Freyr - 01.01.1964, Page 20
14
FRE YR
JÓN H. ÞORBERGSSON:
ÁRFERÐI 1963
i
Fyrstu 13 daga janúar voru stillur um allt
land, oftast léttskýjað og miklar frosthörkur.
Hinn 4. var frostið á Grímsstöðum 23°. Daginn
eftir var frostið hér á Laxamýri 18°, á Akur-
eyri 16-, á Grímsstöðum 19°, í Möðrudal 29° og
á Egilsstöðum 18°. Hinn 12. var frostið hér 15°,
á Akureyri 14-, í Möðrudal 22°, á Egilsstöðum
16° og á Þingvöllum 18°. Daginn eftir var 15°
frost á Þingvöllum og 16- á Eyrarbakka, en
þann dag var komin 2° hiti sums staðar á
Vestfjörðum. Fór þá mjög að draga úr frost-
unum og hinn 17. og 18. var hér suðvestan átt
með 4—5° hita og aftur þann 27. Annars var
írostið 2—10- hér, flesta daga, síðari hluta
mánaðarins. í fréttum hinn 23. var sagt um
harðindin í Evrópu, að þau hefðu þá staðið í
31 dag. Frostið fór í 33 • í Suður-Frakklandi og
í 30° suður á ítalíu. Bretar töldu, að slík harð-
indi hefðu ekki komið yfir Bretland síðan á
öndverðri 17. öld. Á 11. degi harðindanna
höfðu 850 manns í Evrópu farizt í stórhríðum
eða frosið í hel.
II
Hinn fyrsta dag febrúar var hér sólskin og
0°, næstu 10 daga var hér hægviðri með 6-12-
frosti og hinn 5. fór frostið í 19°. Eftir það
hélzt logn með sólfari og mjög litlu frosti til
mánaðarloka. Suma daga var sólbráð, sem ég
man ekki áður 1 febrúar.
III
Marzmánuður var sá veðurbezti, sem ég man.
Frost voru ekki um daga, svo að nokkru næmi,
nema hinn 22., 10°. Annars var oftast frost-
kali um nætur, en hiti 2—5°, af sól, á daginn
og logn nær alla daga mánaðarins. Síðustu
dagana sá hér votta fyrir gróðri. Hinn 27. kom
hér snarpur jarðskjálftakippur kl. 11,17 um
kvöldið. Fylgdu fyrsta kippnum margir
smærri.
IV
Fyrstu 8 daga aprílmánaöar var hér vorveð-
ur. Hinn 4., 5. og 6. fór hitinn í 10°. Um morg-
uninn, hinn 9. var hér logn og þungskýjað og
2° hiti. En upp úr hádegi gekk í ofsastórhríð
með 16° frosti. Næsta dag dró úr rokinu, en
mikil snjókoma með um 14- frosti var hinn 10.
og 11. og norðan-
áttin hélzt, með
snjó og kulda í 12
daga. Á páskadag,
hinn 14., var hér
norðan stórhríð
með 10° frosti.
Upp úr 18. dró úr
frosti, en var þó
kalt, og síðustu 2
daga mánaðarins
hélzt 3—5° frost
allan daginn. Ekki
urðu fjárskaðar í
áhlaupinu hér um
slóðir svo nokkru
næmi. En sjórinn
tók sinn skatt sem
löngum áður, 11 manns fóru í sjóinn hinn 9.
og 5 hinn 12. Alls 16 menn.
V
Með maí héldust kuldar og sólarleysi allt
fram á uppstigningardag, hinn 23. En þá hlýn-
aði og héldust framúr hlý veður 9 síðustu daga
mánaðarins. Tók þá jörð að lifna. í lok mánað-
arins var lambfé, hér á Laxamýri, allt á túni
og á gjöf, 5 vikur af sumri. En geldfé var
sleppt hinn 15, á hálfdauðan gróðrarvott, sem
kom um mánaðamótin marz-apríl. Mikið var
hlýrra við suðurströnd landsins en hér nyrðra,
þennan mánuð.
VI
Hinn 1. júní var hér norðankuldasúld með
1—3- hita. Næsta dag brá til mikilla hlýinda.
Þaut þá upp gróður svo að hinn 8. var hér
kominn sauðgróður, sem ekki telst mjög seint,
hér um slóðir. Héldust þá hlýindi til hins 17.,
en þá gerði norðan kuldakast í 4 daga eftir það,
var hlý tíð til loka mánaðarins. Hinn 28. og 29.
fór hitinn hér í 20-. Næturfrosta varð ekki vart
þennan mánuð. Hinn 27. byrjuðum við að
heyja hér á Laxamýri. Hinn 12. var hér 10-
hiti, en 16° í Brattahlíð.
VII
Fyrstu 7 dagar júlí voru hlýir með sólfari
og heyþurrk. Næstu 12 daga var norðanátt með
þoku í lofti, en hægri úrkomu og hitastig á
daginn 3—6°. Laugardag 20. var hér mikill
þurrkur. Herti þá aftur norðanáttina. Þess má
geta, að hinn 11., er hér var 1° hiti kl. 10 e.m.,
var sólskin og 16- hiti á Kirkjubæjarklaustri
kl. 6 e.m. Svo stórkostlegur munur getur verið
á veðri í landinu. Hinn 22. og 23. gerði ákaft
norðanáhlaup með roki og stórúrkomu, með