Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1964, Blaðsíða 23

Freyr - 01.01.1964, Blaðsíða 23
Ræktunarfélag Norðurlands. var stofnað árið 1904 og hið fyrsta framtak félagsins má telja að hafi verið uppbygging þess staðar, sem síðan hefur verið miðstöð þess, við botn Eyjafjarðar í innanverðum Akureyrarbæ. Miklar athafnir og eftirtektarverðar fóru þar fram árum saman og þar hafa verið kennd vinnubrögð við jarðvinnslu, garð- yrkju, ræktun og fleira, þegar námskeið voru þar fyrir pilta og stúlkur um áraraðir, einkum á vorin. Síðar var þar rekin til- raunastarfsemi og hefur svo verið til þessa, síðustu 17 árin í forsjá ríkisins, sem til þeirra þarfa hefur leigt eignir félagsins — bæði eignaland og hús, svo og áhöld og bún- að þann, sem félagið hafði í notkun. Ræktunarfélag' Noröurlands var lengi miðstöð ræktunarmála og ræktunarathafna um Norðurland, og má segja að svo sé enn þar sem þetta er tilraunastöð í jarðrækt, in eina á Norðurlandi. Með ýmsu sniði hafa störf Ræktunarfélagsins verið rekin á þess- um 60 árum, sem liðin eru frá stofnun þess. Trjáplönturnar, er gróðursettar voru á fyrstu árunum, eru orðnar stór skógartré, er sanna hvað þarna getur vaxið af því tagi. Ræktunartilraunir á staðnum hafa kennt þeim, sem árangurinn hafa viljað nota beint og óbeint, aö svör viö því, sem um er spurt í tilraunum, gilda langt út fyrir stað þann, sem tilraunin er gerð á. Um hvorutveggja þetta má segja, að áhrif- anna hafi fyrst gætt í næsta nágrenni en breiðzt út síðar til fjarlægari stöðva. Nú hefur ríkiö keypt eignir Ræktunarfé- lagsins og sjálfsagt er fyrirhugað að í „Gróðrarstöðinni" — en svo hefur staður- inn löngum verið nefndur — verði fram- vegis gerðar tilraunir, en starfsemi Rækt- unarfélagsins færist nú inn á önnur svið. Máske er betra að segja að starfsval sé nú upp tekið í samræmi við breytta tíma, þeg- ar þriðjungi af andvirði eignanna er varið til þess að reisa — í félagi við önnur sam- tök — efnarannsóknastöö fyrir landbún- aðinn á Norðurlandi. Að öðru leyti mun söluverð eignanna notað til ýmiss konar rannsóknarstarfa í þágu jarðyrkju og garðyrkju á Norðurlandi. Söluverð nam 1 y2 milljón króna og má þá gera ráð fyrir, að vextirnir af einni millj- ón verði handbært fé árlega til þeirra fram- kvæmda. Samningur um söluna var undirritaður í Reykjavik 28. nóvember sl.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.