Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1964, Blaðsíða 9

Freyr - 01.01.1964, Blaðsíða 9
FRE YR 3 kemur út einu sinni eða tvisvar í mánuði. Það mætti segja frá nýjum lögum, sem Al- þingi hefur afgreitt, en hitt hefur hingað til verið látið nægja að gera grein fyrir at- höfnum, sem lögin hafa skapað ramma um, að svo miklu leyti sem fært hefur verið. Svo eru það viðtölin. Ritstjórnin hefur lengi vitað, að þau geta verið eftirsótt lestrarefni. Laust eftir að núverandi ritstjóri tók við umsjón með útgáfu FREYs var stöku sinn- um farið inn á þá braut og var vel séð. En það er nú svo, að slíkt efni verður einatt meira umbúðir en kjarni og á síðum tíma- rita er þess háttar haft sem fylling. Það efni heyrir raunar til vettvangi dagblaða og vikublaða hvar sem farið er eða komið. Vel vitandi, að hér er efni, sem fólk vill lesa, hefur beiðnum um þetta verið sinnt á árinu sem leið og hefur það efni raunar fylit fleiri síður en útgáfustjórn ætlaðist til við byrjun ársins. — Hví má ekki vera meira af því? spyrja sumir. FAGRIT — SKÓLI — FREYR hefur frá upphafi verið bún- aðarblað og það á hann að vera, segja út- gefendur, og það með réttu, þó að hið rétta væri að segja tímarit um búnaö, en ekki blað. — En hvað um það. í því sniði og þeim búningi, sem hann birtist, er hann fagblað. Við hlið búnaðarskólanna í land- inu mundi hann vera og eiga að vera skóli fyrir þá, sem fyrir löngu eða skömmu — sumir aldrei — hafa lokið búnaðarskóla- námi og stunda nú búskap. Tímarnir færa stöðugt ný verkefni í fang og það er hlut- verk búnaðartímarits að sinna þeim og flytja boðskap um þau. Þegar þau koma ný er ekki alltaf auðvelt að segja hvers virði þau eru eða verða okkur, þó að reynd séu og góð eða ágæt annars staðar. Þá er á fyrsta stigi torvelt að meta hve miklu rúmi skal offra til að gera grein fyrir þeim. Við íslendingar erum nýjungagjarnir, það er víst, og grípum báðum höndum það sem berst af því tagi. En ekki er það gott allt saman og sumt nýtt skyldi aldrei hafa hingað komið, það vita allir. Annað skyldi hafa hraðar borizt til almennings en raun ber vitni. En hver veit fyrirfram? BÚNINGUR Eitt skal fúslega játað í þessu efni og það er, að oftar og meira hefði mátt skrifa um vélar og tækni, en verið hefur. En til þess þarf mann eða menn, sem hafa sér- grein að hlutverki á þessu sviði og þeir hafa bókstaflega ekki verið finnanlegir, er fengizt hafa til að leggja slíkt efni af mörk- um fram yfir það, sem reynslan sýnir. Jú, og svo hefði gjarnan mátt vera meira um mjólkurmál, en þar er svipaða sögu að segja. En svo segja lesendur máske, að fræðileg skrif um þetta efni hafi þeir ekki þörf fyrir. Ójú, það hafa þeir nú, en hitt er annað, að íslendingar vilja yfirleitt held- ur annað lestrarefni en það, sem til fræði- mennsku á sviði búskapar getur talizt. Lítum bara á fagritin í grannlöndum okk- ar. Þau eru sum aðeins um einn þátt þeirra atriða, sem efnisskrá Freys sýnir. Jersey- blaðið, mánaðarrit, fjallar eingöngu um bú- skap með jerseykýr. Þannig mætti nefna fleiri rit granna okkar, sem búskap stunda. En þeir eiga búnaðarblöð, sem eru full- komnari en okkar FREYR, það skal játað. Norsk Landbruk má án efa telja til fyrir- myndar-búnaðarblaða um Norðurlönd og búfræðirit stærri þjóða getum við í engu tekið til fyrirmyndar. Það væri gaman að geta gert út eins veglegt tímarit um búnað

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.