar búum börnum okkar. Glæsileg
frammistaða leikaranna. Einkunn 5 plús.
Ertu heimsforeldri?
Nei, ég á nóg með að ala dóttur mína
upp. Ég hef oft hugsað út í að gerast slík-
ur en ekki gert það ennþá. Við þurfum
einnig að huga að bömum þessa lands því
þar er víða pottur brotinn. Það eru alltof
mörg börn hér á landi sem eiga bágt. Það
eru ekki allir sem geta tekið þátt í helvít-
is tískudansinum að klæða börn sín í öll
flottu og fokdýru fötin svo ekki sé nú talað
um allár græjurnar.
Jf m
fLgm W* nsS&b' ’® 'v!
Hvað bjóstu til eða skapaðir siðast?
Kaffi. Ég er lélegur skapari, hvorki
hand- né fódaginn og get illa sett saman
bókahillu úr IKEA. Ég er snillingur í því
að búa til kaffi handa sjálfum mér, mala
baunimar, forhita kaffikönnuna og læt
kaffikrúsina undir sjóðandi heitt vatnið.
Yndislegt. Verst að sumir kunna þó ekki
að meta styrkleikann hjá mér.
Biðurðu bænirnar þínar á kvöldin?
Nei, ég er óttalega latur við bænalest-
ur þegar ég er kominn í bólið. Lykla-Pét-
ur skammar mig örugglega þegar hann
tekur á móti mér í himnaríki (ekki alveg á
næstunni þó). Þá lofa ég honum að gera
bragarbót ef hann í staðinn sýnir mér
sjónvarpsherbergið þar sem úrslitaleikur
Leeds og Barcelona í meistaradeildinni í
fótbolta er í beinni útsendingu.
Hvenær fórstu að sofa í nótt?
Ég fór óvenjusnemma að sofa í gær-
kvöldi. Er að lesa sakamálasögu eft-
ir Henning Mankell og hún tosaði mig í
rúmið. Missti síðan bókina á nefbroddinn
á mér og sofnaði vært.
Hvað er næst á dagskrá?
Það er svo margt. Dagurinn er rétt að
byrja og miðað við hversu mér gekk vel að
búa til þetta ljómandi góða kaffi þá get-
ur framhaldið ekki orðið annað en ynd-
islegt.
TISKA
«r
Alltaf vantar mann töskur, veski eða jafnvel poka undir allt hafurtaskið sem fylgir manni. Núna eru flestir
komnir í vetrargírinn og dagskráin orðin þéttari. Ekki vantar úrvalið og fjölbreytileikann í veskjum og
töskum í dag. Af því tilefni ákvað DV að skoða það nýjasta og flottasta í búðum bæjarins.
Töskur
Monsoon
rauð 3.450 kr.
hv/t semelíu 4.850 kr.
svört, grá og brún 4.150 kr.
hlébarða 3.450 kr.
Warehouse
svört, gull og brons 5.990 kr.
svört, glans og púffuð 4.990 kr.
svört, og silfur 3.990 kr.
Spúútnik
allará 2.900 kr.
stór og svört 3.900 kr.
<
í