Freyr - 01.01.1964, Blaðsíða 14
Mynd þessi sýnir hjarðfjós fyrir 44 kýr og stíur handa ungviði — á grindum. Hálmur
og hey í hlöðu við enda fjóssins til hægri en votheysturna.r til vinstri. — Mjaltafjós er í álmu
við hlið fjóssins, lengd þess og mjólkurhússins er 15 metrar, en lengd sjálfs fjóssins 32 metrar
og breidd þess 13,5 metrar. Mykja og þvag sé í kjallara undir fjósinu.
FJÓS
AF SÆNSKRI GERÐ
Frá rannsóknarstofnun ríkisins í Svíþjóð,
sem annast rannsóknir og tilraunir með
sveitabyggingar, hefur komið út 55.
skýrsla um starfsemi hennar. Hún fjall-
ar um rannsóknir á fjósum og árangur
þann, er þá fannst.
Val 2.585 fjósa, sem rannsökuð' voru, var
tilviljunarkennt. Þau voru í öllum sýslum
landsins og af öllum stærðum. Stærsti hóp-
urinn voru fjós með 5—10 kýr. í þeim var
meðal-fitumagn ársins 168 kg á kú.
Það sýndi sig, að meira en 80 af hundr-
aði fjósanna eru með loftrými yfir og er
þar geymt hey og hálmur. í nákvæmlega
öðru hvoru fjósi eru svín og kýr í sama
húsrými og í 67 af hundraði eru tvær raðir
kúa með fóðurgang i miðju. Að meðaltali
voru 21 bás í fjósi og af þeim tæplega helm-
ingur notaður handa mjólkandi kúm. Aðrir
básar voru notaðir handa ungviði eða svín-
um. Húsrýmið virðist ekki vel notað vegna
mjólkurf ramleiðslunnar.
Af hverju hundraði fjósa eru 43 með út-
veggi úr tré, hin með steinveggi, eða tré og
steinveggi. Stærri fjósin eru flest með stein-
veggjum. Meira en 60 af hundraði fjósa
hafa þök úr asbesti eða leirhellum.
Meðalaldur fjósanna er rétt um 30 ár,
þ.e.a.s. að þau eru flest byggð um 1930, en
á meöal þeirra nokkur frá um aldamót.
Af hverju hundraði hafa aðgerðir farið
fram á 40 fjósum, að minnsta kosti að því
er snertir glugga og þök. Viðhaldskostnað-
urinn var athugaður og kom í ljós, að hann
var mun meiri en bændur hafa talið fram
á skattskýrslum sínum.
Loftræstibúnað skorti í um það bil þriðja