Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1964, Síða 7

Freyr - 01.01.1964, Síða 7
LX. ÁRGANGUR — NR. 1 REYKJAVÍK, JANÚAR 1964. Útsrefendur: Búnaðarfélag íslands os Stéttarsamband bsenda. ÚtfirÁfunefnd : Einar Ólafsson, Halldór Pálsson. Pálmi Ein- ■EFNI: FREYR sextugur Vandið búnaðarframtölin! Fjós af sænskri gerð Hrossarækt eða gönuskeið Menn og málefni Árferði 1963 Ræktunarfélag Norðurlands Fóðurþjófur í fjósinu Bækur arason. — Ritstjóri: Gíali Kristjánsson. — Ritetjórn, srreiðsla og: innh.: Laskjarg. 14 B, Reykjavík. PÓBth. Simi 19200. Áskriftarverð kr. 150,00 árjfansrurinn. Prentsmiðjan Edda h.f. af- 390. Molar Freyr sextugur Á að breyta til? Með þessum árgangi hefst hinn sextug- asti í tilveru FREYs. Enginn veit að sjálf- sögðu afmæli hans, aðeins árið verður markað og þegar það er liðið má með sanni segja, að blaðið hafi fyllt sína sex tugi. Hefur tímarit nokkurn aldur? var Helge Janér, ritstjóri sænska búnaðarblaðsins LANTMANNEN, spurður fyrir jólin í tilefni af því að rit þaö, sem hann lengi stýrði, verður 75 ára á þessu ári. — Nei, svaraði hann. Tímarit er alltaf að fæðast, hvert nýtt hefti er einstaklingur út af fyrir sig. Lifandi verur eldast en tímarit eldist ekki, heldur er það alltaf í endur- nýjung. Þess vegna er hægt að segja um tímarit, að því eldra sem það er þeim mun nýrra er hið síðasta hefti þess í samanburði við hið fyrsta. —O— Eigi vitum vér, hvort telja skal ummæli hins aldna ritstjóra, í Svíaríki, sannindi eða ekki. Það má víst gera ráð fyrir, að sínum augum líti hver á það mál eins og fleira. Ekki er heldur víst að það þætti eiga við um Frey, þó að slíkt kynni að vera stað- reynd um Lantmannen. Frá nokkrum les- endum fær maður við og við bréf og ábend- ingar um að Freyr ætti að vera öðruvísi en hann er. „Freyr er nákvæmlega eins og hann var á fyrstu árum útgáfunnar, ég á hann allan, hann hefur ekkert breytzt“, skrifaði einn í fyrravetur. Um þetta má segja: Freyr var í upphafi um 104 síður á ári, örfáar myndir, án kápu eða með mislitri kápu og skrifaður af 8 mönnum að mestu. Á árinu 1963 var hann um 460 tölusettar síður, þar að auki 100 kápusíður með aug- lýsingum, og með það mörgum myndum, að sumum þykir nóg um, meira að segja litmyndum, sem raunar eru svo dýrar, að útgáfunni er um megn að láta prenta þær og gerir það því aðeins til hátíðabrigðis.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.