Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1964, Síða 13

Freyr - 01.01.1964, Síða 13
FRE YR 7 Þær fyrirspurnir fjalla um mörg þýöing- armestu atriðin, sem ágreiningur hefur orðið um í verölagsumræðum undanfarinna ára. —O— 1. Óskað er eftir sundurliðuðum upplýs- ingum um vinnu eiginkonu og barna bóndans við búreksturinn. 2. Óskað er eftir upplýsingum um f jölda unglinga við nám í heimavistarskólum og kostnað við fæði þeirra þar, skóla- eða heimavistargjöld og ferðakostnað. 3. Óskað er upplýsinga um magn af hverri kjarnfóðurtegund, sem notuð er á bú- inu og verði á hverri einingu, (án flutn- ingskostnaðar). 4. Á sama hátt er óskað upplýsinga um magn hverrar áburðartegundar og verð á hverri einingu. 5. Sé bifreið í eigu bóndans, eða vanda- manna hans, sem notuð er við búrekst- urinn, þarf að fá upplýst, hve mikill hluti af heildarnotkun hennar er við búið og við hvaða störf hún er notuð. 6. Upplýsinga er óskað um viðhaldskostn- að útihúsa, ræktunar og vatnsleiðslna. Nauðsynlegt cr að þetta sé vel sundur- greint. 7. Þá er spurt um gerð og stærð útihúsa og aldur þeirra. — Til þessa atriðis þarf sérstaklega að vanda, því að erfitt hefur reynzt að fá viðurkenningu á húsakostn- aðinum í verðlaginu og sérstaklega erf- itt að fá hann umreiknaðan til nútíma verðlags. Lýsing á aldri og gerð húsanna þarf að vera vel af hendi leyst. 8. Á sama hátt er spurt um lengd og aldur girðinga, þar með taldar haga- og af- réttargirðingar og viðhaldskostnað þeirra. 9. Spurt er um skuldir bænda og er sér- stök ástæða til að minna bændur á að telja í þessu sambandi til skulda ógreitt kaup til barna eða annarra vandamanna. Það er þýðingarmikið að fá upplýsingar um vaxtagreiðslur og þá má ekki gleyma vöxtum af viðskiptalánum né skyndi- lánum í sparisjóðum. 10. Hverjar eru greiðslur vegna ýmiss konar trygginga svo sem: brunatrygginga, dráttarvélatrygginga, búf jártrygginga og annars þess háttar? 11. Hver eru opinber gjöld vegna búreksturs, þar með talið aðstöðugjald, útsvar, fast- eignaskattar, fjallskilagjöld o. fl. Og ekki má gleyma símakostnaöi. 12. Hve margt búfé er í fóðri í eigu annarra en bóndans? 13. Sundurliðun óskast á tekjum utan bús- ins. 14. Sundurliðun óskast á fjárfestingu árs- ins og hvaðan fé til hennar hefur komið. Ég heiti á þá bændur, sem fá bréf frá Stéttarsambandi bænda ásamt tilmælum um að veita þessar upplýsingar, að bregð- ast vel við og senda svarið til Hagstofu ís- lands, sem mun vinna úr upplýsingunum. Bændur, sem skila svörum, verða þátt- takendur í því starfi að tryggja áfram- haldandi framþróun í sveitunum — að veita bjartsýni og trú á framtíðina nýtt gildi. Jafnframt þessu vil ég hvetja alla bændur til að vanda vel öll framtöl varðandi land- búnaðinn, bæði tekju- og gjaldamegin. Það á að vera metnaður bændastéttarinnar að hagskýrslur um landbúnaðinn fáist sem gleggstar. Það styrkir alla aðstöðu land- búnaðarins í heild. Ég óska svo bændastéttinni allri farsæld- ar á nýju ári. í desember 1963 Gunnar Guðbjartsson.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.