Freyr - 01.01.1964, Síða 15
F R E Y R
9
hvert fjós. Strompar á fjósum voru lang-
oftast allt of litlir til þess að geta loftræst
nægilega, miðað við fullskipuð fjós. Inn-
rásaop hreina loftsins voru viða óvirk að
meira eða minna leyti.
Votheyshlöður voru við rúmlega 44% af
fjósunum, flestar voru þær byggðar á árun-
um 1946—50 og langílestar úr steini. Óvíða
eru meira en tveir turnar á bújörð. Á hverju
býli með votheyshlöðu var rúmmál hennar
að meöaltali 68 m:i og votheyshlöðurýmið
eykst með þrem og einum fjórða rúmmetra
fyrir hverja kú fram yfir meðalbú. Því nær
alls staðar er mjólkin borin í fötum af
mjaltastaö til síunar. Sjálfsrennslis-mjalta-
lagnir voru í 2% af fjósunum. Dyr á milli
mjólkurhúss og fjóss voru í 53 af hverju
hundraði fjósa. Á 80% rannsakaðra búa
voru mjólkurhúsin of lítil og of illa búin
til þess að uppfylla kröfur þær, sem geröar
eru til fyrsta fiokks skilyrða um hreinlætis-
ráðstafanir. Ef horfið verður að notkun
heimilistanka, þarf víðast að breyta mjölk-
urhúsunum verulega. Um beitartímann eru
kýrnar reknar heim til mjalta á 3 af hverj-
um fjórum búanna.
Heyi og hálmi á fjósloftum er kastað nið-
ur um op þegar gefa skal. Um það bil 20%
bænda nota aðeins handverkfæri við hey-
flutningana. 43% nota hjólbörur eða hey-
vagna reglulega. Á meira en öðrum hverjum
bæ er kraftfóður sótt daglega í annað hús
er gefa skal á jötu. Kúm eru víða gefnar
rófur og vothey aðeins einu sinni á dag,
en hálmur, hey og kraftfóður víðast tvisv-
ar. Vélrænn útmokstur mykju var á 86 býl-
um (3,3%). Víðast var mykja flutt úr fjósi
í hjólbörum, tvisvar á dag.
Óskir um tæknibúnað í fjósum náðu í
fyrstu röð til þess að fá sjálfvirkan mykju-
flutning. Mjaltavélar voru í 96% fjósanna.
Hvernig ætli þetta sé í íslenzkum fjósum?
Fjósiff er fyrir 40 kýr auk ungviffis, en fyrir þaff er rúm í endanum næst heyhlöðu til hægri á
myndinni. Viff gagnstæffan enda f jóssins eru f jórir votheysturnar. Færibandsútflutningur mykju
er undir miffju fjósi, þvert um byggingu, en frárennsli lagar úr fjósi og frá votheysturnum
sameinast í þró skammt frá votheysturnunum. Mjólkurhús er við miffja langhliff. Skurffirnir
tveir sýna, aff hlaffa er meff skúrþaki, og skurffur af fjósi sýnir, aff stéttir eru viff útveggi.